Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1998, Blaðsíða 16

Freyr - 01.10.1998, Blaðsíða 16
Hreiðurskýli af mismunandi gerðum á Bessastöðum. girðingu, í fylgd uppalandans, og daglega eftir það til að kynnast ná- grenninu og til þjálfunar og gekk það allt vel og áfallalaust. Fyrsta sjóferðin var farin 12. júlí. Þá voru ungamir látnir elta uppal- andann til sjávar, sem var um 500 m vegalengd. Þar hófu þeir sund og köfun eftir æti af mikilli áfergju og tóku vel við sér þegar steinum var lyft upp til að róta upp marfló og öðru æti. Fljótlega eftir að ungarnir komu á sjóinn komu geldkollur í flæðarmálið til þeirra og reyndu að lokka þá með sér í burtu. Ungamir fóru með kollunum alllangt í burtu, en eftir mikla togstreitu á milli koll- anna og uppalandans hafði hann að lokum betur og ungamir fylgdu honum heim, af fúsum og frjálsum vilja, eftir 2ja klst. sjóferð. Eftir þetta var farið með ungana daglega að sjó til 23. júlí. Þá hættu sumir alveg að koma til baka. Hinir sem enn komu heim gátu gengið í mat á venjubundnum stað. Það voru yngri ungarnir sem lengur komu heim og héldu því áfram allt fram í ágúst og vom þeir mjög mannelskir. Nokkrir þeirra voru að koma heim á hlað allt fram í september og þáðu matarbita sem heimafólk bauð þeim. Greinilega kom í ljós, að við upp- eldi æðarunganna er heppilegast að þeir séu allir á sama aldri. Starfsmenn Náttúmfræðistofn- unar sáu um að merkja æðamngana áður en þeim var sleppt. Alls voru 44 eldisungar merktir á Bessastöð- um sumarið 1993. Vorið 1998 höfðu eftirfarandi endurheimtur borist. Ein kolla úr hópnum sást tvisvar á hreiðri, þ.e. 12. júní 1996 og aftur 6. júní 1997. Önnur var á hreiðri 6. júní 1997. Sú þriðja var á hreiðri 5. júní 1997, allar í Bessastaðavarpinu. Fjórði eldisfuglinn fannst dauður (beinagrind) í Gálgahrauni 11. októ- ber 1993 (María Harðardóttir, 1998). Árið eftir (1994) hafði dregið mjög úr fjárveitingu til þessara rann- sókna og var því ekki hægt að halda áfram með æðamngauppeldið. Lokaorð Þótt ýmislegt fróðlegt hafi komið í ljós í tilraunum þeim sem hér hefur verið greint frá, er augljóst að til- raunirnar hefðu þurft að standa í nokkur ár til viðbótar, en það reynd- ist ekki unnt af ástæðum sem þegar hefur verið greint frá. Þá hefði verið æskilegt að hafa fleiri hreiður bæði í dúntilraun og fleiri hús. Einnig hefði verið æskilegt að kanna hvort kollur drápust í hlutfallslega sama mæli eftir dúntínsluaðferð, hvort raun- hæfur munur er á milli varpárangurs í skýlum og utan þeirra og hvort sama hlutfall ungra fugla kemur í varp síðar. Þá væri áhugavert að meta betur raunverulegan árangur af ungauppeldi, þ.e. hvort fuglamir skili sér betur í varp en alvilltir fugl- ar. Varðandi þessi atriði og mörg fleiri tengd rannsóknum á æðarfugli og dúntekju er augljóst að mikið verk er enn óunnið. Fróðlegt verður hins vegar að fylgjast með niðurstöðum Náttúm- fræðistofnunar Islands á þeim yfir- gripsmiklu merkingum á æðarfugli sem framkvæmdar vom á þessum ámm. Að lokum skal þakka forseta- embættinu, einkum þó frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrir þann velvilja að leyfa það að rannsóknimar færu fram í æðarvarpinu á Bessastöðum og fyrir þann áhuga sem hún sýndi þessu verkefni. Umsjónarmaður æðarvarpsins á Bessastöðum á þessum árum var Daníel Hansen, kennari. Hann hafði jafnframt daglega umsjón með rann- sóknunum, auk þeirrar vinnu sem kom í hans hlut við framkvæmd þeirra. Honum er hér með þökkuð vel unnin störf. Ævar Petersen las handrit að greininni og benti á ýmis- legt sem betur mátti fara og eru hon- um færðar þakkir fyrir það. Fjárveitingavaldinu er hér með þakkað fyrir veittan stuðning og sér- fræðingum Náttúmfræðistofnunar Islands fyrir samstarfíð. Heimildir Ámi Snæbjömsson, 1990. Um uppeldi æð- arunga. Freyr nr. 11, 459-464. María Harðardóttir, Jón Guðmundsson og Ævar Petersen, 1997, Þyngdartap æðar- kolla, Somateria mallissima, á álegu- tíma. Bliki nr. 18, 59-64. María Harðardóttir, 1998. Upplýsingar úr gögnum frá Náttúrufræðistofnun ís- lands. 16- Freyr 12/98

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.