Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.2002, Qupperneq 2

Freyr - 01.09.2002, Qupperneq 2
Molar NlÐURSTAÐA EKKl KOMIN UM STYRKl TIU NÝRRA UANDA í ESB Viöræður eru nú í gangi um fjölgun aðildarlanda ESB. Tíu lönd sækja um inngöngu en stefnt er að því að fjögur lönd fái aðild árið 2004. Eins og kunnugt er veitir ESB miklu fé til landbúnaðar í löndum sinum og er það ein megin ástæða þess að ný lönd sækjast eftir aðild að sambandinu. Yfirmaður landbúnaðarmála í ESB, Franz Fischler, hefur meira og minna lofað nýju löndunum þessum greiðslum, en þau lönd innan ESB, sem greiða meira í sjóði ESB en þau fá til baka, hafa stigið á bremsurnar. Um langt skeið hafa það verið lönd í sunn- anverðri Evrópu sem hafa þegið mest framlög til landbúnaðar miðað við það sem þau hafa greitt. Sviþjóð, Holland, Þýskaland og Stóra-Bretland hafa greitt hlutfallslega mest af þessum framlögum umfram það sem þau hafa þegið og nú standa spjótin á þeim að greiða enn meira. Þjóðverjar hafa reiknað út að ár- leg nettóútgjöld þeirra til land- búnaðarmálaflokka ESB muni tvöfaldast þegar öll löndin tíu hafa fengið aðild en þau eru nú níu milljarðar evra. Embættismannaráð ESB hefur lagt til að framlög til nýrra aðild- arlanda verði í upphafi aðeins 25% af því sem núverandi lönd fá, en hækki síðan í 100% á tíu árum. Þjóðverjar, Bretar, Svíar og Hollendingar telja jafnvel þá lausn of dýra og fela i sér marg- háttaða óvissu. Stefna embættismannaráðsins nýtur hins vegar umfram allt stuðn- ings Frakklands, Ítalíu, Spánar og Portúgals sem berjast hart gegn minni styrkjum, en af þessum lönd- um njóta Frakkar mestra styrkja. „Fjögurra landa gengið", eins og Þýskaland, Bretland, Holland og Svíþjóð eru kölluð, líta á nú- verandi stöðu, varðandi fjölgun aðildarlandanna, sem siðasta tækifæri til að endurskoða land- búnaðarstefnuna. Dragist sú endurskoðun fram yfir stækkun sambandsins um 10 lönd verði nánast ógerlegt að leggja niður eða draga úr þessum styrkjum. Þannig hafa myndast tvær meg- in fylkingar og átök milli þeirra geta seinkað því að ný lönd fái aðgang að ESB. Það flækir enn málið að kosningar fara fram í Þýskalandi í október nk. og fram að þeim vill þýska ríkisstjórnin ekki taka neinar ákvarðanir í málinu. Þá verður einnig fyrst að fjalla um hvort end- urskoða eigi hina almennu land- búnaðarstefnu ESB, oft nefnd CAP, en sú stefnumörkun ákveður í raun hver framlögin verða og hvað hvert land greiðir og þiggur. Löndin rétt á að vita hvaða skyldur þau taka á sig, sagði Gunter Pleuger, fulltrúi í þýska utanrikis- ráðuneytinu, á ráðherrafundi ESB i Luxemburg i júní sl. Bretland og Svíþjóð vilja einnig fresta ákvörðunum um styrki til landbúnaðarins til haustsins. Þá fyrst, þegar ráðherranefndin hef- ur lagt fram tillögur sínar um breytingar á CAP, er timabært að ræða þessi framlög. Þetta tvennt verði að fara saman. Frakkland hvetur á hinn bóginn „fjögurra landa gengið" til að fallast á tillögur embættismannaráðsins og telur sjálfsagt að bæði núveran- di og ný aðildarlönd ESB njóti óbreyttra styrkja. ESB leggur nú áherslu á að Ijúka öllum öðrum þáttum í samn- ingnum við ný aðildarlönd sem fyrst í trausti þess að niðurstöða um framlög til landbúnaðar finnist eftir kosningamar í Þýskalandi í haust. Lokatækifæri til að ná sam- komulagi um stækkun sambands- ins 1. janúar 2004 er á fundi í Kaupmannahöfn 13. desember nk. (Intemationella Perspektiv nr. 24/2002). Bandaríkin vilja LEGGJA NIÐUR ÚTFLUTNINGSBÆTUR Á BÚVÖRU Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur lýst sig reiðubúna að semja um að allar útflutningsbætur á búvörur verði lagðar niður. Bandaríkin segjast hins vegar munu halda áfram að greiða þær uns bindandi alþjóðlegur samningur um afnám þeirra verður gerður. Bandaríkin hafa lagt til innan Alþjóða viðskiptastofnunarinnar, WTO, að þessar bætur verði felldar niður innan fimm ára. ESB hefur hins vegar ekki lagt fram neina slíka tillögu. Ríkisstjórn Bush kennir útflutn- ingsbótunum um efnahagsvanda- mál í mögrum þróunarlöndum. Samkvæmt bandarískri rannsókn ver ESB árlega um tveimur milljónum evra, 160 milljörðum ísl.kr., í útflutningsbætur á bú- vörur sínar, sem er talið hundrað sinnum meira en Bandaríkin gera og um 90% af öllum útflutnings- bótum i heiminum. Jafnfram verndar ESB eigin búvöruframleiðslu með 30% toll- um á búvörur. Kanada leggur á 23% tolla á innflutning búvara, Japan 50% en Bandaríkin 12%. (Landsbygdens Folk nr. 27-/2002). | 2 - Freyr 8/2002

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.