Litli Bergþór - 20.06.1995, Page 6
Hreppsœfhdarfréttir
Hreppsnefndarfundur 13. desember 1994.
Sigurgeir Skúlason kom á fundinn. Hann
kynnti örnefnaskráningu á loftmyndir sem hann
vinnurað. Sigurgeir vinnur að örnefnakortum víða
um land og býðst til að taka að sér kortagerð í
Tungunum.
Gísla og Sveini falið að kanna málið og ráða
mann til undirbúnings.
Kynntar nýjar snjómokstursreglur
Vegagerðarinnar.
Ferðamálaráð íslands kynnir útgáfu
handbókar um ferðaþjónustu. Erindinu vísað til
Ferðamálafélags Biskupstungna.
Lagt fram bréf frá Dýralæknafélaginu um
verkefni dýralækna. Borist hefur ósk frá Sigurði
Sigurðarsyni dýralækni á Keldum um að skipuð
verði riðunefnd í hreppnum. Hreppsnefnd
samþykkir að fjallskilanefnd verði falið verkefni
riðunefndar.
Borist hefur kauptilboð Þórs
Sigurbjörnssonar kaupanda að 25,57 ha spildu úr
landi Efri-Reykja af Skógræktarfélagi íslands. Lagt
fram bréf dags. 9. 12. 1994 undirritað af Ólafi
Björnssyni hdl. f.h. Gunnars Ingvarssonar þar sem
hann fer fram að Biskupstungnahreppur neyti
forkaupsréttar að umræddri spildu skv. mati sbr.
ákvæði jarðalaga.
Hreppsnefnd samþykkir að neyta ekki
forkaupsréttar.
Borist hefur kauptilboð þar sem Knútur Rafn
Ármann og Helena Hermundardóttir gera tilboð í
Garðyrkjustöðina Friðheima.
Hreppsnefnd samþykkir að neyta ekki
forkaupsréttar.
Ákveðið var að sækja um styrk til
Ferðamálaráðs vegna göngustígagerðar við
Reykholt og Laugarás. Gísla og Sveini falið að
fylgja málinu eftir.
Hreppsráðsfundur 3. janúar 1995.
Lagður fram kostnaðarreikningur vegna
fundarhalda nefnda 1994. Heildarkostnaður er skv.
þessum útreikningi rétt rúmar kr. 1.000.000,- að
viðbættu tryggingagjaldi. Hreppsráð samþykkir að
endurskoðun verði gerð á nefndarlaunum vegna
fjárhagsársins 1995.
Bílastæði við Geysi, bréf dags. 22. desember
1994. Hreppsráð samþykkir að oddviti vinni áfram
að framgangi málsins.
Bréf stjórnar Yleiningar þar sem tilkynnt er
um uppsögn á 15 starfsmönnum fyrirtækisins vegna
róttækrar endurskipulagningar á rekstri og efnahag
fyrirtækisins.
Lögð fram atvinnuleysisskráning frá 31.
desember 1994 þar sem 19 manns eru skráðir, 16
konur og 3 karlar.
Lagður fram skuldalisti v/mötuneytis skóla og
leikskólagjalda. Alls nema þessar skuldir um kr.
1.000.000,-
Samþykkt að bjóða starfsfólki hreppsins í mat
á þrettándafagnað í Aratungu. Rekstrarstjóri
annist framkvæmd hátíðarinnar.
Hreppsnefndarfundur 10.1.1995.
Bókun: Hreppsnefnd Biskupstungnahrepps
ógnar sú útbreiðsla sem átt hefur sér stað á ýmiss
konar eftirliti með starfsemi einstaklinga og
fyrirtækja. Hreppsnefnd telur að nauðsyn beri til að
allt eftirlit með starfsemi manna af opinberri hálfu
þurfi að vera virkt, öflugt og samræmt. Nefndin
hvetur til að sem fyrst verði tekið á málum því búast
má við að fleiri eftirlitsstofnanir komi til í náinni
framtíð haldi hér fram sem horfir þar sem skoðun á
verkefnum verður enn meiri en nú er. Eftirfarandi
eftirlit á sér nú stað með hefðbundnum búskap:
Fóðureftirlit, heilbrigðiseftirlit dýraiækna,
mjólkureftirlit, byggingaeftirlit, vinnueftirlit,
rafmagnseftirlit, eftirlit með umhverfi á vegum
búnaðarfélaga, hundaeftirlit og matvælaeftirlit.
Bréf Skipulags ríkisins um umhverfismat
vegna lagningar vegar um nýja brú á Hvítá lagt fram
ásamt greinargerð frá Vegagerðinni.
Hreppsnefnd fagnar þeirri þróun sem er á
þessum málum og samþykkir án athugasemda.
íbúaskrá Biskupstungna lögð fram og
yfirfarin. Karlar eru 285 en konur 240, samtals 525.
Sigurður Sigurðarson vígslubiskup og kona
hans Arndís Jónsdóttir komu á fundinn.
Víglsubiskup fjallaði um málefni Skálholtsstaðar og
fyrirhugaðar framkvæmdir á staðnum.
Hreppsráðsfundur 24. janúar 1995.
Bréf frá lánasjóði sveitarfélaga þar sem
kynntur er umsóknarfrestur og lánakjör, lána fyrir
árið 1995. Ákveðið að senda inn umsókn um lán úr
sjóðnum a.m.k. að upphæð kr. 6.000.000,- til
skuldbreytinga.
Hreppsráðsfundur 13. febrúar 1995.
Framhald vinnu vegna fjárhagsáætlunar
1995. Eftirfarandi tillögur oddvita samþykktar:
Að Ijósabúnaður komi á rekstrarreikning
Aratungu.
Að Barnakór Biskupstungna fái í rekstrarstyrk
venga 1995 kr. 50.000,- og í sérstakan ferðastyrk
kr. 200.000,- (vegna Danmerkurferðar).
Að kr. 500.000,- verði lagðar til viðhalds
fjárréttanna.
Hreppsnefndarfundur 14. febrúar 1995.
Ákveðið að álagning fasteignagjaida verði
óbreytt frá fyrra ári, álagning á A-flokk verði 0,5% og
álagning á B-flokk verði 1,0% af fasteignamati.
Lagt fram bréf dags. 12.1. '95 undirritað af
Ingimundi Einarssyni. Bréfið varðar viðhald á
framræsluskurðum í landi Laugaráss. Oddvita falið
að svara bréfinu og skýra málið.
Litli - Bergþór 6