Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.02.2003, Qupperneq 17

Freyr - 01.02.2003, Qupperneq 17
Gróffóðuröflun á kúabúí Erindi frá Ráðunautafundi 2003, aukið og endurbætt Iþessari grein er sagt frá þeim breytingum sem ég hef gert á gróffóðuröflun á búi mínu undanfarin ár sem m.a. felast í því að ég nota nú- orðið verktaka við heyskap. Einnig reyni ég að skýra áhrif þessara breytinga á búskap minn. Inngangur Jörðin Stóru-Akrar I er um 100 ha að stærð, þar af um 40 ha afgirt fjalllendi. Tún og annað ræktun- arland er um 50 ha. Meginhluti þess er frjósöm framræst mýri. Frá 1997 hef ég leigt um 10 ha til komræktar og slægna. Túnin skiptast jafnt á tvö svæði og er fjarlægðin þar á milli um 2 km. Þetta er að sjálfsögðu mikilvægt þegar þau em öll undir í heyskap samtímis. Fram til ársins 1995 var fram- leiðslan á búinu um 95.000 lítrar mjólkur árlega og rúm 2 tonn kindakjöts. Sumarið 1997 breytti ég fjósinu þannig að ég setti bása- röð í geldneytastíumar, hætti nautaeldi og setti upp aðstöðu fyr- ir kvígur í hesthúsi og hluta fjár- húsa. Þá keypti ég kýr, kvígur og kvóta til að fylla í þessa stækkun. Síðan hefur framleiðsla mjólkur aukist stöðugt og var á síðasta ári 186.313 lítrar. Síðastliðið haust vom lögð inn um 4 tonn af kinda- kjöti. Faðir minn hefúr alla tíð séð að miklu leyti um fóðmn kúnna og segja má að hann hafi verið eini fasti vinnukrafturinn á búinu auk mín frá 1990. Á sumrin hef ég alltaf ráðið einn aðstoðarmann og nú síðustu tvo vetur hefúr einnig verið vetrarmaður í hlutastarfi. Segja má að vinnuafl hafi alla tíð verið í lágmarki. VERKTAKI I HEYSKAPINN Heyöflun búsins var í föstum skorðum allt til 1997. Þá heyjaði ég í 250 rúmmetra votheystum og rúllaði afganginn. Eg átti þau tæki sem þurfti til að heyja í tum- inn, en rúllur heyjaði ég í félagi við nágranna minn. Ég átti fast- kjama rúlluvél en hann pökkunar- vél og þannig heyjuðum við sam- an á báðum jörðunum. I miðjum heyskap sumarið 1997 bilaði rúlluvélin. Bessi Vésteinsson í Hofsstaðaseli, sem hafði stundað verktöku við heyskap í nokkur ár, var þá nýbyrjaður að heyja í fer- bagga (80x80x200 cm). Ég fékk hann til að ljúka fyrri slættinum og líkaði þessi aðferð strax mjög vel. I framhaldinu samdi ég við hann um að bagga og pakka fyrir mig það sem eftir var, hána og grænfóðrið. Síðan gerði ég við rúlluvélina og seldi hana, en þá var nágranni minn, sem unnið hafði með mér, að hætta búskap. Þó að þetta líti út fyrir að vera skyndiákvörðun, var alls ekki svo. Ég hafði velt talsvert fyrir mér leiðum til að minnka vinnuálag og skapa tíma til að taka sumarfrí með fjölskyldunni og með þessu sýndist mér gefast svigrúm til þess. Árið 1999 hætti ég að heyja í votheystuminn. Setti í hann stór- an seglpoka og geymi í honum heimaræktað kom. Ég seldi allt úthaldið við tuminn, heyhleðslu- vagn, blásara, rör og dreifitúðu, ásamt 25 ára gömlum Zetor sem notaður hafði verið síðustu árin til að knýja blásarann. Samtals seldi eftir Gunnar Sigurðsson, bónda, Stóru-Ökrum, Skagafirði ég vélar og tæki vegna breyttrar aðferðar við heyskap fyrir 700 þúsund krónur. Frá árinu 2000 hefúr öllu mínu heyi verið pakkað í plast. Heildarheyskapur á búinu hefúr verið um 1.000 ferbagg- ar/rúllur. Fóðurþörfin er hins veg- ar um 800 ferbaggar. Ég hef því selt talsvert af heyi, en sá markað- ur hefur farið minnkandi þannig að haustið 2001 sá ég fram á að fyma allmikið af heyjum og sagði þá upp leigu á um 10 hektömm komlands og færði alla komrækt heim. Með þessu minnkaði ég heyskap um nær fjórðung. Frá árinu 1993 hef ég ræktað bygg til þroska. í byrjun var rækt- unin í smáum stíl, en effir stofnun einkahlutafélags um rekstur þreskivéla árið 1996 jókst hún talsvert. Segja má að sú sam- vinna, sem komræktin krefst, hafi víkkað mikið sjóndeildarhringinn hvað varðar samnýtingu á tækjum og kaup á þjónustu verktaka. Ekki má gleyma því að til að hægt sé að kaupa út ákveðin verk þarf einhver að vera tilbúinn að vinna þau. Ég legg áherslu á að verktakinn hafi afkastamikil tæki í heyskapinn. Þannig tel ég þjón- ustuna best tryggða “á réttum tima”. Við Skagfirðingar höfúm verið svo heppnir að hafa í héraði Freyr 1/2003 - 13 |

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.