Freyr

Volume

Freyr - 01.10.1999, Page 2

Freyr - 01.10.1999, Page 2
Búkolla Landnámsmennirnir lögðu á hafið með litlar skrautlegar kýr. Islenska þjóðin frá örófi alda aö þessum stofni býr. Rólegum skepnum heima og í haga og hraust og aldrað varð fólk, sem lifði á saltfiski, súru skyri, sýru og kúamjólk. Fjósið sjálft er hljóðlátur heimur og hávaði er aldrei um þann sem gefur, mokar, kembir og klórar, kúm sem hann þekkir og ann. Og kýrnar veita okkur hvíta drykkinn, með krafti í vaxandi fólk, en eftir fœðingu fálmar barnið, fyrst eftir brjósti og mjólk. A Ijósu vori, er lifna grösin, er leyst út hin skrautlega hjörð. Samstundis upphefst þá öskur og lœti, og atlaga brosleg og hörð. Þunglamalega er þotið um túnin, þróttmikil sýning með brag. Með hausinn við jörðu og halann á lofti er hamast einn vorbjartan dag. Slöngvað er tungu um grasbrúsk við götu, og gangan þá löturhæg. Þó stundum sé talað um geðvonda gripi, er geðróin eðlislœg. Búkolla er íslensk af eldgömlu kyni og œtt hennar litrík og hrein. Mjólk hennar gefur mannanna börnum mátt og hin sterku bein. Pálmi Eyjólfsson. Norsk Hydro dregur sig út úr áburðarframleiðslu Stórfyrirtækið Norsk Hydro sem upphaflega var stofnað til að fram- leiða áburð hefur nú ákveðið að draga sig út úr þeirri framleiðslu en beina kröftum sínum einkum að framleiðslu léttmálma, svo sem aluminíum, og olíu- og gasvinnslu. Um helmingur af veltu fyrirtækis- ins er nú í áburðarframleiðslu, eða um 40 milljarðar n. kr. Astæðan fyrir þessari stefnu- breytingu er að áburðarframleiðslan skilar ekki nógum hagnaði. Þess er einnig vænst að það dragi úr áburð- arnotkun í Evrópu á næsta áratug og að samdrátturinn verði 7% á köfnunarefni, 4% á kalí og 10% á fosfór. (Dagens Næringsliv/Bondebladet nr. 41/1999) Díoksíneitrun ekki úr sögunni Vandamál við díoksineitrun í matvælum er e.t.v. meira en áður hefur verði talið. ítarlegar rannsóknir á kjöti í Belgíu sýna að stórgripir sem eru á beit nálægt iðnaðarsvæðum eru með svo mikið dóksín í sér að þeir standast ekki heilbrigðiskröfur ESB. Að áliti talsmanns ESB er margt sem bendir til þess að þetta sé ekkert sérbelgískt mál heldur al- mennt vandamál, að sögn danska blaðsins Politiken. Reglurnar um díoksinmagn i mat- vælum gilda hins vegar eingöngu fyrir Belgíu. ESB hefur engar sam- eiginlegar reglur fyrir díoksínmagn í fóðri búíjár eða í matvælum fyrir fólk. (Bondebladet nr. 41/1999) Altalað d kaffistofunni Sonur íslands Á fyrstu áratugum aldar- innar rak Bændaskólinn á Hólum svínabú. Eitt sinn gerðist það á Hólum að felldur var fullorðinn göltur. Það varð Konráði Arngríms- syni bónda og kennara á Ytri-Brekkum í Blönduhlíð, foður Björns sem lengi var bústjóri á Vífilsstöðum, tilefni að eftirfarandi vísu: Galti dó en fékk þó fyrst fylli sína úr skyrdöllonum, Ennþó hefnr íslaitd ntisst einn af sínunt allrabestu soiiunt. 2 - FREYR 11/99

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.