Skátablaðið


Skátablaðið - 01.02.1985, Síða 16

Skátablaðið - 01.02.1985, Síða 16
Arfur unga fólksins ATVINNULEYSIÐ ATVINNULEYSI UNGS FÓLKS - eftir Birgi Þór Ómarsson Á undanförnum áratugum hefur átt sér stað gífurleg tæknileg þróun, þróun þar sem allt miðast við að sem minnst þurfi að hafa fyrir hlutunum. Hér í Evrópu og reyndar miklu víðar hefur þetta tekist bærilega með innreið ýmiskonar tækninýjunga svo sem tölv- unnar. Nú geta menn forritað vélmenni sem síðan sér um létt heimilisstörf svo sem að ryk- suga heimilið, stilla sætið, baksýnis- og hliðarspeglana á bílnum. Allt virðist þetta ósköp saklaust og menn spyrja sig aðeins „Hvað kemur næst?“, en mitt í þessum 20. aldar hugleiðingum gleyma menn oft einu vandamáli sem er ein afleiðinga þessara hröðu framfara, atvinnuleysinu. Hér á landi hefur atvinnuleysi ekki látið mikið fyrir sér fara, þó svo að fréttir um fjöldauppsagnir sjáist mun oftar nú en áður. Ekki þarf að fara lengra en til Norður- landanna til þess að verða var við að hér er á ferðinni eitthvað meira en tímabundin bólga sem mun hjaðna með betri tíð. Bretland er eitt þeirra landa þar sem atvinnuleysi er orðið gífur- legt. Önnur lönd með mikið at- vinnuleysi eru m.a. Frakkland, Þýskaland og Spánn, en á Spáni er um 20% atvinnuleysi. Það sem mest er sláandi í þessu eru kannski ekki tölurnar heldur frekar sú staðreynd, sem meiri- hluti sérfróðra manna á þessu sviði viðurkenna, að aðeins 20% af þeim sem atvinnulausir eru í dag eiga eftir að fá (fasta) vinnu í framtíðinni. Hin 80% eiga aldrei eftir að fá launaða vinnu það sem eftir er ævinnar og á hverju ári útskrifast úr skólunum stór hópur ungs fólks, og hvað er það sem bíður þeirra? Það skal þó tekið fram að þessar tölur eiga ein- göngu í dag við þau lönd sem eiga við þó nokkuð atvinnuleysi að stríða. Þetta er uggvænleg staðreynd. Þegar ákveðið var á vett- vangi Sameinuðu Þjóðanna að tileinka æskunni árið 1985 var sett á fót ráðgjafanefnd til að undirbúa árið. Þessi nefnd benti sérstaklega á eftir- farandi verkefni til að vinna að: húsnæði - atvinna - frístundir - vímuefni. Með það í huga tökum við atvinnumálin fyrir. Atvinnuleysi - eðlileg þróun tæknivæðingar Tímabundið ástand? Það er auðvelt að skipta atvinnu- leysi niður þannig að horft sé á það frá tveimur meginpólum. Annars vegar sem tímabundið vandamál sem mun leysast á þann farsæla hátt að allir geti snúið aftur til fullborgandi vinnu, en því miður eru allt of margir sem halda í þá von nú. Sumir þeirra benda á að oft hafi atvinnuleysi verið hliðstætt og það sé því óþarfi að hlaupa upp til handa og fóta nú, en lítum á hliðstæður. Á árunum 1920-1930 var mikið at- vinnuleysi víða um heim en eins og allir vita leystist það með Heimsstyrjöldinni síðari þar sem milljónir manna fórust og eftir stríð hófst gífurleg uppbygging heilu landanna, en ég hugsa að það séu fáir sem kjósa þá leiðina til lausnar atvinnuleysinu nú. 16 SKÁTABLAÐIÐ

x

Skátablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.