Freyr

Volume

Freyr - 01.10.2003, Page 24

Freyr - 01.10.2003, Page 24
Staða og framtíð ræktar á íslandi r undanförnum árum hafa flestar þær fréttir, sem almenningi hafa borist af loödýrarækt hér á landi, verið neikvæðar. Nú er það alls ekki svo að einungis hafi neikvæðir hlutir verið að gerast í greininni, frekar má leita skýringanna í því að við, loðdýrabændur, höfum verið linir við að koma því jákvæða á framfæri og svo virðist sem fréttamenn hafi meiri tilhneig- ingu til að þefa uppi slæmar fréttir en góðar - hjálparlaust. Það er að sönnu rétt að í þessari búgrein, eins og flestu nýju sem menn taka sér fyrir hendur, hafa verið gerð mistök. Af þeim ber mönnum að læra og það höfum við loðdýrabændur gert. Eftir mjög mörg misjöfn ár hvað verð afúrða viðkemur er nú svo komið að síðustu VA-2 árin hefur verð minkaskinna verið stöðugt og verður að teljast nokk- uð þokkalegt. Verð refaskinna er nú um þessar mundir mjög gott. Af þessu væri eðlilegt að draga þá ályktun að afkoman væri allavega bærileg. Það er að sönnu rétt mat á afkomu þeirra bænda sem skul- da hóflega. Því miður er það ekki raunin með alla. Þeir, sem lentu í því að safna skuldum á þeim árum þegar verðið var hvað lægst, fá nú ekki notið hins góða verðs í aukn- um tekjum. Því miður er sú vaxta- stefna rekin hérlendis að íjár- magnið skuli og eigi að soga til sín eins mikið og kostur er og gildir þá einu hvort „kýrin“ er drepin eða hvort hún skrimtir. Ef- laust hugsa þeir sem setja þessar leikreglur sem svo að það finnist alltaf nýjar “ kýr” til að mjólka. Vaxtaokrinu þarf að linna hér á landi þannig að hinir hefðbundnu .* - ' ‘:v Platínurefur. (Freysmynd). loðdýra- eftir Björn Halldórsson, formann Sambands ísl. loðdýra- bænda, Akri, Vopnafirði atvinnuvegir, sem eru lítt eða ekk- ert hreyfanlegir, geti fengið að þrífast og dafna. Okkar atvinnu- grein getur ekki flúið land og þannig fundið sér hagstæðara um- hverfi að vinna í, öfugt við það sem margar af hinum svokölluðu „nýju“ atvinnugreinum geta auð- veldlega. Takmarkanir Á LOÐDÝRARÆKT í EVRÓPU A undanförnum árum hefur aukist sú umræða í sumum ná- grannalöndum okkar að banna beri loðdýrarækt. I Bretlandi er þingið búið að banna þessa at- vinnugrein og það án þess að menn hafí þurft að færa fram önn- ur rök en sk. „public morality“ eða einhvers konar óskilgreinda andstöðu almennings. Sama um- ræða er nú á fullu í Hollandi og til eru þeir sem spá að málum lykti þar á sama veg og í Bretlandi inn- an 10 ára. Sl. vetur var brennt til grunna nýbyggt loðdýrabú í Þýskalandi. Talið er að þar hafí verið að verki fólk sem gerir ekki skýran grein- armun á réttu og röngu. A Ítalíu eru uppi hugmyndir um að minkar, sem haldnir séu í búr- 124 - Freyr 8/2003

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.