Freyr - 15.04.1994, Side 8
Hjalti í Bœ. Freysmyndir.
Bœr í Trékyllisvík. Firmbogastaðafjall að baki.
Kynslóðaskipti á
jörðum erfiðari en áður
segir Hjalti Guðmundsson í Bœ í Árneshreppi f viðtali við Frey
Árneshreppur, nyrsti hreppur á Ströndum er eitt þeirra byggðarlaga þar sem búseta
stendur höllum fœti. Þar býr harðgert og dugmikið fólk sem vill halda tryggð við torfuna,
en margt er byggðinni mótdrœgt: Einangrun byggðarlagsins, erfitt veðurfar og samdráttur
í sauðfjárrœkt.
ÍÁrneshreppi eru 24
heimilimeðum 100
íbúa.
í Árneshreppi er þó margt meö sérstök-
um myndarbrag, s.s. vel húsaðar jarðir
og nýleg eða endurbætt samfélagsleg
mannvirki. I sumar heimsótti fréttamað-
ur Freys Hjalta Guðmundsson bónda í
Hæ og átti við hann viðtal.
- „Fólkinu hefur verið að fækka hér,
þó ekki neitt stórkostlega, en það eru
ýmsir erfiðleikar hjá okkur og skerðing á
fullvirðisrétti sem við höfum lent í með
þessi smáu bú sem hér eru, segir Hjalti.
Aðra tekjumöguleika höfum við ekki
mikla, nema einstaka bændur af reka-
hlunnindum, en þau hafa farið þverrandi
því það hefur gengið erfiðlega að selja
staura, vegna þess að það er samdráttur
hjá bændum í öðrum sveitum. Það hefur
þá helst verið Vegagerðin sem hefur
keypt og mikið var selt héðan meðan
verið var að girða í Blönduvirkjun. Það er
þó alltaf einhver sala í staurum og menn
eru þá kannski að vinna timbur í eitthvað
annað. Það eru hugmyndir um það núna
frekar en áður að vinna rekaviðinn á
annan hátt, í plankavið fyrir byggingar.
Meðan átakið í byggingu útihúsa stóð hér
yfir á árunum, var mikið sagað í máttar-
viði í fjárhús. Menn komu sér upp sæmi-
legri aðstöðu til þess að saga rekaviðinn.“
Eru eingöngu sauðfjárbú hér?
„Já, svo til eingöngu. Það eru ekki kýr
nema á helmingi þeirra býla sem eru í
byggð, og annar búfénaður ekki.“
Fá menn þá mjólk að?
„Já, mjólk er flutt að í töluverðum
mæli.“
Hvernig eru samgöngur hingað?
„Það ganga engir áætlunarbílar hing-
að, en flutningabfll gengur hingað einu
sinni í viku yfir sumartímann. Það er
280 FRETR - 8'94