Freyr

Årgang

Freyr - 01.03.1995, Side 10

Freyr - 01.03.1995, Side 10
yrði farið eftir stafrófsröð. Ás- grímur byijaði og svo koll af kolli. Eftir að við tókum upp þennan hátt var Árný blessunin ætíð fús til að lengja æfingatímann um allt að einni klukkustund. En hver var svo Unnsteinn Olafs- son, maðurinn, sem Ásgrímur vinur minn talaði við og við höfðum nú ráðist í vist hjá til rúmlega tveggja ára? Hann var Húnvetningur, fædd- ur að Stóru-Ásgeirsá í Víðidal 11. febrúar 1913. Foreldrar hans voru Olafur bóndi á Stóru-Ásgeirsá, Jónsson, bónda á Söndum í Mið- firði, Skúlasonar og kona hans, Margrét Jónsdóttir, bónda á Úti- bleiksstöðum, Jóhannessonar. Unnsteinn lagði ungur út á menntabrautina. Hann stundaði nám við Alþýðuskólann á Hvítárbakka veturinn 1928-1929. Þaðan lá leiðin til Hvanneyrar, þar sem hann nam við Bændaskólann vetuma 1930- 1931 og 1932-1933. En ekki var þar látið staðar numið, heldur siglt til Kaupmannahafnar á haustdögum 1933 og nám hafið þar við Landbún- aðarháskólann. Um áramótin skipti hann um námsbraut og hvarf að garðyrkjunámi við garðyrkjuskólann á Vilvorde í Danmörku þar sem hann stundaði nám til vors 1935. Síðan út- skrifaðist hann úr garðyrkjudeild danska landbúnaðarháskólans vorið 1938 með framúrskarandi góðri einkunn, fyrstur Islendinga, sem lauk slíku námi. Á námsámm sínum í Danmörku kynntist Unnsteinn Elnu Christiansen og gengu þau í hjóna- band í september 1937. Jónas Jónsson var í sífelldri leit að ungum og efnilegum mönnum sem hann síðan leitaðist við að efla til áhrifa. Nú vildi svo til að fundum þeirra Jónasar og Unnsteins hafði borið saman úti í Danmörku, og Jónas færir það þá í tal við Unnstein að sækja um skólastjórn við hinn væntanlega garðyrkjuskóla. „En ég gat ekkert boðið og engu lofað“, sagði Jónas síðar. Að námi loknu átti þessi ungi og efnilegi garðyrkjukandidat ýmissa kosta völ ytra. Og óefað hefur hann velt því fyrir sér, hvaða framtíð biði ungs manns með slíkt nám að baki ef hann hyrfi til heimalandsins. Voru skilyrði til þess, að hann gæti notið hér menntunar sinnar og manndóms? Sjálfsagt hefur hinn ungi garðyrkju- kandidat svarað þessum spurningum játandi, því hann kom heim og þótti þá sjálfsagt að hann tæki að sér stjóm hins væntanlega garðyrkjuskóla, svo sem Jónas Jónsson hafði vænst. Það var svo í ársbyrjun 1939 sem þau hjón fluttu í Reyki og höfðu, frá þeirri stundu, tekið þennan stað upp á arma sína. Tveir kennarar höfðu þá verið ráðnir að skólanum: land- búnaðarkandidatamir Sigurður Ingi Sigurðsson og Stefán Þorsteinsson. Síðan komu til starfa garðyrkjuræð- ingamir Sigurður Sveinsson og Ole Pedersen. En hvernig var nú umhorfs í þessu riki, sem hin ungi skólastjóri var að taka við? I stuttu máli sagt var þar fátt eitt fyrir hendi sem gerði það unnt að reka þar um sinn garðyrkjumenntastofnun, sem risið gæti undir nafni. Aðeins eitt hús var þarna íbúðarhæft og þó ekki stórt. Það var íbúðarhús fyrrverandi bú- stjóra við berklahælið, Guðjóns Sigurðssonar, sem nú var búinn að stofna nýbýli inni í Gufudal, hér skammt innan við Reyki. Þetta hús var síðan um langt árabil bústaður skólastjórans og fjölskyldu hans, auk þess sem það hýsti starfsmenn búsins. Skólanum var hins vegar ætlað að hafast við í húsakynnim berklahælisins, en á því stóðu yfir umfangsmiklar lagfæringar allt fram að vígsludegi skólans. Annað hús var þama á bak við berklahælishúsið og lá samhliða því. Gekk það undir nafninu Harm- onika, hvemig sem á þeirri nafngift hefur nú staðið. Það var m.a. ætlað kennurum. Einnig það þyrfti vem- lega lagfæringa við. Enn var þarna þriðja húsið, allnokkru utar og ofar en hin, Barcelona að nafni. Þar var m.a. aðstaða til þvotta. Gróðurhúsin minnir mig að hafi verið fimm, öll meira og minna las- burða og ekki til frambúðar. Nokkrir vermireitir vom þama við gróður- húsin. Timburkarmamir utan um þá vom fúnir orðnir, margir hverjir, og drjúgur hluti af vermireitaglugg- unum rúðulausir. Berklahælið hafði rekið kúabú og því vom þama ljós og hlaða, tvímælalaust stöndugustu byggingamar á staðnum. Var þessum búskap haldið áfram enn um sinn. Úr öllu þessu bortasilfri var Unn- steini og samstarfsmönnum hans ætl- að að skapa skóla, sem menntað gæti garðyrkjumenn framtíðarinnar. Við þetta bættist svo það, þegar kom að bóklega náminu, að kennslubækur í garð- og gróðurhúsaræktun vom því nær engar til á íslensku. Varð því bóklega kennslan að fara fram í fyrirlestrum að vemlegu leyti. En þótt allt væri þannig á fótinn, var hvergi hvikað frá settu marki. Skólinn skyldi settur þann 20. apríl 1939, á sumardaginn fyrsta. Kannski var sú dagsetning með vissum hætti táknræn. Um þessa merku tímamóta- athöfn segir svo í dagbók minni: m Unnsteinn skólastjóri og nemendur hans í útikennslustund. 98 FREYR - 3. '95

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.