Litli Bergþór - 01.04.1998, Page 13
truflaði alltaf það barn sem átti foreldrið þá vikuna en allt
vandist þetta. Kostirnir voru kannski þeir að foreldramir
kynntust starfinu og bömum hvors annars vel og margar
hugmyndir komu inn í starfið. Einnig var gaman að ræða
við foreldra um uppeldi og fleira.
Margt var gert til skemmtunar þó leikföng og leiktæki
Húsnæðissaga.
Leikskólinn fékk nafnið Álfaborg eftir klettum fyrir
ofan sumarbúðimar í Skálholti (en hvort einhverjir klettar
heita þetta í alvöruni skal ósagt látið). í því húsnæði
vorum við í 3 vetur. Við fengum það fyrir mjög lága
leigu en urðum að víkja fyrir annari starfsemi sem var í
I desember 1987. Fyrstu litlu jólin í leikskólanum.
' é m \♦k*. .v.r/iAlf
u > y
væru af skomum skammti. Farið í göngutúr og náttúran
skoðuð, drukkið úr fjallalækjum, hestunum gefið brauð,
gengið að Skálholtskirkju. Auðvitað voru hin
venjubundnu „litlu jól“ og fleiri skemmtanir.
Foreldrafélag.
Foreldrafundir voru einu sinni í mánuði, á
sunnudagskvöldum. Alltaf var góð mæting og mömmur í
miklum meirihluta. Nóg var um að spjalla hvort sem það
var starfsemin, uppeldismál eða sveitamóralinn. Einu
sinni á ári var svo haldið leikskóla partý og var það mikið
fjör hjá foreldrum. Þá voru pabbamir duglegir að mæta.
Drífa Kristjánsdóttir á Torfastöðum var í forsvari
fyrir foreldrafélagið fyrstu árin og þurfti oft að standa í
margskonar stappi og bréfaskriftum.
Viðtökur.
Þegar leikskólinn var stofnaður fengum við strax
styrk frá hreppnum. Vegna þess heyrðust raddir um það í
sveitinni að ekki gætu öll böm nýtt sér leikskólann. Því
ætti ekki að styrkja hann úr sameiginlegum sjóði. Einnig
vom margir hissa á því að börn væru send í burtu og
mæðumar samt allar heima. Þó ekki séu nema 12 ár frá
stofnun leikskóla í Biskupstungum hefur margt breyst
hér í sveitinni. Ekki var mikið um að konur ynnu fyrir
utan heimilið eða bú sín og ekki mikla vinnu að hafa.
Fyrir 12 árum var leikskólinn eingöngu ætlaður sem
tilbreyting fyrir bömin og til að létta aðeins á
heimilunum en nú í dag er leikskólinn starfandi frá kl
9:00-17:00 fimm daga vikunnar. Fleiri konur stunda nú
vinnu utan heimilis. Atvinnutækifæri hafa aukist og
auðveldara er að fá kennara með böm til starfa við
grunnskóla sveitarinnar.
húsnæðinu. Það var oft leigt út um helgar við urðum þá
að ganga frá öllu dóti inn í eitt herbergið. Þetta húsnæði
misstum við svo vorið 1989 en fengum þá inni í kjallara
íbúðarhúss í Reykholtshverfi. Sú aðstaða var ekki góð
og foreldrafélag leikskólans var búið að senda margar
fyrirspurnir til hreppsins um varanlegt húsnæði fyrir
leikskólann.
Á hreppsnefndarfundi 11. feb. 1987 er fjallað um bréf
frá leikskólanum og em menn þá sammála um að
Álfaborg eigi að vera í Reykholti. Þann 11. mars 1987
kemur nýtt bréf frá foreldrum leikskólabama þar sem
farið er fram á að byggt verði hús undir leikskóla og
honum mörkuð lóð. Því er vel tekið og tveimur
hreppsnefndarfulltrúum falið að annast málið. Nokkur
bréf koma síðan á hverju ári til hreppsnefndar frá
foreldrum. Öllu er tekið mjög vel en lítið gerist í þeim
málum, annað en það að leikskólanum er úthlutuð lóð í
Reykholti.
Á þessum tíma var verið að byggja við bamaskólann
og losnaði þá gamalt skólahús sem hentað gat undir
leikskóla. Foreldrar komu með tillögu til hreppsnefndar
þess efnis að leikskólinn fengi inni í gamla skólahúsinu.
Á fundi 12. mars 1989 samþykkir hreppsnefnd að
leikskólinn fái það húsnæði. í því húsnæði er leikskólinn
enn í dag. Húsið er á þremur hæðum og eldhús í kjallara.
Stór og rúmgóð herbergi og líka mörg skemmtileg skot.
Til gamans má geta þess að ekki voru allir
sveitarstjómarmenn sammála að girða ætti utan um
leikskólann, og var það gert að umræðu fyrir
sveitarstjómarkosningar. Girðing kom svo ekki fyrr en
einu og hálfu ár eftir að leikskólinn flutti í nýja
húsnæðið. Hún var þá strax of lítil. Rökin fyrir því að
Litli - Bergþór 13