Freyr

Årgang

Freyr - 15.02.1994, Side 26

Freyr - 15.02.1994, Side 26
eru til íbúðarhúsabygginga færast öll á skattframtal en lán sem tekin eru vegna búrekstrar, færast á landbún- aðarframtal og vextir og lántökukostnaður sömuleið- is. Lán vegna bílakaupa, húsgagnakaupa eða annarra persónulegra nota, færast á skattframtal. Vísitölu- hækkun lána, þ.e. sú upphæð, sem lánin hafa hækkað um á árinu, færast til gjalda á landbúnaðarframtali, en sé vísitölulán á skattframtali, færast þar til gjalda aðeins vextir og greidd vísitölulækkun. Á þessu er mikill munur. Ef skuldir eru miklar, getur það orkað tvímælis hvort lánið er tekið vegna búrekstrar eða einkaneyslu, en það verða menn að meta. Þegar búið er að færa inn skuldir og um leið vexti og verðbætur á bls. 4 á landbúnaðarframtali, er vaxtadálkurinn lagð- ur saman og upphæðin sett í reitinn: 7.1, vextir og verðbætur af skuldum vegna búrekstrar á bls. 3. Aðrir liðir skýra sig sjálfir að rniklu leyti. Efnahagsyfirlit (sjá mynd 2). Eignir 31/12 1992. Fyrst skal byrja á því að færa inn á dálkinn lengst til hægri „31/12 1992“ af gamla framtalinu á það nýja. í dæminu, sem hér fylgir, eru veltufjármunir 2.125.024 kr. og þeir færast einnig neðst á síðuna eins og ör sýnir. Sama er að segja um skuldir, að þær færast einnig neðst á síðuna. Mismun- ur á veltufjármunum og skuldum myndar „Stofn til verðbreytingarfærslu“, í þessu dæmi 6.088.651 kr.. Þar sem skuldir eru hærri en veltufjármunir reiknast tekjufærsla. Tekjufærslan er3,ll% af þessari upphæð eða 189.357 kr. Tekjufærslan færist síðan á á bls. 5 með öðrum niðurstöðum af landbúnaðarframtalinu. Ef veltufjármunir væru hærri en skuldir, myndaðist gjaldfærsla, en ekki tekjufærsla. Eignir 31/12 1993. Veltufjármunir eru í þessu dæmi 1.927.289 kr., sjá mynd. Þeir myndast af birgðum, helmingi matsverðs bústofns, inneign í kaupfélagi v/bús, inneign í banka og útistandandi skuldum. Það rekstrarfjármagn, sem bundið er í búrekstrinum á að mynda veltufjármuni og er litið svo á að það fé sé óverðtryggt og myndi, að frádregnum skuldum, „stofn til verðbreytingafærslu“ eins og áður hefur verið skýrt frá. Það skiptir því töluverðu máli að veltufjármunir séu ekki vantaldir. Vaxtatekjur af innistæðum færist til tekna á bls. 2. Um áramótin eru afurðir fyrir desembermánuð í sumum tilfellum færðar á reikning ársins 1994 og í þeim tilfellum þarf að færa þá upphæð sem viðskipta- kröfu. Ógreiddar afurðir um áramót, sem taldar eru til tekna á afurðamiða, skal færa sem viðskiptakröfu í lið 1.4. Fastafjármunir. Þar færast allar fasteignir (útihús, land og ræktun), sem búrekstrinum tilheyra á fasteignamatsverði 1/12 1993 en ekki bókfærðu verði samkvæmt fyrningar- skýrslu. Búvélar færast hins vegar á bókfærðu verði samkvæmt fyrningarskýrslu. Helmingur af matsverði bústofns færist undir fastafjármuni en hinn helming- urinn undir veltufjármuni eins og áður er lýst. Skuldir Áður hefur verið vikið að færslu vaxta og vaxta- bóta. Skuldir færast eins og kvittanir segja til um þ.e.a.s. Eftirstöðvar eftir síðustu greiðslu" Rétt er að benda á að færa ógreiddan virðisaukaskatt sem skuld um áramót. Innistæða sem mynduð hefur verið til að standa straum af þessari greiðslu 1. mars skal setja í veltufjármuni. B. Uppgjör hreinna tekna af búrekstri, bls. 5. Árlega birtir ríkisskattstjóri viðmiðunarreglur til ákvörðunar á endurgjaldi bænda, maka þeirra og barna. Þær eru birtar í lok þessarar greinar. Eins og fram kemur í leiðbeiningum ríkisskattstjóra á bls. 9 skulu bændur að jafnaði færa á landbúnaðar- og skattframtal þau reiknuðu laun, sem staðgreiðsla á árinu 1993 hefurverið miðuð við. í hjálögðudæmi, sjá mynd 3, er hagnaður af búrekstrinum að upphæð 202.945 kr.. eftir að hvort hjónanna hefur reiknað sér í laun 700.000 kr. og börnum 300.000 kr. Yfirfæran- legt tap frá fyrra ári er 558.097 kr. hjá hvorum aðila og hækkun samkvæmt stuðli nemur 17.359 kr. yfirfæran- legt tap framreiknað verður 575.456 kr. Að frádregn- um hagnaði 101.473 kr. er yfirfæranlegt rekstrartap til nærsta árs 473.984 kr. Ég vil ráðleggja bændum að loka framtali sínu og reikna sér laun. Almennt séð er ekki ástæða til þess að reikna sér lægri laun en viðmiðunarreglur segja til um. Ef búið gefur ekki þær tekjur, er það rekið með halla en tapið geymist í 5 ár og er verðtryggt. Þegar síðan batnar í ári má nota tapið til þess að lækka hagnaðinn. Þó að það virðist í sumum tilfellum tilgangslítið að safna upp tapi ár eftir ár, getur sú staða komið upp að tapið nýtist. Eldri bændur, sem farnir eru að draga saman seglin, sýna oft tap af búrekstri sínum ár eftir ár. Ef sú staða kemur upp að þeir selja jarðir og fá mikinn söluhagn- að, nýtist tapið og getur komið sér mjög vel. Nú hefur hinsvegar verið gerð sú breyting á skattalögum að tapið fyrnist eftir 5 ár. Það tap sem nú er til fyrnist eftir 5 ár ef það er ónotað. Ef búreksturinn gengur illa er full ástæða til þess að að fyrna allar eignir um lágmarksfyrningu. F. Yfirlit yfir ónotað tap Tap fyrnist á 5 árum og nú þarf að halda utan um hvert ár. Neðst á bls. 5 eru sett upp í dálka fyrir árið 1991 og fyrr annarsvegar og 1992 hinsvegar. Tapið 1992 var 164.031 kr. (sjá Frey bls. 133 1993) Eldra tap 122 FREYR - 6‘94

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.