Litli Bergþór - 01.03.2003, Side 13
Hreppsnefndarfréttir
aframkvæmd en vonast til að farsæl lausn finnist á
málinu.
Bréf frá Meðferðarheimilinu Torfastöðum
dags. 7. janúar 2003 þar sem gerð er athugasemd
við fasteignaálagningu á Torfastöðum. Byggðaráð
leggur til að sveitarstjóra í samstarfi við rekstrarað-
ila á Torfastöðum verði falið að skilgreina nákvæm-
lega hvaða hluti húsnæðisins fellur beint undir
skólastarfsemi og miða álagningu fasteignagjalda
við það.
Bréf frá sóknarnefnd Torfastaðakirkju dags. 7.
janúar 2003 þar sem farið er fram á að sveitarfélagið
veiti fé til að kosta girðingu utan um kirkjugarðinn.
Vísað til fjárhagsáætlunar 2003 og sveitarstjóra falið
að kynna sér framkvæmdimar við garðinn.
Bréf frá íþróttadeild Umf.Bisk. dags. 14. janúar
2003 þar sem farið er fram á að sveitarfélagið veiti
styrk til kaupa á áhöldum til fimleikaiðkunar. Vísaða
til fjárhagsáætlunar 2003.
Bréf frá Hestamiðstöð Suðurlands ehf dags. 13.
janúar 2003 þar sem farið er fram á það við sveitar-
félög sem ekki hafa lagt fjármagn til verkefnisins
geri það sem fyrst í samræmi við gefin loforð. Vísað
til fjárhagsáætlunar 2003.
Gjaldskrá vegna fyrirtækja og annarra sem vilja
hafa sér sorpgám. Byggðaráð leggur til að gjald
fyrir 5 m3 gám verði kr 2.000 pr. losun og fyrir 8
m3 verði kr 3.200 pr. losun. Gámana verður að losa
að lágmarki tvisvar í mánuði. Þessi gjaldskrá tekur
gildi 1. apríl 2003.
Gámasvæðið Laugarvatni. Sveitarstjóra falið
að ræða við Gámaþjónustuna hf um uppbyggingu
gámasvæðis á Laugarvatni og fjármögnun þess.
Kaupsamningur um jörðina Arnarholt í
Biskupstungum þar sem Arnór Karlsson og Guðni
Lýðsson selja Sigríði Jónsdóttur og Sævari
Bjarnhéðinssyn jörðina. Byggðaráð leggur til við
sveitarstjórn að hún falli frá forkaupsrétti.
13. fundur byggðaráðs 3. febrúar
Mættir voru:
Byggðarráðsfulltrúar sveitarfélagsins og
sveitarstjóri sem ritaði fundagerð.
Lögð fram fundargerð fræðslunefndar Bláskóga-
byggðar frá 27. janúar 2003 og umsagnir kennara og
skólastjóra við grunnskólana Laugarvatni og
Reykholti. Einnig umsögn foreldraráðs
Grunnskólans Laugarvatni.
Farið yíir drög að fjárhagsáætlun 2003. Næstu
vinnudagar byggðaráðs vegna fjárhagsáætlunar
verðall. febrúar og mánudaginn 17. febrúar.
11. fundur sveitarstjórnar 4. febrúar
Mætt voru: Sveitastjóm auk sveitastjóra
Farið yfir íbúaskrá sveitarfélagsins sem liggur
frammi á skrifstofu sveitarfélagsins. Engar
athugasemdir voru gerðar og verður hún send
Hagstofu íslands til staðfestingar.
Ibúafundur í Aratungu, mánudagskvöldið 10.
febrúar kl. 20:30. Rætt um skipulag fundarins.
Akveðið að fjalla sérstaklega um stöðu sveitar-
félagsins, fjármál, fræðslu- og veitumál. Gert er ráð
fyrir að allir sveitarstjómarmenn sitji fyrir svörum.
Fræðslumál. Umræða um skipulag grunnskóla í
Bláskógabyggð. Fyrir fundinum lágu álitsgerðir frá
fræðslunefnd Bláskógabyggðar frá 27. janúar 2003
og umsagnir kennara og skólastjóra við grunn-
skólana Laugarvatni og Reykholti. Einnig umsögn
foreldraráðs Grunnskólans á Laugarvatni. Sveitar-
stjórn þakkar fyrir greinagóða umfjöllun allra
hlutaðeigandi.
Sveinn A. Sæland bauð velkomna gesti fund-
arins skólastjóra Grunnskólans á Laugarvatni, Helga
Baldursson og Reykholti, Arndísi Jónsdóttur auk
forstöðumanns skólaskrifstofu Suðurlands, Kristínu
Hreinsdóttur sem boðuð voru á fundinn til að ræða
möguleika á hagræðingu og sparnaði í grunnskólum
Bláskógabyggðar. Kristín gerði grein fyrir
útreikningum Skólaskrifstofunnar og kennslumagni
skólanna og skólastjórarnir komu með athugasemdir
sínar og ábendingar með hvaða hætti þeir sjái skipu-
lag og framtíð skólanna. Góðar umræður urðu um
stöðu skólamála og komu fram mismunandi
skoðanir á gildi samkennslu, útreikningum á
hagræðingu, félagslegan og faglegan ávinning af
kennslu unglinga á einum stað. Oddviti lagði til við
sveitarstjórnarmenn að þeir hugleiddu þessi mál vel
með það í huga að taka ákvörðun á næsta fundi
sveitarstjórnar 25. febrúar 2003. Bjarni Þorkelsson
vék af fundi undir þessum dagskrárlið.
14. fundur byggðaráðs Bláskógabyggðar
haldinn þriðjudaginn 11. febrúar 2003, kl. 13:30 í
Fjallasal Aratungu.
Mættir voru byggðaráðsfulltrúar sveitarfélagsins
og sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Farið yfír drög að fjárhagsáætlun 2003.
15. fundur byggðaráðs 17. febrúar
Mættir voru byggðaráðsfulltrúar sveitarfélagsins
og sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Bréf frá Birgitte Steen dags. 23. janúar 2003
um vinabæjartengsl við Holbæk í Danmörku. Kynnt
og samþykkt að fela sveitarstjóra að vinna nánar í
málinu með ungmennaskipti í huga.
Svar Skipulagsstofnunar frá 13. febrúar 2003
við aðalskipulagsbreytingu í landi Grafar,
Laugardal. Þar er auglýsingu á aðalskipulagstillögu
hafnað nema á undan fari kynning á markmiðum og
forsendum breytinganna fyrir hagsmunaaðilum.
Bréf frá Hreiðari Þórðarsyni frá 13. janúar 2003
vegna efnistöku úr námu í landi Grafar.
Sveitarstjóra falið að svara erindinu í samræmi við
aðalskipulag Laugardalshrepps, fyrri samþykktir
Litli Bergþór 13