Litli Bergþór - 20.06.1995, Qupperneq 13
Frá Skálholtskómum
Það hefur verið í nógu að snúast hjá kórfélögum í
vetur eins og endranær.
I lok sumars kom kórinn saman og söng við
jarðaför í Torfastaðakirkju. Æfingar hófust reglulega
eftir réttir og söng kórinn í tveimur brúðkaupum í
október, annað í Skálholtskirkju en hitt í Selfosskirkju.
Fyrsta sunnudag í aðventu söng kórinn ásamt
Bamakór Biskupstungna við messu í Skálholti. Arlegt
aðventukvöld kórsins var 18. des. í Skálholti að vanda.
Þar komu fram auk Skálholtskórs, Bamaskór
Biskupstungna og hljóðfæraleikarar. Sr. Sigurður
Sigurðarson flutti hugvekju. Hátíðarmessa var sungin á
jóladag í Skálholti.
í janúar var sungið við tvær jarðarfarir, aðra í
Bræðratungu en hina í Skálholti. I mars fengum við
Margréti Bóasdóttur til að teygja á raddböndum
kórfélaga og liðka okkur sönglega séð.
Það sem af er vorannar hefur kórinn sungið allur
eða að hluta við 10 messur.
Ber þar hæst messu á pálmasunnudag, er við tókum
á móti Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og sungum við
þeirra undirleik og einsöng Margrétar Bóasdóttur í
Skálholtskirkju. Samstarf þetta tókst með ágætum og em
líkur á frekara samstarfi að ári.
í lok apríl og maí hafa verið þrjár fermingar í
Haukadal með þátttöku kórfélaga og verður fjórða
fermingin á hvítasunnudag í Skálholti.
20. maí sl. hélt kórinn sína árlegu vortónleika í
Aratungu. Fengum við til liðs við okkur kirkjukór
Hábæjarkirkju úr Þykkvabænum og kór Víðistaðarsóknar
úr Hafnarfirði. Eftir vel heppnaða tónleika með ýmsum
uppákomum var dansað fram eftir nóttu. Er það mál
manna að vel hafi tekist til og mun ágóði af
skemmtuninni kr. 18.000,- renna til ofnakaupa í eldhúsið
í Aratungu.
Framundan er svo stutt sumarfrí og hefjast æfingar
að fullu í lok júní vegna Skálholtshátíðar.
Viljum við að lokum þakka velunnurum kórsins
ánægjulegar samverustundir í vetur.
Gleðilegt sumar.
Stjóm Skálholtskórs.
Kvenfélagsfréttir
Starfið hjá Kvenfélaginu hefur verið með nokkuð
hefðbundnum hætti þennan vetur. Sl. haust var ákveðið
að bregða út af vananum. Hér á árum áður hélt
Kvenfélagið sína árshátíð eins og aðrir en einhverra hluta
vegna féll hún út af dagskrá. Hugmyndin var að
endurvekja þessa hátíð í einhverri mynd. Akveðið var að
bjóða þrem nágranna kvenfélögum og skyldi samkoman
vera opin öllu Tungnafólki. Undirtektir voru mjög góðar
og ekki var betur séð en þessi blanda félli í góðan
jarðveg.
Það virðist því miður vera sammerkt með flestum
ef ekki öllum félögum hér í sveit, að undirtektir eru
dræmar í hinu hefðbundna félagsstarfi. Hvað er þá til
ráða? Eigum við að leggja upp laupana, hvert félagið á
eftir öðru? Nei að mínu mati og margra annarra eigum
við að sameina krafta okkar þar sem það á við. Ef vel
yrði að þeirri samvinnu staðið, tel ég að það myndi
einungis styrkja félögin og efla hvert á sínu sviði.
Gróðurreiturinn okkar við Spóastaði hefur tekið
miklum framförum frá því að fyrstu plöntumar voru
gróðursettar þar. Er það að þakka natni þeirra sem hafa
verið óþreytandi, ár hvert, að hlúa að þeiin gróðri sem
fyrir er og gróðursetja nýjar plöntur. Meðfylgjandi mynd
var tekin síðast liðið vor. Þá voru gróðursettar
trjáplöntur sem félaginu vom gefnar til minningar um
Kristínu Sigurðardóttur í Víðigerði.
Að lokum vil ég þakka öllum þeim sem hafa lagt
okkur lið og stutt okkur í starfi.
Með ósk um gott og gjöfult sumar.
F.h. Kvenfélags Biskupstungna,
Margrét Baldursdóttir,
Litli - Bergþór 13