Skátablaðið - 01.02.1985, Page 4
SKJALA-
ÞÝÐINGAR
Nú er frost í höllinni.
Þegar vinnsla þessa
blaðs stóð yfir lokaði
hitaveitan fyrir heita
vatnið í skátahúsinu á
Snorrabrautinni vegna
skulda. Það skal því
engan undra að hér í
blaðinu kveði við
nokkuð (s)kuldalegan
tón á stundum. Von-
andi hefur leyst úr
þessum málum núna
þegar blaðið er komið
út annars er hætt við að
Bandalagið þurfi að
ráða skjalaþýðendur
með vorinu.
Ertu með fjallaregl-
urnar á hreinu? Ef svo
er ekki þá geturðu
annað hvort
lesið
Skáta-
blaðið eða keypt þér
Valencia súkkulaði.
Þeir hjá Landssambandi
hjálparsveita skáta
fengu þá hjá Freyju til
að setja Fjallareglurnar
með stóru effi á súkkul-
aðið hjá sér (umbúð-
irnar altso). Nú geta
semsagt allir farið í úti-
legu með reglulegt
súkkulaði og orkuríkt.
3. FVLöSTU VEL MEÐ
VEÐURÚTLITI OG
VEÐURSPÁ
Vestfirskir, sem og norðlenskir skátar hafa afýmsu tilefni látið kynskiptingu lönd og leið.
Hér er hluti af starfsliði Fjóðrungsmóts Vestfjarða '83
Stefnan í skátajafnréttinu er Norð-Vestur
Jafnréttissinnaðir skátar
hafa oft furðað sig á því af
hverju það séu kynskipt
skátafélög á Isafirði og
Akureyri. í gegnum tíðina
tilraunir til sameiningar
kynjanna (þ.e.a.s. skáta-
félaganna) en ekki gengið
einhverra hluta vegna.
Nú heyrum við að hreyf-
ing sé á þessum málum
bæði á Akureyri og ísa-
firði. Dróttskátarnir á
báðum stöðunum hafa
starfað saman undanfarin
ár og á ísafirði verið í
sömu skátasveitinni. Á
ísafirði hafa Einherjar og
Valkyrjan sama skáta-
heimilið, starfa saman á
hátíðisdögum .s.s. við 17.
júní undirbúning. Það er
þó náttúrlega eitt sem
félögin hafa ekki sameigin-
legt og það er nafnið, það
þyrfti væntanlega að sam-
eina líka? Hvernig líst
ykkur á Einkyrjan eða
Valherjar?
Á Akureyri hafa raddir
um sameiningu orðið
háværari eftir því sem bær-
inn hefur stækkað. Félögin
hafa fengið sameiginlegt
húsnæði út í þorpi auk
þess sem þau hafa Hvamm
sameiginlega. Þar voru um
daginn haldnir tveir fundir
á sama tíma - foringja-
ráðsfundir Valkyrjunnar
og Skátafélagsins. Á eftir
var svo haldinn þriðji
fundurinn með fulltrúum
af báðum fundunum til að
samræma starfið.
J
4 SKÁTABLAÐIÐ