Freyr - 01.02.1995, Page 26
Við getum boðið bœndum
upp á flest þau tœki sem þeir
þurfa við búskapinn
Þórður Hilmarson forstjóri Glóbus-Vélavers hf. í viðtali
Glóbus hf. er vel þekkt og öflugt fyrirtœki, einkum á sviði vélainnflutnings og
heildsöludreifingar á neysluvörum. Á undanförnum árum hefur fyrirtœkið flutt inn
bifreiðar, en þar er á brattann að sœkja eins og mörgum er kunnugt.
Samdráttur sá sem orðið hefur í
atvinnurekstri og viðskiptum hin
síðari ár hefur að sjálfsögðu bitnað
á rekstri Glóbus hf. eins og annarra
fyrirtækja í svipaðri starfsemi.
Við þessu hafa forráðamenn
Glóbus hf. brugðist með því að end-
urskipuleggja fyrirtækið, hætta að
flytja inn bíla og leggja niður þjón-
ustu, tengda bílainnflutningi. Hefur
hvorttveggja verið látið í hendur
nýs unrboðsfyrirtækis.
Glóbus-Vélaver hf.
Hins vegar hafa þeir sem að
Glóbus standa stofnað nýtt og
öflugt fyrirtæki um rekstur og
þjónustu tengda vélainnflutingi
félagsins. Glóbus-Vélaver hf. hóf
rekstur um síðastliðin áramót og
tók við öllum vélainnflutningi
Glóbus hf.
Að fyrirtækinu Glóbus-Vélaveri
hf. standa, auk Glóbus, nokkrir fjár-
festar, fyrirtæki og einstaklingar
sem m.a. eru stjórnendur hins nýja
félags, þar á meðal Þórður Hilmar-
son, forstjóri þess.
Ástæðan fyrir þessu er sú að við
teljum að þessi skipan henti betur
heldur en sá samrekstur sem verið
hefur á hinum þrem innflutnings-
þáttum fyrirtækisins, þ.e. bílum,
vélum og heildsölurekstri, sagði
Þórður Hilmarsson í viðtali við
Frey. Innflutningur á bílum hefur
ekki gengið sem skyldi, og við
erum e.t.v. meðal fárra fyrirtækja í
þeirri aðstöðu að geta valið þann
kost að hverfa úr þeim viðskiptum.
Vélainnflutningur og heildsölu-
Þórður Hilmarsson framkvœmdastjóri
Glóbus-Vélaver.
rekstur hefur jafnan gengið þokka-
lega, enda þótt innflutningur búvéla
og iðnaðartækja hafi dregist saman.
Við teljum að með því að endur-
skipuleggja reksturinn eins og fyrr
var að vikið, nýta fjármuni beint til
rekstrarins og auka við nýju hlutafé,
muni fyrirtækið skila þokkalegri af-
komu við núverandi aðstæður, án
þess að sala þurfi að aukast.
Fjárhagsstaða hins nýja félags er
mjög góð, eiginfjárhlutfall þessa fé-
lags er um 50% og nýtt hlutafé er á
bilinu 75-80 milljónir. Þetta er því
sterkt félag og tilbúið að takast á
hendur verkefni þau sem bíða okkar
í framtíðinni. Spumingu um hvort
Glóbus-Vélaver hf. hefði einhver
ný umboð á hendinni, svaraði
Þórður:
Góð og fjölbreytt umboð
- Við erum með, að því er við
teljum, afskaplega góð umboð. Ef
við tökum landbúnaðargeirann, þá
spannar þetta fyrirtæki allt sem
tengist utandyrafjárfestingu bænda
og eftir að við tókum við Alfa
Lava-umboðinu fyrir tæpum
tveimur árum erum við komnir með
bróðurpartinn af því sem þarf
innandyra líka; við getum því boðið
bændum upp á flest þau tæki sem
þeir þurfa við búskapinn.
Þegar bændur eru að endurnýja
mjólkurtanka sína nú og á næstu
misserum, vil ég vekja athygli á því
að við erum með umboð fyrir Alfa
Laval mjólkurtanka. Þeir eru fram-
leiddir í Alfa Laval verksmiðjunni í
Frakklandi og það fyrirtæki er leið-
andi í framleiðslu mjólkurgeyma í
Evrópu; hafa upp í 40-50% mark-
aðshlutdeild í nánast öllum löndum
Evrópu. Við teljum okkur því
heppna og erum stoltir af því að
hafa fengið umboð fyrir svo ágæta
framleiðendur.
Á sviði vinnuvéla erum við með
umboð fyrir JCB. Þar er mikið
úrval, allt frá minnstu tækjum upp í
stærstu gröfur, og við erum mjög
ánægðir með þær móttökur sem
allar þær vélar hafa fengið.
Sama starfsfólkið ófram og
ó sama stað
Allt það starfsfólk sem áður vann
við vélainnflutning og þjónustu
honum tengdum hjá Glóbus hf.
mun starfa hjá Glóbus-Vélveri hf.,
sagði Þórður; það er fólk sem
viðskiptavinir okkar þekkja og hafa
átt samskipti við undanfarin ár.
66 FREYR - 1.'95