Freyr - 01.10.2003, Page 16
Sjálfbær landbúnaður
J. Umhverfis- gæði Hagræn sjálfbærni Félags- umhverfi
Umhverfisgæði
Á Jarövegs- gæði Vatns- gæði Loft- gæði
/ ~ ^
Jarðvegsgæði
Eðlis- eiginleikar Efna- eiginleikar Líffræðilegir eiginleikar
3. mynd. Samband jarðvegsgæða, almennra gæða umhverfisins og hvernig
þetta kemur að mati á sjálfbærni í iandbúnaði (2 og 7).
Útivist og endurnœring
Hvar og hvaða útivist er stund-
uð fer mikið eftir landslagi og
jarðvegi, t.d. hversu þurrt er um.
Almenn vellíðan og sérstaklega
ræktun í kringum sumarbústaði og
á útvistarsvæðum er beint og
óbeint háð jarðvegi á staðnum. A
4. mynd.Jarðvegssnið úr mýri á Torfalæk.
Nokkur hlutverk þessa jarðvegs:
• Framleiðsla matvæla - landið var nýtt til
beitar, nú sem tún. Afbragös land til
ræktunar
• Búsvæði jarðvegslífs - mjög mikiö gildi
• Miðlun vatns og grunnvatnsmyndum -
mjög hátt gildi
• Varðveisla náttúrminja - öskulög og
jurtaleifar
• Vaxtarskilyröi fyrir villtan gróður
• Binding og eyðing úrgangsefna
• Hráefni - fyrir framræslu mátti stinga eða
rista torf af yfirborði en mó úr neðri lögum
• Útivist og endurnæring
• Mannabústaöir og samgöngur -
þjóðvegur 1 erskammt undan.
Jarðvegssnið úr mýri á Torfalæk
. Jarðvegurinn er rúmlega 2 m að dýpt.
• Myndin nær niður á u.þ.b. 1 m dýpi.
íþróttasvæðum og reiðvöllum
skiptir undirlagið og jarðvegurinn
í raun meginmáli.
Mcmnabústaðir og samgöngur
Byggingarframkvæmdir og
vegalagning er auðveldust þar
sem undirlagið er þétt og jarðveg-
ur þunnur. Þar sem landi hefur
verið lokað með byggingum,
vegalagningu, bílastæðum eða
plönum getur jarðvegur ekki leng-
ur gegnt neinu af öðrum hlutverk-
um sínum og þessar aðgerðir eru
óafturkræfar. Land, sem þannig
hefur verið lokað, verður ekki
notað til matvælaframleiðslu.
Jarðvegsgæði
Gæði jarðvegsins eru metin út
frá hæfni hans til að gegna hlut-
verkum sínum í nútíð og ffamtíð
hvort sem landið er nýtt eða ekki
(2). Á landi, sem nýtt er til land-
búnaðar, er litið til þátta sem
stuðla að stöðugri og öruggri
framleiðslu hágæða matvæla (6).
En til hvers þarf að huga að
jarðvegsgæðum? Þar sem fylgst er
með jarðvegsgæðum má koma í
veg fyrir að frjósemi rými vegna
rofs, útskolunar eða ofauðgunar af
næringarefnum, koma í veg fyrir
að skaðleg efni safnist upp í jarð-
vegi og koma í veg fyrir að efni úr
uppgreftri eða það, sem plægt er
upp úr dýpri lögum, rýri ekki upp-
skeru að magni og gæðum. Það er
aðferð til að meta land og til að
auka hagkvæmni í ræktun. Við
framkvæmdir þarf að huga að
gæðum jarðvegs sem og annarra
náttúrauðlinda. Við framkvæmdir
þarf að athuga gæði þess jarðvegs
sem dreift er yfír og gróður á að
ná rótfestu i.
Jarðvegsgæði eru metin eða
mæld, helst með einfoldum og
ódýrum aðferðum. Þegar gæði
stórra svæða eru metin þá er
gjarnan litið til landslagsins í
heild, svo sem rofs, ástands gróð-
[ 16 - Freyr 8/2003