Litli Bergþór - 01.04.1998, Blaðsíða 20

Litli Bergþór - 01.04.1998, Blaðsíða 20
Frá uppruna til ævistarfs frh. Eftir lát Friðriks fetuðum við yngri bræðumir 3 í fótspor hans innan KFUM. Bjami tók við forystu í Laugamesi og starfaði þar lengi í KFUM. Hann lærði húsamíði og kenndi smíðar við Laugarnesskóla. Seinna varð hann lektor við Kennaraskólann í handiðn. Mér var gert að taka við forystu í 3. sveit og var þar í nokkur ár. Mig skorti hinsvegar foringjahæfileikana sem bræður mínir höfðu, og var líka of ungur og feiminn. Þetta var mér því hálfgerð nauðungarvinna og kostaði mig nokkra baráttu að losna frá því. Sr. Friðriki Friðrikssyni kynntist ég aðeins lítillega áður en hann fór utan til Danmerkur fyrir stríðið. En í fjarveru hans voru ráðnir 2 ungir menn, þeir Ástráður Sigursteindórsson og Sr. Magnús Runólfsson, en sá síðarnefndi varð framkvæmdastjóri KFUM, og stjómuðu þeir daglegu starfi í KFUM. Þeir höfðu báðir mikil áhrif á okkur bræður. Það var Ástráður sem hratt mér af stað sem predikara fyrir aldur fram. Eg var stór eftir aldri og fullorðinslegur og var sendur í pontu að flytja hugvekjur. Eg átti hinsvegar mjög erfitt með þetta og hljópst reyndar á brott í fyrsta sinn, - segir Sr. Guðmundur og kímir. - En það var ekki hægt að hlaupast á brott tvisvar og ekki annað að gera en herða sig upp. Og eftir það var ekki aftur snúið. Ástráður vígðist aldrei, en helgaði sig KFUM. Var skólastjóri Ármúlaskólans og síðar framkvæmdastjóri Biblíufélagsins um tíma á efri árum. Sr. Magnús Runólfsson vígðist aðstoðarprestur á Akranesi og varð seinna prestur í Árnesi í Trékyllisvík. Hann var alla tíð ókvæntur og lifði hálfgerðu munklífi, mjög fómfús og vandaður maður. Hann var hálfbróðir Karls O. Runólfssonar tónskálds. Hann var merkilegasti guðfræðingur sem ég hef kynnst og mikill áhrifavaldur um guðfræðistefnu mína og trú. Hann fór eigin leiðir í guðfræðinni og hafði sinn ræðustíl, faldi ekkert í skrúðmælgi né fagurgala. Talaði knöppum orðum, án viðbótar frá sjálfum sér. Einn af KFUM-drengjunum var Sigurður A. Magnússon, eða Diddi Magg eins og við kölluðum hann. Hann var ári á undan mér í gagnfræðaskólanum og var duglegur. Hann stofnaði Kristilegt félag Gagnfræðaskólans í Reykjavík, og enn var þetta eingöngu félagsskapur drengja. Við Felix bróðir minn gengum í félagið árið eftir. En um það leytið sem við útskrifuðumst var félagið í upplausn. Ég innritaðist þá í 3. bekk Menntaskólans í Reykjavík, en Felix bróðir minn, sem var ári lengur í gagnfræðaskóla, fór 16 ára í kristniboðsskóla í Noregi og dvaldist þar næstu 6 árin. í Noregi áttum við náið skyldfólk, sem var Ólafur Felixson afabróðir minn og fjölskylda hans. í Menntaskólanum átti ég frumkvæði að því að stofna Kristileg skólasamtök. Og þó ég vilji ekki hreykja mér af því, þá var það bylting að sínu leyti, því það var opið bæði fyrir stúlkur og stráka. Fyrsti formaður þessa félags var Jónas Gíslason síðar vígslubiskup. Ég tel að félagið haft skipt sköpum í kristilegu félagsstarfi, því áður höfðu kynin verið algjörlega aðskilin í KFUM og KFUK. Nú hófust kynni milli kynja og upp úr því urðu mörg hjónabönd. Og þetta fólk dreifðist um landið og hefur starfað í söfnuðum vítt og breitt. Af bekkjarfélögum mínum í máladeild MR má telja Benedikt Sigvaldason, lengi skólastjóra Héraðsskólans á Laugarvatni, sem sat fyrir framan mig og Magnús Sigurðsson sem síðar var læknir á Selfossi. Sessunautur minn var Haukur Þórðarson, síðar yfirlæknir á Reykjalundi, en Þórður faðir hans átti Hrauntúnið hér í Biskupstungum. Guðbjörg systir Þórðar var gift Guðjóni Guðm. Oli og Jóhannes Ólafsson (lœknir og Rögnvaldssyni á kristinboði í Eþíópíu, sonur Ólafs Ólafss. Tjörn. Nú, í kristinboða). þessum árgangi voru einnig Þór Vilhjálmsson, Ragnhildur Helgadóttir, Vigdís Finnbogadóttir, Svava Jakobsdóttir o.fl. Ég verð svo stúdent frá MR vorið 1949 og var óráðinn um framhaldið fyrst í stað. Helga, systir Önnu, ánetjaðist starfinu í KFUK í gegnum Friðrik bróður minn, og eftir lát hans var hún okkur bræðrunum sem systir. Hún var í tónlistarnámi hjá Páli Isólfssyni, og studdu foreldrar mínir hana til að kaupa píanó. Ég hafði kynnst tónlist á heimili foreldra minna, en meira þó í gegnum móðursystur mína, sem var gift manni með tónlistaráhuga. Hann átti nokkuð af hljómplötum og eins áttu foreldrar mínir hljómplötur. En eftir að Helga kom á heimilið kynntist ég fyrst lifandi tónlist og þar á meðal verkum Bachs. - Bach varð síðan einn af mestu áhrifavöldum í lífi mínu. - Helga var forystumaður í KFUK og formaður sumarbúðastarfs KFUK í áraraðir. Undir hennar forystu voru byggðar upp sumabúðimar í Vindáshlíð fyrir gjafafé og í sjálfboðavinnu. Hún hafði verið mjög efnilegur nemandi í skóla ísaks Jónssonar. Það má kannski ekki segja það, en betri borgarar sóttu um að koma bömum sínum í þann skóla. Eftir að Helga útskrifaðist úr Kennaraskólanum, valdi Isak Helgu til að vera kennara við Grænuborgarskóla, æfingaskóla Kennaraskólans. Eftir dauða Isaks klofnaði skólinn í tvennt, annarsvegar Grænuborgarskóla og hinsvegar Isaksskóla. Friðrik bróðir minn kaus sér einkunnarorð: IMMANUEL, sem þýðir: Guð með oss. Þetta var leyniorð meðal drengjanna hans og á legstað hans er það letrað: Guð með oss. I Vatnaskógi var síðar reist kapella, sem Bjami bróðir minn teiknaði og faðir okkar byggði. Fjölskyldan gaf klukku í kapelluna og létum við rita á hana orðið “Immanuel” í minningu Friðriks. Litli - Bergþór 20

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.