Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1999, Blaðsíða 13

Freyr - 01.10.1999, Blaðsíða 13
Afköst sogkrana mœld. kvæman membrusogjafna. Ef þú ert með þungu mjaltakrossana þá fáðu þér rýmra og léttara mjalta- tæki. Þróun mjaltatækja flestra tækjaframleiðenda er á þá vegu. Tæki sem rúmar yfir 400 ml stendur síður fullt af mjólk en gömlu 75 og 150 ml tækin því að oft er þetta mjög stuttur tími sem sú hætta er fyrir hendi, aðallega á annarri til ljórðu mínútu eftir ásetu. Til þess að þetta komi að fullum notum þarf oftast að skipta út mjólkurkrönum sem eru oft of grannir á eldri kerfum. Þeir ættu að hafa sem mest innanmál eða allt að 16 mm eftir gerð mjalta- tækis og það sama gildir um löngu mjólkurslönguna. Réttur halli mjaltakerfisins Látið yfirfara og lagfæra halla kerfisins þannig að það halli að mjólkurhúsi um lágmark 0,5 cm á hvern lengdarmeter. Látið hringtengja bæði mjólkur- og soglögn (tvo inntaksstúta í mjólkurskila) ef það er ekki þegar þannig lagt. Þetta er gríðarlega áríðandi vegna flutn- ings mjólkurinnar frá kúnni og vegna gangöryggis sogskiptanna. Látið mæla sogkrana, skiptið um og setjið afkastameiri krana ef þeir gömlu skila minna en 70 lítrum við 1 kpa fall soghæðar, helst ætti þetta að vera þannig að soghæð falli minna en 5 kpa við 150 lítra innrennsli lofts. Þetta mæla mjólkureftirlitsmenn eða þjónustumenn mjaltakerfa fyrir ykkur með ánægju, trúi ég. Þá ertu kominn með eins gott rörmjaltakerfi og hægt er án óheyrilegs kostnaðar. Það sem á undan er talið á við um flestallar gerðir mjaltakerfa. Hvað varðar kútakerfin (í mjalta- gryfju) þá eru þau að því leyti betri en rörmjaltakerfin að mjólk- að er með lægri soghæð og sveifl- ur í mjaltasogi eru minni, ekki síst vegna þess að mjólkin fer ekki beint í granna lögn heldur safnkút sem hefur mikið rými. Engu að síður þarf að toga mjólkina upp þar sem efri hluti kútsins stendur um einum metra ofar en júgur kýrinnar en þangað rennur mjólk- in frá mjaltatækinu. Stór ókostur er einnig hve erfítt er að koma á ákveðinni og oft breyti- legri mjaltaröð, s.s. vegna júg- urbógu, lyfjameðhöndlunar, geld- ingar eða broddmjólkur. Þetta bíður heim hættu á smiti milli gripa og að lyfjarestar úr meðhöndluðum gripum mengi mjólkina og valdi þannig tjóni fyrir afúrðarstöðina og bóndann. Hvað varðar endurbætur á kúta- kerfum þá mætti að sjálfsögðu skipta um mjaltatæki, eins og áður er getið, en sé verið að huga að verulega gagnlegum endurbótum þá ráðlegg ég einfaldlega að leggja kerfið af því að gryfjan er fýrir hendi, þannig að styttra er í lág- línukerfi út frá kostnaði séð. Það breytir þó engu um valda mjaltaröð eins og gefúr að skilja. Engum sem hingað er kominn í lestrinum dylst að mjaltagryfja og láglínumjaltakerfi er sú gerð mjaltakerfis sem ég mundi velja væri ég kúabóndi. Eg tel að sam- keppni sú sem nú er á markaðn- um geri gert fleiri bændum kleift að fjárfesta í láglínukerfi og byggja mjaltabás. Þrjár til Qórar tegundir láglínukerfa eru nú fáanlegar á íslenska markaðnum, allt ágætis búnaður með örlítið mismunandi útfærslum. Mjaltavélmenni Þá komum við að nýjustu upp- finningunni, þ.e. mjaltavélmenn- inu svokallaða. Þar verður fátt um svör því að ég veit alltof lítið um þann búnað til að fara að gefa nokkur ráð hvað hann varðar. Ég vil þó segja þetta, við munum fylgjast glöggt með þeim stórhuga bænd- um sem riðu á vaðið og læra af reynslu þeirra næstu tvö árin eða svo og hlusta eftir skoðunum þeirra að þeim tíma liðnum. Það verður þó að benda á þá stað- reynd að annar mjaltavélarisi kynnti nýlega ámóta grip og Lely, jafnvel betri að þeirra áliti, þannig að samkeppni þeirra hlýt- ur að leiða af sér verðlækkun og betri grip þeim kaupendum til hagsbóta sem á eftir koma. Ég spái því að verð vélmennisins lækki mjög á næstu árum og mitt ráð er því, bíðið rólegir um skeið. Með von um að greinin hafa gagnast einhverjum. FREYR 11/99 - 13

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.