Litli Bergþór - 01.03.2003, Blaðsíða 7

Litli Bergþór - 01.03.2003, Blaðsíða 7
Hreppsnefndarfréttir 7. fundur byggðaráðs 29. október. Mættir voru byggðaráðsfulltrúar sveitarfélagsins. Bréf frá Hrafni Bragasyni varðandi reglur um útplöntun trjáa í Laugarási. Erindinu vísað til umhverfisnefndar til kynningar og sveitarstjóra falið að leysa úr þeim ábendingum sem þama koma fram. Bréf frá trúnaðarmönnum hjólhýsaeigenda, Laugarvatni. Byggðaráð felur sveitarstjóra í sam- ráði við verkstjóra sveitarfélagsins á Laugarvatni að fara yfir framkvæmdalistann en vísar honum að öðru leyti til gerðar fjárhagsáætlunar. Bréf frá Snæbirni Þorkelssyni vegna skóla- aksturs Austurey-Laugarvatn. Bókun Drífu: „Drífu finnst sérkennileg staða með skólaakstur við Grunnskólann á Laugarvatni en útboð vegna hans virðist ekki hafa farið fram s.l. vor, þótt samningar við skólabílstjórana væru lausir.“ Sveitarstjóri upplýsti að tilboð vegna skólaaksturs Austurey - Laugarvatn verða opnuð á morgun miðvikudag 30. október en gert hafði verið ráð fyrir áframhaldandi samningum við núverandi bflstjóra. Ábendingar frá verkefninu Fegurri sveitum eftir heimsóknir á sveitabæi í Laugardal. Sent um- hverfisnefnd til kynningar. Bókun Drífu: „T-listinn telur það forgangsmál að skipuleggja gámasvæðið við Laugarvatn og koma því í viðunandi horf, enda er það forsenda þess að Gámaþjónustan taki ábyrgð á svæðinu." Sveitarstjóri upplýsti að byggingar- verktaki hefur verið fenginn til að gera kostnaðaráætlun vegna gámasvæðisins. Áskorun frá Kvenfélagi Laugdæla um úrbætur í samgöngumálum. Erindinu vísað til samgöngu- nefndar til afgreiðslu. Reglur um greiðslur fyrir refa- og minkaskott. Tillaga um að hætta greiðslum fyrir rninka- og refaskott til annarra en þeirra sem hafa lögheimili í sveitarfélaginu og hafa löglegt veiðikort. Sveitarfélagið mun áfram semja við þá aðila sem hafa sérhæft sig í veiði refa. Fundargerð stjórnar Brunavama Árnessýslu frá 16. október 2002 og tillaga að framtíðar fyrirkomu- lagi eldvama í Bláskógabyggð. í framhaldi af fundi stjómar Brunavama Ámessýslu með fulltrúum Bláskógabyggðar leggur byggðaráð til að gengið verði til samstarfs við Brunavarnir Árnessýslu um brunavarnir í sveitarfélaginu. Tillaga að samþykkt fyrir hundahaldi í Blá- skógabyggð ásamt gjaldskrá fyrir hundahald. Byggðaráð leggur til að samþykkt fyrir hundahald verði samþykkt og að gjaldskráin verði afgreidd á næsta fundi sveitarstjórnar. Minnisblað frá Orkuveitu Reykjavíkur v/ Hita- veitu Laugarvatns. Niðurstaða Orkuveitunnar er samhljóða athugun sveitarstjórnar um að létta þarf lánum af veitunni til þess að hún verði rekstrarhæf. Sveitarstjóra falið að koma með tillögur fyrir lokaaf- greiðslu fjárhagsáætlunar 2003 um úrlausn vegna skuldastöðu veitunnar þannig að hún geti staðið undir sér til framtíðar. Bókun Drífu: T-listinn leggur áherslu á að unnið verði að samræmingu í veitu- málum alls sveitarfélagsins enda sé það forsenda þess að Hitaveitan á Laugarvatni verði rekstrarhæf. Bréf frá Deloitte & Touche hf. Þar sem farið er fram á að fallið verði frá forkaupsrétti vegna Eiríksbakka í Biskupstungum. Kynnt og samþykkt að falla frá forkaupsrétti. Bréf sveitarstjóra þar sem hann fer fram á að- stoð KPMG- Endurskoðunar við útreikninga á rek- strarstöðu Bláskógabyggðar. Kynnt, en KPMG er að vinna að uppgjöri gömlu sveitarfélaganna en mun að því loknu vinna tillögur sem lagðar verða fyrir sveitarstjóm á milli umræðna við gerð fjárhags- áætlunar 2003. Samþykkt Bláskógabyggðar um að koma á hreinsun fráveituvatns og reglubundinni losun, vinnslu eða förgun seyru í samræmi við reglugerðir um fráveitur. Kynnt. Frá Náttúruvernd ríkisins vegna framkvæmda- leyfis fyrir námu í Grafarlandi Laugardal. í fram- haldi af umsögn Náttúruverndar ríkisins leggur byggðaráð til að veitt verði framkvæmdarleyfi fyrir námu í landi Grafar með svipuðum skilyrðum og Náttúruverndin leggur til. Sveitarstjóra falið að ganga frá framkvæmdaleyfi með kvöðum til leyfis- hafa. Þá verði náman auglýst sem breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Samþykki fyrir reikningsláni að fjárhæð kr. 40.000.000 í Landsbanka fslands þangað til lánsþörf sveitarfélagsins verður leyst með öðrum hætti. Kynnt og samþykkt. Afréttarmál á Kili, öryggismál. Bókun Drífu: „Drífa fagnar því að gerðar voru öryggisráðstafanir á neyðarútgöngu í Sandárbragganum, en sett hafði verið upp neyðarljós yfir dyrum. Þetta vakti mikla öryggistilfinningu fjallmanna, fram eftir nóttu, meðan batteríið dugði. Hún vonar að þetta sé upp- hafið að enn frekari úrbótum á aðstöðu fjallmanna við Sandá.“ Beiðni T-lista um aðstöðu í Aratungu fyrir viðveru - og símatíma. Vel tekið í málið og verður málið unnið í samvinnu við skrifstofu Bláskóga- byggðar. Fyrirspurn Drífu um viðhald heimreiða að lögbýlum og hvort sveitarfélagið hafi sett sér reglur um þessi atriði? Formaður byggðaráðs upplýsti að sveitarfélagið hefur enga fjármuni til viðhalds heim- reiða heldur sér Vegagerðin um öll viðhaldsmál og fjármunir til þess eru takmarkaðir. Fyrirspurn Drífu um ráðningartíma Margeirs Ingólfssonar formanns byggðaráðs sem verkefna- Litli Bergþór 7

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.