Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1999, Blaðsíða 17

Freyr - 01.10.1999, Blaðsíða 17
2. mynd. Náttúrulegar hreyfingar við ,, upprisu “ kúa. Þegar kýrnar standa upp í náttúrunni nota þœr u.þ. b. þrjá metra til að standa upp á (heildarflötur). Myndin sýnir hve mikil hreyjiþörfm er langs með kúnni, þegar hún stendur upp. verið sag, spænir, pappír eða niður- skorinn hálmur. Legutími Kýr liggja nærri 60% dagsins að meðaltali, deilt á 15-25 tímabil (u.þ.b. 5.500-9.000 sinnum á ári!). Legutimi og legutíðni ræðst mikið til af aldri (erfiðara, hærri tign), heilsu, legusvæðinu og veðri (hvassviðri og rigning gerir legu- svæðið minna eftirsóknarvert). Skynjun kúa Öll skynfæri kúa eru mjög vel þroskuð og nýtast jafnt við fæðusókn, samskipti milli kúa og til að halda utan um nánasta umhverfið. Sjónin er mjög sambærileg og hjá öðr- um spendýrum og er sjónsviðið 330°-360°. Það sjónsvið (3. mynd) sem skarast milli beggja augna er 25°-30°. Þrívíddarsjónsvið kúa er því ekki gott og því nokkuð ljós ástæða þess að kúm er yfirleitt illa við misfellur. Heyrn nautgripa er áþekk heym mannskepnunnar, en hefur að auki örlítið hærra tíðnisvið en við höf- um. Geta kúnna til að staðsetja hljóðgjafa er hins vegar frekar lé- leg, sem gerir flestar kýr óöruggar ef þær heyra hljóð - en nema ekki hvaðan það kemur. Lyktarskyn kúa er mjög þróað og nýtist mikið í leit að beitargróðri, en einnig í samskiptum við aðra nautgripi. Þannig geta naut fundið lykt af yxna kú mörgum dögum áð- ur en kýrin er í há-beiðsli. Kýrnar nota einnig lyktarskynið til að finna og þekkja kálfana sína. Bragðsskyn er nautgripum mikilvægt m.t.t. fóðurs. Kýr sækja í sætt og súrt en kjósa síður beiskju og salt. Taugaskynjun nautgripa er einnig vel þroskað skynfæri og em flestir staðir líkamans þaktir taugaifumum. Talið er að líkam- legir skaðar, sjúkdómar og streita sé skynjað sem sársauki og óþægindi með sama hætti og hjá mannskepnu. 2.S-SÖ”7^ \ • 3. mynd. Sjónsvið kúa. FREYR 11/99 - 17

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.