Litli Bergþór - 01.04.1998, Qupperneq 15

Litli Bergþór - 01.04.1998, Qupperneq 15
Frá íþróttadeild U.M.F.B. Salbjörg, Guðrún Gígja og Sigrún. Ágætu félagar og sveitungar. Starf ___________ íþróttadeildarinnar hefur verið með sama sniði og undanfarin ár. Körfubolti, frjálsar, borðtennis, eru þær greinar sem stundaðar eru yfir vetrarmánuðina, og eru þessar greinar mjög vel sóttar. í lok nóvember s.l. var farið með krakkana sem stunda frjálsar til Reykjavíkur í bíóferð og á eftir var farið á Pizzastað. Tókst þessi ferð mjög vel og krakkarnir voru mjög hrifin. í lok desember var hinn árlega sala á flugeldum og gekk það framar vonum. Við þökkum öllum sem studdu Iþróttadeildina með kaupum á flugeldum kærlega fyrir stuðninginn. Um mánaðamótin janúar febrúar var haldið á Selfossi aldursflokkamót H.S.K. og fóru fjórir krakkar héðan á það mót og gekk þeim mjög vel. Jóhann Pétur Jensson fékk á þessu móti gull í langstökki og brons í hástökki. Þá vil ég nefna að borðtennisliðið okkar varð H.S.K. meistari á Skarphéðinsmóti sem haldið var á Flúðum og óskum við þeirn innilega til hamingju. Að lokum vil ég þakka öllum sem studdu deildina innilega fyrir og óska öllum gleðilegs nýs árs. Sigurjón Sæland. Héraðsmót HSK í borðtennis Mótið var haldið að Flúðum 7. febrúar 1998. Tungnamenn mættu á staðinn með 18 manns innanborðs og að vanda varð þetta enn ein frægðarförin fyrir borðtennisdeildina. Okkar fólk raðaði sér í eftirfarandi sæti í einstökum flokkum. Strákar 11 ára og yngri: 2. Andri Helgason 3. Andri Hilmarsson Að auki: Jakop Trausti Þórðarson Guðmundur Ameson Stúlkur 12-13 ára: 1. Fríða Helgadóttir Strákar 12-13 ára: 4. Jóhann Pétur Jensson 5. Jón Ágúst Gunnarsson Að auki: Reynir Ingólfsson Strákar 14-15 ára: 4. Ivar Sæland Strákar 16-17 ára: 1. Georg Hilmarsson 3. Gunnar Öm Þórðarson Stúlkur 18-39 ára: 1. Elma Rut Þórðardóttir Strákar 18-39 ára: 1. Axel Sæland 2. Guðni Páll Sæland Konur öldungar: 1. Margrét Sverrisdóttir 2. Áslaug Sveinbjömsd. Karlar öldungar: 1. Þórður G. Halldórsson 2. Gústaf Sæland Urslit í stigakeppni: 1. Umf. Bisk. 71 stig 2. Umf. Garpur 54 stig 3. Umf. Hrunam.13,5 stig 4. Mímir frá M.L. 10 stig 5. Umf. Skeiðam. 6 stig 6. Umf. Trausti 1,5 stig H.S.K. meistarar í borðtennis 1998. Þess má að lokum geta að þetta var í fjórða skiptið í röð sem félagið hefur unnið bikarinn. Hafi okkar fólk þökk fyrir þátttökuna. Borðtennisdeildin. Litli - Bergþór 15

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.