Freyr - 15.02.1994, Page 41
Landsmót hestamanna 1994
Kristinn Hugason, hrossarœktarráðunautur Búnaðarfélags íslands
Landsmót hestamanna ter fram á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 28. júní til 3. júlí í
sumar. í þessari grein verður getið um helstu staðreyndir er varða undirbúning og fram-
kvœmd kynbótaþáttar mótsins.
Reglur um dóma og
sýningar á
kynbótahrossum.
Hvað varðar reglur um dóma og
sýningar á kynbótahrossum skal
fyrst og fremst vitnað til ritsins Kyn-
bótadómar og sýningar sem Búnað-
arfélag íslands gaf út árið 1992. Par
koma fram allar núgildandi reglur
um einstaklingssýningar á kynbóta-
hrossum og reglur um afkvæmasýn-
ingar á stóðhestum. Á fundi Hrossa-
ræktarnefndar Búnaðarfélags ís-
lands í desember síðastliðnum voru
síðan samþykktar nýjar reglur um
afkvæmasýningar á hryssum og taka
þær reglur gildi frá og með sýningar-
árinu 1994.
Kristinn Hugason.
Afkvœmasýningar á hryssum
Verðlaunastig Kynbótamat hryssna út frá afkvæmum Fjöldi afkvæma í BLUP-útreikningi Fjöldi afkvæma í sýningu
Heiðursverðlaun 120 eða hærra 5 4
1. verðlaun 115 eða hærra 4 3
110 til 119 5 3
Öll afkvæmi hryssna sem hafa
bæði byggingar og hæfileikadóm,
liggja til grundvallar útreikningi
kynbótamatsins. Dómsorð sem
samin eru miðast við heildarlýsingu
afkvæmanna.
Umráðamenn afkvæmasýndra
hryssna velja sjálfir afkvæmin sem
sýnd eru í reið á mótsstað, 3 eða 4
eftir verðlaunaflokkum og þeir ráða
því einnig hvort hryssurnar sjálfar
séu á mótinu og hvernig þær verði
kynntar, þ.e. hvort hryssurnar séu
sýndar í taumi eða þeim riðið.
Sérstök athygli er vakin á því að
kynbótamatið sem lagt er til grund-
vallar við afkvæmasýningar á hryss-
um er reiknað út sérstaklega hverju
sinni og eru afkvæmin ein og sér lögð
til grundvallar við útreikninginn. Til
útreikningana er notað sérstakt for-
rit. Heildarkynbótamatið, sem
byggist á eigin dómi og ætterni
hrossanna sem í hlut eiga hverju
sinni, auk dóma á afkvæmum þeirra,
segir vitaskuld meira um hið sanna
kynbótagildi en það kynbótamat er
hér um ræðir. En með umræddri
aðferð, að reikna kynbótamatið út
frá afkvæmunum einum, næst að
afkvæmadæma hryssunar þar sem
um leið er leiðrétt fyrir sýningarári
afkvæmanna, kynbótagildi föðurs
þeirra, auk leiðréttingar fyrir aldri
og kynferði afkvæmanna sjálfra.
Allt eru þetta atriði sem skipta máli
en eru óháð kynbótagildi hryssn-
anna og því hefur þessi nýja aðferð
við afkvæmadóma á hryssum mikla
yfirburði yfir eldri aðferðir þar sem
einungis var tekið tillit til dómsein-
kunnanna. Það hafði bersýnilega
mikla skekkju í för með sér þar sem
dómar misgamalla hrossa frá ólíkum
sýningarárum voru lagðir að jöfnu.
Inntökuskilyrði á
landsmótið
Þátttökurétt til sýninga með af-
kvæmum á landsmótinu hljóta þau
hross sem ná heiðursverðlaunum
eða 1. verðlaunum. Sjá hér að fram-
an og á bls. 36 til 37 í ritinu Kynbóta-
dómar og sýningar.
Inntökuskilyrðin í einstaklings-
sýningar mótsins koma síðan fram í
töflunni hér að neðan:
Aðaleinkunn,
Flokkur lágm.
Stóðhestarövetraogeldri . . 8,05
Stóðhestar5 vetra..... 7,95
Stóðhestar4 vetra..... 7,80
Hryssuróvetraogeldri .... 8,00
Hryssur5 vetra .................. 7,90
Hryssur4vetra ................... 7,80
Til sölu
vandaður fjárflutningavagn.
Upplýsingar í síma 93-41333.
6'94 - FREYR137