Litli Bergþór - 01.03.2003, Blaðsíða 4
Formannspistill
Hinn 22. febrúar var haldið 81. héraðsþing HSK
í Þjórsárveri. Um 90 manns mættu á þingið frá 38
aðildarfélögum HSK og einu sérráði sambandsins
auk stjórna og gesta.
Nutu fulltrúar gestrisni félaga úr Umf. Vöku og
Villingaholtshrepps.
Margt var rætt á þinginu og ýmis mál reifuð.
Formannsskipti urðu í sambandinu þar sem Ámi
Þorgilsson á Hvolsvelli, sem verið hefur formaður
frá 1995, gaf ekki kost á sér. En maður kemur í
manns stað, og Gísli Páll Pálsson úr íþróttafélaginu
Hamri í Hveragerði tók við formennsku. Árna voru
þökkuð góð störf í þágu sambandsins og Gísli Páll
boðinn velkominn til starfa. Þess má geta að Gísli
Páll hefur starfað í stjórn sem ritari og gjaldkeri.
Fram kom að fjárhagsstaða sambandsins er betri en
fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir og munar þar verulega
um aukna greiðslu frá lottóinu.
Nokkur umræða varð um mætingu fulltrúa og að
borið hefði á því að menn færu áður en þingstörfum
lyki. Engilbert Olgeirsson framkvæmdarstjóri
upplýsti að heimild væri að halda eftir af
lottógreiðslu til félaga sem sendu ekki fulltrúa sína
og miðað við lottógreiðslur sem HSK fékk á síðasta
ári var gildi hvers fulltrúa rúmar 24.000 kr. Nóg um
það. Meðal gesta á þinginu var Anna Möller úr
stjórn UMFI og kom fram í orðum hennar meðal
annars að talsverð aukning væri á iðkun fimleika á
sambandssvæðinu.
Vigdís Guðjónsdóttir spjótkastari Umf. Skeiða-
manna var kosin íþróttamaður HSK í annað skipti.
Vigdís sigraði á öllum mótum innanlands í
spjótkasti og varð í fjórða sæti á Evrópumóti í Tallin
í Eistlandi þar sem hún kastaði 49,42 m. Óskum við
Skeiðamönnum
til hamingju með
afrek hennar.
Okkar maður
Axel Sæland
varð í 14. sæti í
kjörinu sem
borðtennismaður
og óskum við
honum innilega
til hamingju með
'góðan árangur.
Ungmennafélagið stóð fyrir námskeiði í skyndi-
hjálp í Aratungu 13. febrúar í samvinnu við
Rauðakrossdeild á Suðurlandi. Leiðbeinendur á
þessu námskeiði voru Tómas Þórir Jónsson og
Sigríður Sæland. Þau fóru yfir ýmis mikilvæg atriði
eins og legu sjúkra og slasaðra, mat á ástandi
slasaðra og mismun á blæstri og hjartahnoði við
börn og fullorðna. 15 manns sóttu námskeiðið.
Á þessum björtu dögum og vorveðráttu óska ég
lesendum alls góðs og þakka öllum þeim er leggja
Ungmennafélaginu lið.
Með kveðju.
Guttormur Bjamason.
Sigríður Sœland hjartahnoðar.
Heiðursfélaga minnst
Eiríkur Ágúst Sæland heiðursfélagi í Ungmennafélag Biskupstungna andaðist 22.
nóvember 2002, áttatíu ára. Hann var fæddur 28. apríl 1922 í Hafnarfirði og ólst þar
upp. Eiríkur flutti í Biskupstungurnar ásamt fjölskyldu sinni í maí 1948. Fyrstu árin
fóru í uppbyggingu gróðrastöðvarinnar Espiflatar. Eiríkur hafði lítil afskipti af
Ungmennafélaginu á þeim árum, en þegar börn hans komust til þroska og fóru að
stunda sund og aðrar íþróttir varð hann mjög virkur félagi. Hann var kosinn formaður
1959 og var það til 1962. Hann var formaður þegar Aratunga var að komast í notkun.
Það þótti öllum sjálfsagt að hefja starfið í Aratungu með veglegri leiksýningu, og var íslenska leikritið
Lénharður fógeti valið sem fyrsta verkefni á fjalir Aratungu.
Eiríkur lék ekki, en sá um að hvísla og komu góðir hæfileikar og bókhneigð þar sér vel ásamt allri
annarri umsýslu, en leikstjóri var Eyvindur Erlendsson. Þá var Eiríkur bókavörður og í bókasafnsnefnd og
sá um bókakaup um árabil.
Hann vann í félaginu af miklum krafti og dugnaði. Hann var kosinn heiðursfélagi þegar félagið varð
áttatíu ára 1988.
Fyrir hönd Ungmennafélags Biskupstungna vil ég þakka hans ágætu störf fyrir félagið og einnig fyrir
samstarfið sem við áttum í bókasafninu. Ég sendi Huldu konu hans og börnum samúðarkveðjur og bestu
þakkir fyrir liðin ár.
Sigurjón Kristinsson.
Litli Bergþór 4