Skátablaðið


Skátablaðið - 01.02.1985, Page 15

Skátablaðið - 01.02.1985, Page 15
er í fyrsta skipti sem Evrópu- bandalag kvenskáta og drengja- skáta sameinast í svo stóru verk- efni sem þessu. Undirbúningurinn hefur miðast við að vinna úr þeim gögnum sem hafa borist og koma þeim áleiðis. Gífurlegt pappírsflóð hefur dunið yfir skrifstofuna erlendis frá vegna undirbúnings, ég gæti trúað að það væru á milli 4 og 5000 lessíður allt í allt. Annars er best að sjá árangur undirbúningsins á þeim verkefn- um sem boðið er uppá. Hvaða verkefni eru það sem BÍS verður með? Þegar hafa verið ákveðin 16 stórverkefni sem koma til fram- kvæmda á árinu. Það er margfalt á við það sem önnur æskulýðsfé- lög hafa á takteinum og í beinu sambandi við það hvað við vorum langt undan með allan undirbún- ing. Verkefnin skiptast í grófum dráttum í útgáfumál, þjálfun, þjónustu við almenning, þróun skátaverkefna og síðan undirbún- ing áframhaldandi starfs. Fjölbreytni í útgáfumálum og nýtt námskeiöaform í útgáfumálum höfum við fjór- þætt markmið. Þrennt er þegar komið til framkvæmda, en það er útgáfa veggspjalda með starfshug- myndum vegna æskulýðsársins og síðan starfsáætlun BÍS fyrir árið, en það er til að eldri starfandi skátar geti betur fylgst með og tekið þátt. Þá kemur fréttabréf eldri skáta reglulega út á árinu. Síðast er stefnt að fullkominni tölvukeyrslu á félagaskrá BÍS. Reynt verður nýtt námskeiða- form, þ.e. stutt og hnitmiðuð sérnámskeið. Þá verður á árinu stofnaður Vetrarskátunarskóli á norður- landi. Tilraunastarf með nýja skátadagskrá verður sett í gang með haustinu, en það er þróun sem við verðum að hlúa vel að með útgáfu og aðstoð. Einnig verður tekið upp skáta- starf fyrir 6-8 ára börn. Börn á þessum aldri hafa svo sem verið í skátastarfi og þá fengið að koma inn áður en reiknað er með. Með þessu verður þetta starf formað betur. Verkefni sem hvetja almenning til virkrar þátttöku Gagnvart almenningi eða „ekki skátum“ munum við hafa verk- efni með aukinni þátttöku þeirra. Má þar nefna aukið skátastarf fatlaðra, en það hefur gefist vel þar sem það hefur verið reynt. í sumar verðum við með útilífs- hvetjandi ratleiki, í lok maí verð- ur landsverkefnið „þrautabraut í hverri laut“ og um miðjan júlí verður Fjördagur æskunnar hald- inn hátíðlegur um allt land. Nú og að lokum má geta þess að Skíða- samband skáta er ekki síður opið almenningi en skátum. Við munum svo að sjálfsögðu, um leið og við vinnum að verk- efnum Æskulýðsársins, undirbúa næsta ár. Flokkakeppni áfanga- skáta tengist yfirskrift Æskulýðs- ársins, en verður jafnframt undir- búningur fyrir Landsmótið 1986. I sama dúr verður einstaklings-, hópa- og sveitakeppni dróttskáta. Þetta er svona hraðsoðið það sem við ætlum að gera á ári æsk- unnar. Að mörgu leyti þarf Bandalagið að vera ári á undan og ég reikna með að það verði mikil undirbúningsvinna fyrir Lands- mótsárið 1986. Er Æskulýðsár hjá fjárveitingavaldinu? Nú hafa oft áður verið uppi góðar fyrirætlanir hjá skátum, en því miður hafa sumar þeirra aldrei komist af pappírunum vegna peninga- og aðstöðuleysis. Verða það einnig örlög þessara áætlana? Nei, ég vona ekki. Þó verður að segjast eins og er að BIS hefur ekki mætt skilningi hjá fjárveit- ingavaldi þjóðarinnar og verkefn- um okkar í raun verið sýnd ýtr- asta vanvirða, því ekki fékkst fjárveiting til eins einasta þeirra. Þó fé skorti þá segir það ekki allt, því kraftur okkar felst í sam- stöðu og nær ódrepandi áhuga skátaforingja víða um land. Skáta- starfið er á uppleið og með traust- um tengslum milli skrifstofu BÍS og skátafélaganna, góðri kynn- ingu verkefna og kraftmiklum skátafélögum þá getum við fram- kvæmt þessi miklu verkefni með glans. Þá fer boltinn líka að rúlla því með góðu starfi, aukinni kynningu og fjölgun skáta þá opn- ast leiðir til fjáraflana. Nýtum þann meðbyr sem skapast Hver er þín persónulega skoðun á Æskulýðsárinu? Alþjóðaár æskunnar verður að mínu mat mörgum félagasam- tökum æskufólks til framdráttar. Mörg stór og stefnumarkandi verkefni eru á döfinni og ætla má að fjölmiðlar sýni ungu fólki og starfi þeirra meiri áhuga en áður. Þann meðbyr sem skapast þurfa skátafélögin og BÍS sem ein heild að notfæra sér til hins ýtrasta. Ef okkur tekst að koma öllum okkar stóru verkefnum í framkvæmd þá er ég sannfærður um að ársins 1985 verður ekki einungis minnst sem árs æskunnar heldur líka sem „árs skátanna“. Markmiðin með því að eigna æskunni svona eitt ár eru mörg og víðtæk, en koma einna best fram í yfirskrift ársins, þátttaka - þróun og friður. Frá mínum bæjardyrum séð er eitt helsta markmiðið að kynna almenningi það geysimikla starf sem ungt fólk um land allt er að framkvæma dag hvern. SKÁTABLAÐIÐ 15

x

Skátablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.