Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.02.2003, Qupperneq 40

Freyr - 01.02.2003, Qupperneq 40
verið kunn og því hvergi getið í skrifum um hann til þessa. Hér er um að ræða ritgerð hans Um æðar- fugl. Hún hafði legið í handriti á Landsbókasafhi Islands (JS 607 4to). Það var Ævar Petersen fugla- fræðingur á Náttúrufræðistofnun sem dró hana fram og lét búa til prentunar og bauð til birtingar í ritinu Æðarfúgl og æðarrækt á ís- landi er kom út á síðasta ári. Ég vil nú ljúka þessu með þeir- ri umsögn sem Ævar gefur Magn- úsi sem náttúrufræðingi eða bú- fræðingi. Þar segir: Sumar athuganir Magnúsar eru enn í fullu gildi og mörg viðhorf hafa haldist óbreytt í þessar tvær Molar Strangari REGLUR UM FLUTNING Á BÚFÉ i ESB Landbúnaðarráðherrar innan ESB hafa sett nýjar reglur um flutning á búfé milli landa sam- bandsins. Fylgst verður betur með ástandi búfjárins meðan á flutningi stendur og samstarf landanna í þeim efnum verður aukið. Samkvæmt nýju reglunum eiga dýralæknayfirvöld í upp- runalandi búfjárins að bera ábyrgð á flutningunum á leiðar- enda, en lönd ESB skulu koma á fót kerfi sem gerir það kleift að miðla upplýsingum um ástand búfjárins. Reglugerð um þessi mál er í smíðum og er þess vænst að hún verði tilbúin með vorinu, en embættismannaráðið ber ábyrgð á því verki. Þýskaland og fleiri lönd höfðu sett fram kröfu um að hámarks flutningstími í einu væri 8 klst. Talið er að sú krafa nái ekki fram að ganga. (Landsbygdens Fotk, nr. 51-52/2002). Samrekstur kúabúa í Noregi Fjöldi kúabúa í Noregi, þar sem fleiri en einn bóndi á aðild, jókst um 270 bú á nýliðnu ári, 2002. í lok ársins voru samrekin bú þannig orðin 970 í landinu eða um 10% norskra kúabúa, að sögn blaðsins Stavanger Aften- blad. Samreknum búum hefur fjölg- að ár frá ári án tillits til þess hvaða fyrirgreiðslu þau hafa fengið hjá hinu opinbera. Algeng- ast er að tveir eða þrír bændur standi að búum sem þessum en dæmi eru um fleiri aðila að sama búinu. Samrekin kúabú eru al- gengust í fylkjunum Opplandi, Norður-Þrændalögum og Roga- landi. (Bondebladet nr. 3/2003). Kúariða á undan- HALDI í EVRÓPU ESB hefur birt nýtt yfirlit yfir stöðu kúariðunnar i Evrópu. Sam- kvæmt því höfðu fram að 1. októb- er 2002 fundist 11.000 tilfelli af veikinni í Stóra-Bretlandi en í öðr- um löndum ESB 3.200 tilfelli alls. Flestir nautgripir, sem smitast hafa af kúariöu, vom fæddir á ár- unum 1994-1996. Þaðbendirtil þess að gripum sem smitast hafa eftir 1996 hafi fækkað og að varn- araðgerðir, sem gripið voru til á ár- unum 1996-1997, hafa borið ár- angur. Nú er leitað að riðusmiti i kjöti af öllum gripum sem slátrað er 30 mánaða og eldri og hefur aldir sem síðan eru liðnar. í rit- gerðinni túlkar hann reynslu sína af æðarvarpi og öðru líffíki sem tengist æðarfúgli á óvenjunæman og mörgu leyti skynsamlegan hátt. Ymislegt áhugavert kemur fram um lifnaðarhætti æðarfúgls, refs og annarra dýra sem enn eru í fullu gildi. veikin fundist í aðeins einum af hverjum 30 þúsund gripum. Árið 2001 fundust í Stóra-Bret- landi 1194 gripir með kúariðu og í Frakklandi 277, en I Austurríki, Finnlandi og Grikklandi aðeins einn gripur í hverju landi. (Bondebladet nr. 3/2003). ESB BANNAR ÁFRAM NOTKUN HORMÓNA í LANDBÚNAÐI Landbúnaðarráðherra ESB hafa samþykkt að banna áfram inn- flutning á kjöti til sambandsins af búfé sem hefur fengið hormóna- meðferð. Að áliti sérfræðinga get- ur neysla kjötsins valdið krabba- meini. Bandarískir sérfræðingar halda því hins vegar fram að kjöt- ið sé skaðlaust. Bannið er tímabundið fyrir fimm tegundir hormóna en ótímabundið fyrireitt, 17-beta- ostradiol, þar sem ótvírætt sé að það sé krabbameinsvaldandi. Árið 1999 gerði Alþjóða við- skiptastofnunin, WTO, samþykkt um að bann ESB við hormóna- notkun væri ólöglegt og frá þeim tíma hafa evrópskir útflytjendur matvæla til Bandaríkjanna þurft að greiða refsitolla af matvælum sem flutt hafa verið út til Banda- ríkjanna. (Bondebladet nr. 51-52/2002). | 36 - Freyr 1/2003

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.