Litli Bergþór - 01.04.1998, Qupperneq 12
Stofnun leikskóla
í Biskupstungum
Hugmynd kviknar.
Það var haustið 1986 sem Drífa Kristjánsdóttir hringir
í nokkra foreldra og heyrir á þeim, eins og henni finnst
vera tilfellið með sitt bam, að böm annarra foreldra vom
leið og vilja félagsskap eftir sumarið. Eldri bömin komin
í skólann og yngri börnunum leiddist heima (tímar
stórfjölskyldunnar liðnir í sveitinni). Þá höfðu fleiri
foreldrar fengið þá hugmynd að sniðugt væri að stofna
einhverskonar leikskóla. Fyrsti fundur fárra foreldra var
haldinn á Torfastöðum hjá Drífu Kristjánsdóttur og var
samþykkt að boða til stærri fundar. Á hann mættu Perla
Smáradóttir, Hafdís Héðinsdóttir, Jón Þór Þórólfsson,
Steinunn Bjarnadóttir, Ólafur Einarsson, Áslaug
Sveinbjörnsdóttir, Sigríður Jónína Sigurfinnsdóttir og
Oddný Jósepsdóttir. Þar var undirbúin stofnun leikskóla,
skoðaðir möguleikar á húsnæði og ákveðið að senda út
dreifibréf til allra foreldra í Biskupstungum. Ákveðið var
að halda með þeim fund og kanna áhugann hjá fleiri
foreldram. Hreppsnefnd var sent bréf 2. október og hún
/ mars 1987 í Skálholtsbúðum
Oskar, Björt, 4ra ára,
Bergþóra og Auður 5 ára.
látin vita af undirbúningi að
stofnun leikskóla.
Stofnun.
Boðað var til fundar
sumarbúðunum í Skálholti
kvöld eitt í október 1986
(dagsetning ókunn).
Undirbúningsnefnd var þá
búin að fá vilyrði fyrir því húsi. Það hentaði ágætlega
undir leikskóla, stór salur, eldhús og mörg herbergi. En
staðsetningin var ekki góð. Húsið var neðarlega í
sveitinni og því langt fyrir marga að fara. Á fundinn
Guðbjört og Auður.
Höfundur:
Sigrún Elfa Reynisdóttir, Engi.
mættu mjög margir foreldrar líklega í kringum fjórtán,
mest var um að mömmurnar kæmu. Á fundinum kom
fram mikill áhugi á að starfrækja leikskóla og markmið
hans væri þá aðallega að leyfa börnunum að hitta önnur
börn, fá tilbreytingu og kynnast almennu leikskólastarfí
svo sem að líma, klippa, mála, föndra, vera í hóp og
fleira. Einnig þótti gott að 5 ára börn væru búin að hitta
jafnaldra sína áður en þau færu í skólann. Á fundinum
var ákveðið að:
a) Stofna foreldrarekinn leikskóla
b) Sækja um fjárstyrk frá hreppnum
c) Girða svœðið
d) Kaupa leiktœki
e) Foreldrar legðufram stofnfé og vinnu við útisvœði.
f) Að öll börn á aldrinum 2-5 ára í sveitinni fái vistun.
Haldnir voru fleiri undirbúningsfundir og vinnukvöld
og dagar, settar upp hillur, útileiksvæði útbúið og fólk
ráðið til starfa. Fenginn var styrkur frá hreppnum, 15.000
kr. á mánuði en gjöld fyrir bam í 3 daga voru 2.000 kr. á
mánuði. (Ur bókun hreppsnefndar miðvikudaginn 15.
okt. 1986).
Ákveðið var að leikskólinn starfaði 3 daga í viku eftir
hádegi. Til að spara urðu foreldrar að vinna til skiptis í
leikskólanum.
Starfsemi og fyrsta starfsfólk
Steinunn Bjamadóttir og Helga Pálsdóttir unnu
mjög gott starf saman miðað við aðstæður. Steinunn
var vön að vinna á leikskóla þó aðeins væri rétt um
tvítugt. Hún kunni líka á gítar og gat haldið uppi
miklu söngstuði. Helga var fimmtug. Hún hafði
kennt myndlist í skólanum af og til. Helga náði vel
til bamanna. Hún fór seinna til Svíþjóðar og lærði
leikskólafræði í Rudolf Steiner skóla. Hún hætti um
miðjan vetur og þá kom Fríða, sem var eldri kona og
átti mörg ömmuböm í leikskólanum. Hún varð því
kölluð amma í leikskólanum.
Engin lærð fóstra fannst í sveitinni. Reynt var að
hafa skipulagt starf en leikskólinn starfaði aðeins
þrjá daga eftir hádegi. Börnin voru látin fara út eftir
hádegi. Lengd útiveru fór eftir veðri. I innitíma var
púslað, föndrað, sögustundir, frjáls leikur eða annað.
Allir voru með nesti en mjólk fengu krakkamir í
leikskólanum. Það var eflaust erfitt bæði fyrir börn og
starfsfólk að fá sífellt nýtt foreldri í hverri viku. Það
Litli - Bergþór 12