Skátablaðið - 01.02.1985, Síða 14
Benjamfn Axel
framkvæmdastjóri
í viðtali um
ár æskunnar
Viðtal: Þór Ingi Daníelsson Ljósmynd: Jón Halldór Jónasson
Pað hefur ekki farið framhjá neinum að akkúrat núna, á þessari mín-
útu er Æskulýðsár. Sum okkar eru að átta sig á því núna meðan aðrir
lifðu og hrærðust í undirbúningi ársins stóran hluta fyrra árs. Einn
þeirra sem tilheyrir seinni hópnum er Benjamín Axel Arnason, fram-
kvæmdastjóri Bandalags íslenskra skáta (BÍS). Við lögðum leið okkar
á kontór hans í Skátahúsinu til að leggja nokkrar spurningar fyrir hann.
Til að vera gagnrýnir að hætti góðra blaðamanna spurðum við hann
fyrst hvort eitthvað gagn væri í þessu Æskulýðsári.
Mér finnst nú öll ár til bóta, hvort
heldur þau eru tileinkuð börnum,
vatni, plöntum, æsku eða bara líf-
inu sjálfu. Því á hverju ári verður
okkur eitthvað ágengt og reynsl-
unni ríkari. Hvað þetta ár varðar
held ég að það verði til bóta, í það
minnsta fyrir þau félagasamtök
sem að æskulýðsmálum vinna því
það er tvennt sem þau hafa mesta
þörf fyrir, fjármagn og kynningu.
Alþjóðaárið getur orðið stórt
stökk til aukinnar kynningar á
starfsemi æskulýðsfélaga og ég er
viss um að BÍS mun hagnast á
því.
Skátar hafa tekið virkan þátt
í stefnumótun ársins
Hver er hlutur BÍS í stefnu-
mótun Alþjóðaársins?
Bandalagið hefur tekið virkan
þátt í heildarundirbúningi ársins
og hefur því haft veruleg áhrif á
stefnumótun þess. Það er þó ekki
þar með sagt að allt hafi runnið í
þann farveg sem við hefðum
óskað.
Ég sit í nefnd Æskulýðsráðs
Reykjavíkur vegna Alþjóðaársins
og þar að auki hef ég sótt ráð-
stefnu hjá Æskulýðsráði Ríkisins,
Norrænafélaginu, Æskulýðs-
sambandi íslands, Evrópuráðinu
í Strasbourg, Framkvæmdanefnd
Menntamálaráðuneytisins og
fleirum vegna undirbúnings að ár-
inu. Þá má geta þess að við höfum
frá upphafi átt fulltrúa í Fram-
kvæmdanefnd alþjóðaárins.
Evrópubandalög skáta
sameinuð í undirbúningi
ársins
Hvernig hefur undirbúningi
BÍS verið háttað?
Við byrjuðum nokkuð
snemma, eða í febrúar 1982, að
leita upplýsinga um hvað skátar í
öðrum löndum hyggðust gera í til-
efni ársins.
Nokkrum mánuðum síðar
fóru að berast gögn frá Evrópu-
bandalögunum, það er skemmti-
legt að geta sagt frá því að þetta
14 SKÁTABLAÐIÐ