Skátablaðið


Skátablaðið - 01.02.1985, Blaðsíða 6

Skátablaðið - 01.02.1985, Blaðsíða 6
Skátafélagið Vífill í Garð- abæ verður með Vífils- mótið sitt að þessu sinni í Efri-Dal í Urriðakots- landi, en það ku vera í Heiðmörk. Verður það opið mót, haldið í júlí eða ágúst. Menn geta nú farið að hugsa sér til hreyf- ings . . . Arbúar ætla að bretta upp ermarnar og halda mót við Hafravatn, 8.-9. júní. Þeir hyggjast bjóða örfáum félögum til sín, gjarnan minni félögum. (Það borgar sig ekki að líta of stórt á sig). Vestfirskir skátar láta ekki á sér standa(!) frekar en venjulega. Þeir verða með mót 27. - 30. júní, haldið einhverstaðar á Vestfjarðarkjálkanum. Starfandi skátafélög á SKATASAMBANDSLEYSI Skátasamband Kjalar- nesþings hefur lítið starfað frá því lagt var út í það þrekvirki að halda Fjórð- ungsmótið í Vestmanna- eyjum. Stjórnin hittist fljótlega eftir mótið, en síðan hefur ekki verið haldinn fundur í vetur. Meóal áhugamanna um aukið samstarf innan skáta- sambandsins er óánægja með þetta sinnuleysi stjórnarinnar. Heyrum við að í bígerð sé að halda námskeið í vetrarskátun fyrir flokksforingja í skáta- sambandinu - án samráðs við stjórnina. Ekki þverfótað fyrir SKÁTAMÓTUM Vestfjörðum eru Val- kyrjan og Einherjar á ísa- firði og svo Gagnherjar í Bolungarvík. Garðbúar eru ákveðnir í að halda félagsmót 28. - 30. júní, en hvar það verður veit nú enginn . . . Og ekki má gleyma Hraunbúum í Hafnarfirði, en þeir eru hvorki meira né minna en afmælisbörn á SKÁTAÞING1985 Þessi mynd hér fyrir ofan var tekin á Skátaþingi þegar átrúnaðargoð Skátablaðs- ins Björn Finnsson og Guðmundur Jónsson voru ungir. Það minnir okkur á að nú líður að Skátaþingi en það verður haldið 22. - 24. mars að Illugastöðum á norðurlandi. Kerfisbreytingar verða ofarlega á baugi. Stjórn BÍS vill fjölga skátasam- böndum og yrðu til Skáta- samband Vestfjarða, Skáta- samband Austfjarða, Skátasamband Eyjafjarðar o.s.frv. Valdið á að V nokkru leyti að færast til þeirra og jafnframt á að skipta Bandalagsstjoín í tvennt, eða þannig sko. Framkvæmdastjórn BÍS á að sjá um daglegan rekstur, en aðalstjórn BÍS myndi taka stærri ákvarð- anir. í aðalstjórninni ættu sæti, auk framkvæmda- stjórnarinnar, formenn skátasambanda og sér- sambanda (LHS, og Landsgildi ST.Georgs- skáta). Þá er það bara spurningin: Hvað segir Bjössi Finns um þessa valddreifingu? árinu. Félagið er orðið 60 ára og af því tilefni halda þeir stórt afmælismót um hvítasunnuna. Staðarval er óákveðið þegar þetta er ritað. Mót þetta verður hið 45. í röðinni og opið öllum. Og þá er bara að vita hvenær hvítasunnan er. Akureyrarskátar hyggj- ast standa fyrir skátamóti helgina 8. - 10. ágúst. Mótsstaðurinn hefur ekki verið ákveðinn, né heldur fjöldi þátttakenda en ætli þeir verði nokkuð færri en á Leyningshólamótinu í fyrra. 6 SKÁTABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.