Litli Bergþór - 01.04.1998, Blaðsíða 14
Stofnun leikskóla í Biskupstungum...frh.
Sumardagurinn fyrsti 1991. Hefðbundin hátíð í
leikskólanum með foreldmm, börnum og gestum.
ekki ætti að girða voru að böm í sveit ættu að vera frjáls
og óhindruð og ef komin væri girðing væri hún eingöngu
til að klifra yfir.
*
Aframhaldandi þróun.
Stjóm leikskólans kom á fund oddvita snemma á árinu
1990 og óskaði eftir að hreppurinn tæki við rekstrinum.
Það var samþykkt á hreppsnefndarfundi 27. júní 1990.
Haustið 1990 tekur Biskupstungnahreppur við
rekstrinum. Leikskólinn erþá opinn frá kl. 13:00-17:00
fimm daga vikunnar. Hægt var að velja um að hafa
barnið í 3, 4 eða 5 daga vistun. Árið 1991 var svo tekin
upp átta tíma vistun eða frá kl. 9:00-17:00 með heitum
mat í hádeginu, en hann kom úr skólamötuneytinu. Árið
1993 var lærður leikskólakennari ráðinn til starfa. Hún
heitir Svanhildur Eiríksdóttir en áður en hún kom til starfa
voru mannabreytingar örar. Eftir að hún tók við hefur
orðið meiri stöðugleiki hjá starfsfólki.
I dag eru 29 böm á leikskólanum og fjórir starfsmenn,
þar með talinn leikskólakennarinn. Veturinn 1996-1997
voru flest börn eða 36 og fimm starfsmenn. Börnin eru
aldrei öll í einu heldur er hægt að velja margskonar
vistun. Reynt hefur verið að draga úr fjöldanum til
sparnaðar og vegna þess að húsið og útisvæði taka ekki
við öllum þessum fjölda nema bætt verði úr. Sveitarsjóður
hefur ekki viljað auka við sig skuldir vegna
sumaropnunar, þar sem alltaf eru færri börn sem
hafa viljað nýta sér sumaropnun.
Einn siður hefur haldist með leikskólanum en
það er að halda upp á sumardaginn fyrsta. Þá er
höfð sýning á verkum bamanna, skrúðganga,
hlutavelta og öllum boðið í kaffi. Alltaf er góð
mæting og oft koma yfir hundrað manns.
Frumkvöðullinn að þessari skemmtun var Helga
Pálsdóttir. Hvatinn að því var að veturinn 1988-
1989 var ákaflega snjóþungur og vorið því
kærkomið. Ekki vora allir sammála um ágæti
þessarar skemmtunar en Helga stóð fast á sínu og
enginn hefur séð eftir því síðan.
Lokaorð.
í dag hefur leikskólinn sannað gildi sitt og flestir eru
sammála um að hann sé kominn til að vera. En það er
alltaf erfitt að rjúfa hefðir. Það sem byrjaði fyrir 12 áram
sem foreldrarekinn leikskóli 3 daga í viku, aðallega
ætlaður til þess að gefa börnum kost á að hittast, er nú
orðinn leikskóli sem starfar 5 daga vikunnar frá kl. 9:00-
17:00, rekinn af sveitarsjóði. Börnin fá heitan mat í
hádeginu, ávexti á morgnana og brauð í kaffitímanum.
Foreldrar geta öraggir sent bömin sín í leikskólann.
Lærður leikskólakennari sér um að bamið fái að njóta alls
sem virkt leikskólastarf býður upp á.
Foreldrar í dag gera þá kröfu að leikskóli sé sjálfsagt
mál en það er í raun mjög stutt síðan sú krafa varð
raunhæf. Eg vona að saga þessa leikskólans minni fólk á
hvað hægt er að gera ef áhugi og samstaða er fyrir hendi.
Gert 18.02.98, S.E.R.
Heimildaskrá.
1. Gerðabœkur hreppsnefhdar Biskupstungnahrepps árin
1986 -1991.
Ijótel
Sími 486 8915
fax 486 8715
r
Söluskálinn við Geysi
Sími 486 8935
Smáréttir minjagripir
Bensín og olíuvörur
Tjaldstæði - hiólhysasvæði
Bláfellsbar
Góðar veitingar
gisting, svefnpokapláss
Bergþórsbar, ný bjórstofa.
Hlý glæsileg sundaðstaða.
Hestaleiga á staðnum.
Qóð þjónusta
Litli - Bergþór 14