Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.2003, Blaðsíða 41

Freyr - 01.02.2003, Blaðsíða 41
Skógrækt - ný búgrein á íslandi Skógrækt á jörðum bænda hefur aukist mjög undan- farin ár með tilkomu svo- kallaðra landshlutabundinna skógræktarverkefna. Þau star- fa nú í öllum landshlutum og eiga því bændur á landinu nú jafna möguleika á að fá fram- lög til skógræktar. Upphaf ríkisstyrktrar nytja- skógræktar á Islandi má rekja til ársins 1970 þegar Fljótsdalsáætl- un var samþykkt með lögum frá alþingi. Markmiðið var að rækta skóg í samvinnu við bændur í Fljótsdal þar sem skógræktarskil- yrði þóttu einna best á Islandi. Þetta verkefni gekk það vel að ástæða þótti til að gefa bændum á fleiri stöðum á landinu tækifæri til að taka þátt í svipuðu verkefni. Árið 1983 voru samþykkt lög um nytjaskógrækt á bújörðum en þau gerðu ráð fyrir að landeigendur á völdum stöðum á landinu, þar sem skógræktarskilyrði væru hvað hagstæðust, fengju framlög til skógræktar. Fljótlega komu í ljós jákvæð áhrif þessara verkefna á land og lýð þannig að stofnað var til verk- efnisins Héraðsskóga með lögum árið 1991. Það verkefni var viða- meira en þau sem áður höfðu ver- ið, landeigendur á héraði fengu greiddan 97% af stofnkostnaði við skógræktina þannig að bændur gátu nú í fyrsta sinn á Islandi haft atvinnu af því að rækta skóg á jörðum sínum. Fljótt eftir stofhun Héraðsskóga voru augljós þau já- kvæðu áhrif sem verkefhið hafði á byggðastyrkingu á svæðinu. Bú- setuþróun í þeim hreppum sem aðilar voru að verkefninu var já- kvæð á sama tíma og fólksfækk- un varð í öðrum sveitarfélögum á Austurlandi. Árið 1997 voru lög um Suður- landsskóga samþykkt frá alþingi og í kjölfarið lög um landshluta- bundin skógræktarverkefni sem heimiluðu landbúnaðarráðherra að stofna til verkefna í öðrum landshlutum. Norðurlandsskógar, Vesturlandsskógar, Skjólskógar á Vestfjörðum og Austurlandsskóg- ar urðu síðan að veruleika árin 2000 og 2001. Landshlutaverkefnin eru öll sjálfstæðar einingar sem hafa þó mikla og góða samvinnu sín á milli svo og við Skógrækt ríkisins og skógræktarfélögin í landinu. efiir Valgerði Jónsdóttur, framkvæmda- stjóra Norðurlands- skóga Sumum kann að þykja það óþarfi að hafa svo mörg verkefni í stað þess að eitt verkefni væri yfir allt landið. Rökin fyrir því að verkefnin séu sjálfstæðar einingar eru mörg og það hefúr sýnt sig á þeim árum sem þau hafa starfað að þetta fyrirkomulag virkar vel og hefúr ekki í för með sér meiri Skógræktarmenn framtiðarinnar. (Ljósm. Valgerður Jónsdóttir). Freyr 1/2003 - 37 |

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.