Skátablaðið


Skátablaðið - 01.02.1985, Blaðsíða 17

Skátablaðið - 01.02.1985, Blaðsíða 17
Peningastreymið eyksi Hins vegar má líta á aukið at- vinnuleysi sem eðlilega þróun þeirrar miklu tæknivæðingar sem átt hefur sér stað og á sér stað. Einn af virtari hagfræðingum Breta síðari tíma spáði því að um næstu aldamót yrði hið vinnandi afl í heiminum 15-20%. Peninga- streymið yrði aftur á móti það sama ef ekki meira á vinnumark- aðinum, það færi aðeins á færri hendur. Þessi spá sem hann setti fram 1960 er full svartsýn, en ljóst er að hann hefur nokkuð til síns máls, allavega stefnir allt í þá átt. Pessi þróun þarf ekki að vera svo slæm, það þarf aðeins að halda í við peningastreymið. Atvinnuleysi mun aukast Ef við gerumst raunsæ og grand- skoðum það sem er að gerast hjá nágrannalöndum okkar þá hljót- um við að hallast á sömu skoðun og þeir atvinnuleysissérfræðingar sem segja „Atvinnuleysi er til í „Ugla sat á kvisti..." Hvað verða mörg þeirra atvinnuleysinu w að bráð. % ríkum mæli og mun ekki minnka heldur aukast næstu ár og ára- tugi“. Því er brýnt að bregðast við strax, en ekki bíða bara eftir betri tíð. Það þarf að útvega öllu fólki, vinnandi eða atvinnulausu, nóg ofan í sig og á og helst rúmlega það og koma í veg fyrir að pen- ingastreymið flæði aðeins á fáar hendur eins og er að gerast í dag. í framhaldi af fullyrðingunum hér að framan á vel við að nefna einfalt dæmi frá Japan. Verk- smiðja ein hafði um 2000 manns í vinnu við framleiðsluna. Nú hafa vélmenni komið í stað verkamanna vélmenni sem aðeins þurfa 20 manna eftirlitssveit, vélmenni sem vinna stöðugt allan sólar- hringinn allan ársins hring og þurfa aldrei að fara í mat né kaffi. Þegar búið verður að borga upp kostnaðinn við vélmennin bætast laun 1980 manna í vasa eigend- anna.

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.