Litli Bergþór - 20.06.1995, Side 18
Biskupstungnaafréttur frh.
Hvítá, eins og áður var getið, en þegar fé fór að
fjölga á 7. áratug þessarar aldar var fyrst aðeins
reynt að reka það, sem safnast hafði að
afréttargirðingu síðsumars, aftur innúr. Fljótlega var
því þó hætt og féð tekið heim þegar það þótti orðið
of margt við girðinguna.
Bændum var þá Ijóst að hinir ýmsu hlutar
afréttarins voru misjafnlega nýttir og reyndu að
beina fénu á þau svæði, sem talið var að þyldu
meiri beit, og setja á gimbrar undan ám, sem af
slíkum svæðum komu.
Á þessum árum fyrir 1970 var gróðurinn á
afréttinum rannsakaður á vegum Rannsóknar-
stofnunar landbúnaðarins og beitarþol reiknað.
Niðurstaðan er sú að gróðurlendið á aféttinum sé
um 19.400 ha (eða um 2 % af heildarflatarmálinu)
og þoli beit um 7.000 fullorðinna kinda með rúmlega
9.000 lömb í 90 daga á sumri. Þetta eru um
630.000 ærbeitardagar, en á þessum tíma var farið
með um 4.500 fullorðnar kindur í afrétt og
beitartíminn ekki nema um 70 dagar. Nýtingin var
því ekki nema um 50 % af reiknuðu beitarþoli. Um
þessar mundir mun nýtingin hins vegar ekki vera
nema eins og 100.000 ærbeitardagar eða tæplega
1/6 af hinu áætluðu beitarþoli.
Löngum var þó hugað að því hvernig væri
Uppgrœðslusvœði innan við Sandá.
Jarlhettur í baksýn.
unnt að auka beitarþolið. Upp úr 1960 er farið að
þreifa fyrir sér um hvernig heimamenn geti lagt
eitthvað af mörkum til uppgræðslu og gróðurverndar
á afréttinum. í upphafi er leitað eftir framlögum úr
sveitarsjóði og fjallskilasjóði, en að frumkvæði
Sauðfjárræktarfélagsins er farið inn á þá braut að
kosta áburðardreifingu að hluta til með því að leggja
sérstakt gjald á hverja kind, sem farið er með í
afrétt.
Veigamesta átakið í þessum efnum hefst árið
1972 og í hugum þeirra er staddir voru á melbungu
vestur undir Sandvatnshlíð snemmsumars þetta ár
með Páli Sveinssyni, landgræðslustjóra, markar það
upphaf þessa starfs er Páll rótaði með fætinum
niður í melinn og sagði um leið: „Hér er jarðvegur.
Þetta græðum við“
Þetta sumar var dreift grasfræi og 100 tonnum
af áburði á gróðurlitla mela innan við Sandá.
Landgræðslan greiddi fræið, helming áburðarins og
sá um dreifingu, Biskupstungnahreppur greiddi
fjórðung áburðarins og fjáreigendur, sem fóru með
fé í afrétt, fjórðung. Þetta starf hefur haldið áfram í
svipuðu formi síðan, en magn hefur minnkað
verulega m. a. vegna fækkunar fjár í afrétti. Á
síðasta sumri tóku bændur að sér að dreifa
áburðinum með eigin tækjum.
Á árunum fyrir 1970 fóru ungmennafélagar á
vegum Héraðssambandsins Skarphéðins og
Ungmennafélags Biskupstungna í landgræðsluferðir
á Biskupstungnaafrétt og dreifðu áburði og fræi á
norðanverðan Bláfellsháls. Líklega hefur þetta verið
bæði hluti af og einhver aflgjafi þeirrar vakningar í
landgræðslumálum, sem varð til þess að
þjóðargjöfin í tilefni af 1000 ára afmæli byggðar í
landinu var til landgræðslu.
Jafnframt þessari uppgræðslu á landi án
friðunar hafa verið girt af nokkur svæði á afréttinum
og þar unnið að landgræðslu og gróðurvernd, m. a.
á vegum tveggja Lionsklúbba í Reykjavík fyrir innan
Hvítá.
Fyrir um áratug var girt nokkurt svæði í
Rótarmannagili, sunnan við Bláfell, og hefur síðan
verið unnið þar að uppgræðslu og stöðvunar
landfoks á vegum ýmissa aðila svo sem
Umhverfisnefndar hreppsins og Reykholtsskóla og
einnig hafa einstaklingar fengið þar útrás fyrir þörf
sína fyrir að græða landið.
Síðar var svo girtur dálítill blettur sunnan við
Sandá á vegum nokkurra stofnana, sem láta sig
landgræðslu varða.
Einstakir bændur og aðrir, sem hafa
einhverskonar tryggðabönd við afréttinn, fara nú oft
með úrgangshey og annað gróðurnærandi til að
setja í börð og á mela.
Beitin.
Svo sem áður var að vikið mun
Biskupstungnaafréttur hafa verið notaður til
sumarbeitar búfjár allt frá upphafi búsetu í landinu.
Fyrrum var nokkuð um að þangað væri farið með
geldneyti, en langt er síðan því var hætt, og hross
voru rekin þangað fram yfir 1980.
Sauðfjárbeitin hefur löngum farið eftir fjölda
fjár í sveitinni, og má ætla að yfirleitt hafi um
þriðjungur af vetrarfóðruðu fé í sveitinni farið til
afréttar. Á árunum fyrir 1970 var flest á fóðrum um
15.000 fjár. Þá var talið að hátt á 5. þúsund fjár hafi
farið til afréttar. Nú er fé á fóðrum nær 4.700 og er
farið með um 1.800 fullorðnar kindur í afrétt með
Litli - Bergþór 18