Freyr

Årgang

Freyr - 01.10.1999, Side 7

Freyr - 01.10.1999, Side 7
Miklar breytingar eru nú að eiga sér stað í leiðbeiningaþjónustu og heíur Búnaðarsamband Suðurlands m.a. sett í gang verkefnið Sunnu sem felur í sér að bændur fá ákveðinn leiðbeiningarpakka gegn gjaldi. Amar hefur tekið þátt í þessu verk- efni. „Þetta fyrirkomulag mun veita búnaðarsamböndunum ákveðið að- hald því nú verða þau að auka við þekkingu sína og selja sig til að bændur vilji nota þjónustu þeirra. Það þarf líka að gera mikið átak til að fylgjast betur með nýjungum er- lendis. Það er líka alveg ljóst að það er lagt mun meira fjármagn i rann- sóknarstarf og leiðbeiningarþjónustu í landbúnaði erlendis en hér heima.“ Arnar er hins vegar á því Búnað- arsamband Suðurlands eigi ekki að reka tilraunabú eins og gert er í dag. „Mér fyndist eðlilegt að til- raunabúin væru t.d. á Hvanneyri eða á þeim stöðum þar sem þekk- ingin er fyrir hendi. Þessi bú verða líka að vera af ákveðinni stærðargráðu til að þau geti talist nothæf sem tilraunabú." Kvóti sem allra lengst Misjafnar skoðanir hafa verið á því hvernig best sé að stjórna mjólkurframleiðslunni, sérstaklega í kjölfar vandamálsins sem skap- aðist vegna mikillar umframmjólk- ur í vor. Arnar segist vona að kvótakerfið verði áfram við lýði. „Það eru engar forsendur til að leggja þetta kerfi af í núverandi mynd. Framleiðslan er í jafhvægi nema þegar mjólkursamlögin gera mistök á borð við þau sem þau gerðu síðastliðið haust þegar þau lýstu því yfir að próteinhluti allrar umffammjólkur yrði greiddur. Þá fór allt upp í loft. Þess vegna óska ég þess að kvótinn verði sem allra lengst og að verðið á kvótanum stýrist af framboði og eftirspurn.“ Arnar telur það með ólíkindum að ekki hafi verið gripið í taumana áður en mjólkurframleiðslan var orðin alltof mikil. „Við Sunnlend- ingar erum hins vegar í töluvert annarri aðstöðu en aðrir þar sem bændur eiga afurðastöðvarnar sjálfir. Það hlýtur því að vera hags- munamál okkar að stöðva þetta. Þarna eru stjórnendur afúrðastöðv- anna ábyrgir og það er ljóst að þeim urðu á mikil mistök og hefðu átt að grípa miklu fyrr inn í. Það vissu allir hvert stefndi en menn biðu og vonuðu að þetta myndi lagast sem svo gerðist ekki. Það gengur ekki að reka fyrirtæki af svona ábyrgðarleysi. Bændur brugðust líka mjög einkennilega við. Þeim var lofuð greiðsla upp á 22-25 krónur fyrir litrann af umframmjólk og settu þá allt af stað. Ef menn hafa efni á að fram- leiða fyrir þetta verð þá hafa þeir líka efni á að kaupa kvóta. Þessi mistök eru hins vegar gríðarleg og allir munu stórtapa á þessu.“ Amar telur að framtíð kúabú- skaparins ráðist af því hvernig mönnum gangi að tileinka sér nýj- ungar. „I fjósbyggingum felst fram- tíðin í lausagöngufjósunum en ég hef trú á að mjólkurróbótamir eigi eftir að hafa töluverð áhrif í þeim málum líka. Hins vegar verður að viðurkennast að þegar búum fækk- ar samhliða því að þau stækka verð- ur erfiðara að halda hinum dreifðu byggðum lifandi. Það er stórt vandamál sem menn sjá ekki ennþá hvemig hægt er að leysa því að sveitimar verða ekki mjög lífvæn- legar ef bændum fækkar verulega. Hitt er svo annað mál að krafa neyt- enda er sífellt lægra vöruverð en bændur verða að gæta þess að ganga ekki það langt í þeim efnum að einungis verði í boði annars flokks landbúnaðarafurðir," segir Arnar að lokum. HI Hver er hlutur bóndansí smásöluverðinu ? í Frakklandi hafa um árabil átt sér stað hörð orðaskipti milli bænda og smásöluverslana um hlut bóndans í smásöluverðinu og álagningu verslunarinnar. Samtök franskra bænda hafa barist fyrir því að við verðmerk- ingu matvara sé einnig gefinn upp hlutur framleiðandans í end- anlegu verði og sýna neytendum með þvi móti að það séu ekki þeir sem halda verðinu uppi. Nýlega hefur landbúnaðarráð- herra Frakklands ákveðið að merkja skuli ákveðnar vörur bæði með smásöluverði og því verði sem bóndinn fær fyrir sinn hlut. Ákvörðunin varðar vörur þar sem framleiðendaverð hefur verið afar lágt svo sem tómata, gúrkur, epli, perur, apríkósur og vínber. Þetta er í fyrsta sinn sem bændasamtökum tekst að fá þess- um kröfum framfylgt, en reglurn- ar gilda að svo stöddu í 1-3 mán- uði, eftir vörum. Að þeim tíma liðnum mun ráðherrann ákveða hvort reglurnar eigi að gilda um fleiri vörur þar sem framleiðenda- verðið er lágt og um gildistíma þessara ákvarðana. (Internationella Perspektiv nr. 26/1999). Forfallaþjónusta í dönskum landbúnaði Forfallaþjónusta í landbúnaði í Danmörku hefúr um árabil notið framlags á fjárlögum en nú hefúr verið ákveðið að fella þær greiðslur niður. Danski fjármála- ráðherrann, Mogens Lykketoft, áætlar að árlegur sparnaður af þvi fyrir ríkið nemi um d.kr. 35 millj. Danir hafa umárabil rekið for- fallaþjónustu í veikindatilfellum bænda og barna þeirra sem og við endurmenntunarnám þeirra. Á síðasta ári nýttu um 10 þúsund bændur sér þessa þjónustu. (Boncleblaclet nr. 36/1999). FREYR 11/99 - 7

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.