Freyr

Árgangur

Freyr - 15.02.1994, Síða 37

Freyr - 15.02.1994, Síða 37
öðlast betri vitneskju um efnamagn búfjáráburðarins. Athuga þarf gaumgæfilega hvort ekki gæti verið hagkvæmt að efnagreina sýni af bú- fjáráburði hjá sem flestum bændum all títt, a.m.k. þar til ljóst er hver dreifing er á efnamagni í þessum áburði. Einkum og sér í lagi gildir þetta um kalí sem getur verið mjög breytilegt í búfjáráburði en jafn- framt sennilega auðveldlegast í mæl- ingu. Mætti hugsa sér að í fyrstu umferð yrði aðeins kalí mælt og kortlagt. Fyrir nokkrum árum var sett á markað ný áburðartegund, nefnd Græðir 9, sem nota átti með búfjáráburði á tún. Notkun þessa áburðar var spor í rétta átt en gefur þó með meðalstórum og stærri skömmtum af búfjáráburði oftast óþarflega mikið af fósfór og einnig af kalí ef það er í þokkalegu magi í búfjáráburðinum. Örstutt áburðarfrœði. Samandreginn niðurstaða af fram- ansögðu og þeirri reynslu annarri og niðurstöðum tilrauna er fyrir liggja eru eftirfarandi almennar hugmynd- ir um áburðarnotkun á tún. Nota skal breytilegt magn af köfnunarefni til þess að ná fram mismun í upp- skeru allt eftir því hver þörf er á gróffóðri og hver túnstærð er á við- komandi búi. Ekki binda þetta nær- ingarefni fast eins gert hefur verið í leiðbeiningum á undangengnum árum. Á öll tún 10 ára og eldri a.m.k., en þau eru nú um 90% allra túna, ætti að bera á fosfór sem ekki er miklu meiri en það sem fjarlægt er með uppskeru. Þetta gæti verið við meðaluppskeru 12-15 kg P á ha. Þetta er umtalsvert minni fosfór en ráðlagður hefur verið og ef eftir þessu á að fara er, eins og framar var vikið að, er nauðsyn að breyta efna- hlutföllum í öllum blöndum áburði á tún. Kalí þarf að bera á eftir því hver uppskera túns er og hve hátt kalímagn er í uppskerunni. Þá er rétt að taka mið af uppruna og samsetn- ingu jarðvegs og kalí áborið í tilbún- um áburði þarf mjög að sníða að kalíinnihaldi búfjáráburðarins. Brennistein þarf að bera á víða til þess að halda góðri uppskeru. Erfitt er að segja nákvæmlega hver þörfin er og því öruggasta og ódýrasta lausnin að hafa brennistein í öllum tilbúnum áburði. Þessu er að veru- legu leyti náð nú en þó vantar enn að brennisteinn sé í tvígildum áburði. Úr því þyrfti að bæta. Á undanförn- um árum hefur kalk verið í hluta af blandaða áburðinum og er enginn ástæða til að breyta því. Á afmörk- uðum svæðum getur þó sýrustig jarðvegs verið það lágt og kalkmagn moldarinnar það lítið að það kalk sem er í hinum blandaða áburði nægi engan veginn. Á þessi tún þarf að bera á kalk sérstaklega. Hugsanlegt er einnig að á afmörkuðum stöðum á landinu komi til álita að bera á magnesíum, einkum getur þetta gilt fyrir aðrar jurtir en grös, t.d. fóður- kál og kartöflur. Með búfjáráburði á túnin þarf að fá nýja blöndu í staðinn fyrir Græði 9 þar sem steinefni eru minni, einkum fosfór. Kæmi til álita að hafa tvær blöndur í þessu augnamiði, aðra ef hóflega er borið á, þ.e. 10-15 tonn af mykju á hektara eða samsvarandi af taði, og hina ef meira er sett af húsdýraáburði á túnið. Ef mjög mik- ið er borið á t.d. af taði nægir oft að bera á ögn af köfnunarefni einu sam- an til viðbótar. Hjalta Gestssyni veitt heiðursskjal sunnlenskra sauðfjárrœktarmanna Samtök sunnlenskra sauðfjár- ræktarmanna sæmdu Hjalta Gests- son sauðfjárræktarráðunaut heið- ursskjali fyrir frábært starf í þágu sauðfjárræktar á Suðurlandi á und- anförnum áratugum. Var það gert í tilefni af 25 ára starfsrækslu sauð- fjársæðingastöðvar Búnaðarsam- bands Suðurlands. Segir í heiðurs- skjalinu að á þessum árum hafi orðið stórstígar framfarir í byggingu og afurðasemi fjárins og að hlutur Hjalta Gestssonar sé stór í þeirri framþróun sem orðið hafi í kynbóta- starfinu. Honum er þökkuð farsæl ráðgjöf. J.J.D. Hjalti Gestsson, ráðunautur og Stella Guðmundsdóttir, ritari stjórnar Sauðfjár- sœðingastöðvarinnar, en hún afhenti Hjalta heiðursskjalið. 6*94 - FREYR133

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.