Litli Bergþór - 01.04.1998, Blaðsíða 10

Litli Bergþór - 01.04.1998, Blaðsíða 10
Hreppsnefndarfréttir Bréf Félagsmálaráðuneytisins dags. 26. nóv. 1997. Kynnt framkvæmdaáætlun í fíkniefna og áfengisvörnum. Einnig fylgir með bréf verkefnisstjórnar áætlunarinnar „ísland án eiturlyfja 2002”. Vísað til félagsmálanefndar. Hreppsnefndarfundur 13. janúar 1998. Tilboð Límtrés í byggingu íþróttahússins. Borist hefur tilboð í byggingu íþróttahússins frá Límtré hf. Burðargrind úr límtré og klæðning úr yleiningum, uppsetning á aðalhúsi, áhaldageymslu og tengibyggingu. Heildarverð í efni og uppsetningu kr. 34.330.000,-. Oddvita falið að vinna að fjármögnun. Kostnaðaráætlun til Jöfnunarsjóðs. Kostnaðaráætlun vegna íþróttahúss sem lögð verður fyrir Jöfnunarsjóð kynnt. Heildarkostnaður kr. 54.630.660.-. Skólanefndarfundargerð 8. janúar 1998. Skólastjóri óskar eftir aukningu á kennslukvóta um 6 stundir á viku til kennslu 5.-6. bekkjar. Skólastjóra veitt heimild til aukningar um allt að 6 stundir á viku, enda hætti stuðningsfulltrúi að aðstoða við kennslu bekkjanna. Skólanefnd falið að fylgjast með málinu. Bréf Lögmanna Eiðistorgi 8. jan. 1998. Hrefna Markan telur að hún hafi orðið fyrir tjóni, sem Biskupstungnahreppur beri ábyrgð á vegna kennarastöðu sem hún sótti um. Hann gefur Biskupstungnahreppi 10 daga frest til að taka afstöðu til bótaskyldu sinnar. Samþ. að fela lögmanni hreppsins að skoða málið. Bréf heimilisfólksins Heiði 4. jan. 1998. Hreppsnefnd er hvött til að beita sér fyrir því að þeir rúmu 4 km sem eru á vegaáætlun á Biskupstungnabraut 1997 með uppbyggingu og bundnu slitlagi verði að veruleika á þessu ári. Hreppsnefnd tekur undir erindið og samþ. að þrýsta á um verkefndið. Hreppsráðsfundur 3. febrúar 1998. Bréf Félagsmálaráðuneytisins dags. 9. jan. 1998. Kynnt ný lög nr. 138/1997 um húsaleigubætur sem tóku gildi 1. jan. 1998. Húsaleigubótakerfið nær nú til allra sveitarfélaga og ekki er lengur undanskilinn réttur til húsaleigubóta ef leiguíbúð er í eign rfkissjóðs, sveitarfélags eða fyrirtækis sveitarfélags. Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga dags. 12. janúar 1998. Kynnt fyrirkomulag lánveitinga árið 1998. Oddviti kynnti að hann hefði sótt um kr. 25 millj. úr sjóðnum til byggingar íþróttahúss. Bréf Hagstofunnar og íbúaskrá 1998 dags. 20. jan. Athugasemdir skulu hafa borist fyrir 7. febr. 1998. Starfsfólk hreppsins hefur yfirfarið skrána og gert lítilsháttar athugasemdir. Eftir þá yfirferð er heildaríbúafjöldi 516. Bréf Samb. ísl. sveitarfélaga dags. 22. janúar 1998. Kynnt stofnun „úrskurðamefndar um grunnskóla- kostnað" nemenda utan lögbýlissveitarfélags ef ekki næst samkomulag um skólakostnað. Bréf Skólaskrifstofu dags. 12. jan. 1998. Kynnt endurmenntunamámskeið fyrir kennara í júní og ágúst 1998. Þar kemur skýrt fram að „áritun skólastjóra án fyrirvara, skuldbindur sveitarfélag til greiðslu ferða og dvalarkostnaðar skv. þeim reglum, sem í gildi eru. því er nauðsynlegt að skólastjóri hafi um það skýrar reglur hvaða heimilidir hann hafi til þess að staðfesta umsókn kennara um námskeið”. Bréf Barnaverndarnefndar dags. 26. jan. 1998. Eftirfarandi bókun kemur fram í fundargerðinni og er henni beint til allra sveitarfélaganna í Laugaráslæknishéraði. „Sameinuð bamavemdamefnd uppsveita Amessýslu, Barnavemdamefnd Laugaráslæknishéraðs, vill beina þeim tilmælum til stjóma sveitarfélaganna, sem að nefndinni standa, að ganga nú enn lengra í sameiningunni með því að sameina félagsmála- og bamavemdamefndir allra sveitarfélaganna í eina nefnd“. Einnig er lagt til að ráðinn verði félagsráðgjafi/sálfræðingur í stöðu við Heilsugæslustöðina í Laugarási, sem þessi nefnd hefði aðgang að. Hreppsráð leggur til að ein nefnd starfí í framtíðinni fyrir allt svæðið og að ráðinn verði félagsráðgjafi/ sálfræðingur í fullt starf. Stefna beri að því að þetta komist í framkvæmd á miðju ári 1998. Framhaldsaðalfundur Sorpstöðvar Suðurlands 6. febr. 1998. Með fylgir fundargerð aðalfundar frá 27. maí 1997 þar sem ákveðið var að boða til framhalds- aðalfundar og leitað yrði á meðan sátta varðandi urðun utanaðkomandi sorps. Lögð hefur verið fram stefna á hendur Biskupstungnahreppi fyrir hönd Hrefnu Markan Harðardóttur Einiholti, Bisk. vegna þess að hún var ekki ráðin í kennarastöðu við Reykholtsskóla, skólaárið 1997- 1998, en hún er með full kennararéttindi. Stefnandi fer fram á bætur kr. 4.183.773,-. Lögmanni Biskupstungna- hrepps, Sigurði Jónssyni, hefur verið falið að undirbúa vöm í málinu. Hreppsráðsfundur 9. febrúar 1998. Aðalskipulag. Pétur Jónsson mætti á fundinn og kynnti umræðutillögu að aðalskipulagi Biskupstungnahepps 1998-2010. Um er að ræða fyrsta áfanga og fylgir með henni drög að greinargerð. Hreppsnefndarfundur 10. 2.1998. I stað bókunar hreppsráðs komi: Hreppsnefnd leggur til að ein nefnd starfi í framtíðinni fyrir allt svæðið og að ráðinn verði félagsráðgjafi - sálfræðingur í fullt starf. Stefnt beri að því að þetta komi til framkvæmda á árinu 1998. Samningur við Límtré um byggingu íþróttahúss. Staðfestur. Hreppsnefnd samþykkir að fela oddvita að leggja til við oddvita hinna uppsveitahreppanna að boðað verði sem fyrst til fundar formanna skólanefnda þar sem hafnar verði umræður um framtíðarfyrirkomulag skólanna á svæðinu. Hreppsráðsfundur 24. febrúar 1998. Erindi hluthaf‘afundar S.B.S. dags. 19. febr. 1998. Þar er kynntur áhugi fyrirtækisins að kaupa upp smærri hluthafa í fyrirtækinu. Nafnverð Biskupstungnahrepps er kr. 128.820,- og gerir stjórnin ráð fyrir að kaupa bréfín á Litli - Bergþór 10

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.