Freyr - 01.10.2003, Page 35
Landbúnaðarháskólinn á
Hvanneyri
Brautskráning búfræðinga og kandídata vorið 2003
Brautskráning búfræð-
inga og kandídata frá
Hvanneyri fór fram 24.
maí sl. Utskrifaðir voru 23 bú-
fræðingar, þar af tveir sem
fjarnemar. Nöfn þeirra fylgja
hér með. Einnig voru útskrifað-
ir 12 búfræðikandídatar með
BS-90 próf frá skólanum, 9 af
búvísindabraut og 3 af landnýt-
ingarbraut, sjá annars staðar í
þessu blaði.
Hæstu einkunn á háskólaprófí
hlaut Gunnfríður Elín Hreiðars-
dóttir. Hún stundaði nám á búvís-
indabraut og fékk einkunnina
8,78. Á landnýtingarbraut var
hæsta einkunn 8,30, en hana hlaut
Cathrine Helene Fodstad. Hæstu
einkunn á búfræðiprófi hlaut svo
Sigurbjörg Sigurbjömsdóttir, með
einkunnina 8,64. Þetta er í fyrsta
sinn sem nemendur útskrifast eftir
að hafa stundað allt sitt háskóla-
nám við LBH eftir að skólinn var
formlega gerður að háskóla með
lögum árið 1999.
í skólaslitaræðu sinni sagði
Magnús B. Jónsson, rektor, m.a.:
í dag brautskráum við búfræð-
inga og fyrstu nemendur sem lok-
ið hafa námi sinu eftir breyting-
una á háskólanámi skólans sem
gerð var í kjölfar nýrra búfræðslu-
laga. Þá var búfræðiprófið fellt
niður sem undanfari háskóla-
námsins og námið lengt í 4 ár til
búfræðikandidatsprófs og nú
brautskrást fyrstu nemendurnir
sem lokið hafa BS-90 prófi frá
skólanum.
Þær breytingar sem urðu á
skipulagi skólans með stofnun
Landbúnaðarháskólans em smám
saman að koma í ljós. I kjölfar
Nýir nemendagarðar á Hvanneyri. (Freysmynd).
Freyr 8/2003 - 35 |