Litli Bergþór - 01.04.1998, Síða 11
Hreppsnefndarfréttir
genginu 2,53 eða samtals kr. 325.900,-. Hreppsráð
leggur til að gengið verði að tilboðinu.
Bréf Þingvallanefndar dags. 17. febrúar 1998.
Boðað er til fundar þann 26. febrúar á Borg í Grímsnesi
um endurskoðun laga frá 1928 um þjóðgarðinn á
Þingvöllum. Endurskoðun texta hefur farið fram frá
síðasta fundi og er ekki lengur gert ráð fyrir að mörkin
nái inn í Biskupstungur. Því er fulltrúa Biskupstungna-
hrepps einungis boðið sem áheymarfulltrúa á fundinn.
Bréf Slysavarnafélags íslands dags. 20. febr. 1998.
Kynnt samþykkt félagsins um áskorun til allra
sveitarstjórna á landinu um að skylda skólabflstjóra að
hafa bflbelti í öllum skólabílum.
Bréf sem varða fjárhagsáætlun 1998.
a) Bréf HSK dags. 4. des. 1997. Samþykkt að leggja
til sambandsins kr. 20.000,-vegna útgáfu bókarinnar um
Sigurð Greipsson og Haukadalsskólann.
b) Bréf Landssamtaka áhugafólks um flogaveiki.
Oskað eftir kaupum á málverki (eftirprentun) eftir
Kristján Davíðsson til styrktar hreyfingunni. Hafnað.
c) Bréf Skógræktarfélags Ámesinga dags. 20. nóv.
1998. Óskað eftir ótilgreindum fjárhagsstuðningi.
Hafnað.
d) Bréf brunamálanefndar.
Beiðni um styrk til tækjakaupa ( Eg lœt afskrifa mína skuld.
1998 fyrir kr. 559.000,-.
Ákveðið að leggja til kr. 250.000,- á
fjárhagsáætlun til tækjakaupa.
Afskriftir skulda. Hreppsráð leggur til
felldar verði niður og afskrifaðar skuldir sex
aðila, þar sem sýnt þykir að ekki sé hægt að
innheimta þær. Heildarupphæð er samtals
kr. 163.404,-. Oddviti lagði fram lista
yfir þessa aðila. Einnig var afskrifuð
víxileign hjá þremur aðilum af sömu
ástæðum samt. kr. 307.590,-.
Hreppsnefndarfundur 3. mars 1998.
Hreppsnefnd telur að stefnt skuli að því að bflbelti
verði í öllum skólabílum frá og með næsta hausti.
Fjárhagsáætlun 1998.
Lögð var fram fjárhagsáætlun Biskupstungnahrepps
árið 1998 til síðari umræðu og afgreiðslu.
Áætlaðar skatttekjur 89.475.000
Rekstur málaflokka 68.075.000
Selt hlutafé 10.000.000
Tekin ný langtímalán 25.000.000
Breyting á hreinu veltufé (skammtímalán) 5.937.000.
Fjárhagsáætlunin var samþykkt.
Bréf Helga Sveinbjörnssonar 13. jan 1998. Helgi
óskar eftir að fá til leigu lóð vestan við Slakka. Oddvita
falið að ræða við Helga um frágang mála.
Fundarboð aðalafundar Atvinnuþróunarsjóðs og
kosning fulltrúa á fundinn. Boðað er til aðalfundar
Atvinnuþróunarsjóðs á Hótel Örk 26. mars. Svavar
Sveinsson var kjörinn fulltrúi hreppsins og Sveinn
Sæland varamaður.
Bréf Snorra Guðjónssonar og Evu Hillströms.
Óskað er eftir að fá samþykkt nafnið Litla-Tjöm á hús
þeirra í landi Tjamar. Samþykkt.
Hreppsnefndarfundur 10. mars 1998.
Erindi Þóris Sigurðssonar 9. mars 1998. Þórir
sækir um leyfi til að setja upp og reka tjaldstæði í
Birkilundi. Hreppsnefnd samþykkir starfsleyfið enda
hljóti erindið lögformlega afgreiðslu varðandi
skipulagsmál.
Kynntar voru teikningar af þjónustu og safnahúsi
við Geysi í Haukadal sem Már Sigurðsson hyggst reisa.
Hreppsnefnd fagnar þessum hugmyndum og lýsir fullum
stuðningi við framkvæmdina.
Lagt fram vinnuplagg vegna samciningarkosninga
í vor.
Samantekt D.K.
--------------------------------------'N
HJÓLBARÐAVIÐGERÐIR HJÓLBARÐASALA
R AFGE YM AÞ J ÓNUSTA
Opið: Mán.-fös. 08.00-18.00, lau. 10.00-15.00.
SÓLNING
AUSTURVEGI58
Sími 482 2722
________J
Litli - Bergþór 11