Freyr - 01.10.1998, Síða 12
1. tafla. Veðurfar í Reykjavík
í maí og júní 1993-1996*
Meðaltal
1993 1994 1995 1996 1961-1990
maí júní maf júní maí júní maí júní maí júnf
Úrkoma, mm 65,5 33,3 67,0 46,8 20,7 38,1 48,4 55,3 43,8 50,0
Fjöldi úrkomud. 17 15 20 17 14 23 18 16 16,6 17,4
Meðalhiti, °C 5,4 9,1 6,9 8,0 6,7 9,0 7,2 9,8 6,3 9,0
Meðalvindhr. hn. 12,7 9,3 8,4 9,3 7,4 9,2 8,6 9,4 10,3 10,1
Sólskinsstundir 203 136 212 210 216 110 203 155 192 161
*Upplýsingar frá Veðurstofu Islands
2) Breiðfirska aðferðin b). Farið er
2-3svar í hvert hreiður eftir að
fulldúnað er og dálítið af dúni
tekið í hvert skipti, en þurrt hey
sett undir. Allur dúnn tekinn þeg-
ar örstutt er í útleiðslu og þurrt
hey sett í staðinn.
3) Hreiður og dúnn algjörlega
óhreyft allan tímann og dúnn ein-
ungis tekinn við eða eftir út-
leiðslu.
4) Allur dúnn tekinn strax og full-
dúnað er og þurrt hey sett í stað-
inn.
Sá háttur að kenna tvær fyrstu
aðferðimar við ákveðinn landshluta
byggist á því að þar voru þær og eru
jafnvel enn notaðar, en ekkert er
fullyrt um að þessar aðferðir hafi
ekki einnig verið notaðar víðar.
A hverju vori árin 1993-1996 var
farið um varpsvæðið þegar fulldún-
að var. Merkt voru 60 hreiður af
handahófi í hverja meðferð (alls 240
hreiður) og strax næsta dag hófst
vinna samkvæmt ofangreindu
skipulagi. Athugunarsvæðið var hið
sama öll árin, eða þýft mólendi NA
af Bessastaðatjöm, talsvert mosa-
vaxið eins og víða er í varplandinu á
Bessastöðum. Landið er þurrt í þurr-
um og meðalþurrum árum, en neðri
hluti þess blotnar upp í samfelldri
vætutíð. Öll árin var farið í fyrstu
yfirferð á tímabilinu 24. maí-3l.
maí ár hvert, allt eftir því hversu
snemma fuglinn settist upp. Síðasta
dúnleit var svo farin tæplega þrem
vikum síðar. Egg voru talin í hverri
yfirferð. Við útleiðslu voru svo
eggjaskum talin til þess að meta
hversu margir ungar hefðu klakist
út.
Tíðarfar
l. tafla sýnir yfirlit yfir veðurfar í
Reykjavík í maí og júní árin sem
tilraunin stóð. Taflan sýnir mælingu
nokkurra veðurfarsþátta í þeim mán-
uðum sem varp stendur yfir, en bent
skal á að meginþungi varpsins er á
tímabilinu 20. maí til 20. júní.
Til frekari útskýringar á því sem
þessar veðurfarsmælingar sýna má
nefna; að í maí 1993 féll 84% úr-
komunnar fyrstu 10 daga mánaðar-
ins, þ.e. fyrir varp, og jafnframt var
kalt þann tíma en hlýnaði síðari
hluta mánaðarins; að 27. júní 1993
féll 57% mánaðarúrkomunnar; að
30. maí 1994 féll 54% mánaðarúr-
komunnar, 10 júní 1994 féll þriðj-
ungur mánaðarúrkomunnar og 16.
júní 1996 féll 65% af mánaðarúr-
komunni, en mjög þurrviðrasamt
var fyrri hluta mánaðarins. Af þessu
2. tafla. Aðferðir við dúntekju
Niðurstöðumar eru meðaltal fjögurra ára, 1993-1996
Aðferðir Eggja fjöldi alls* Meðal- eggja fjöldií hreiðri Fjöldi ungaúr eggjum, alls** Fjöldi ungaúr eggjum, % Hreins- aður dúnn alls, kg Hreins- aður dúnn úr hreiðri, gr. Hlutfall dúns*** Hreiður rænd eða yfirgefin á tímabilinu Fúlegg, fundin
l)Breiðfirska aðferð a) 224 3,8 181 81 0,932 15,53 91 4,0 3,5
2)Breiðfirska aðferð b) 226 3,8 170 75 0,982 16,34 96 3,8 2,3
3) Óhreyft 215 3,6 162 75 0,891 14,85 87 5,8 2,5
4) Allt tekið strax 228 3,8 183 80 1,023 17,05 100 2,0 2,0
* Eggjafjöldi alls í 60 hreiðrum, þegar fulldúnað var.
** Fundið með því að telja eggjaskurn við útleiðslu.
*** Aðferðin sem gefur mestan dún er sett sem 100 hvert ár, aðrar aðferðir eru síðan reiknaðar sem hlutfall af því.
12-Freyr 12/98