Litli Bergþór - 01.03.2003, Qupperneq 16

Litli Bergþór - 01.03.2003, Qupperneq 16
Starfsemi Landgræðslufélags Biskupstungna 2002 Fyrsta verk stjórnar á árinu var að fara á fund í Gunnarsholti 16. maí til að skipuleggja starf sumarsins og einnig var starfsemin þar skoðuð. Þar var ákveðið að halda áfram með þau verkefni sem hafin eru og gekk það að mestu eftir. Dagana 21. júní til 23. júní var farið í áburðar- dreifingu og sáningar á afréttinum. Arnheiður í Gýgjarhólskoti sá um skipulagningu og stjórnun á verkinu. Fyrsta daginn fóru nokkrir bændur með vélar sínar og dreifðu áburði á Tunguheiði og utan girðingar með veginum í átt að Sandá. Einnig var borið á uppgræðsluna norðan við Sandá og inn við Fremstaver. Daginn eftir var farið inn í Árbúðir með tvær vélar, önnur með áburðardreifara og hin með ámoksturstæki. Dreift var áburði í kringum Árbúðir. Síðan var sáð og borið á í rofabörðin suður með Svartá sem búið er að dreifa heyi í árið áður og ætlun var að dreifa heyi í seinna að sumrinu. Ekki tókst að ljúka verkinu því áburðardreifarinn bilaði. Ekki dugði að gefast upp og enn var farið daginn eftir og byrjað á að koma við í Tjarnheiðarbrúninni til að sá og bera á undir hey. Svo var haldið inn í Svartárboma, borið þar á og síðan klárað í kringum Árbúðir. Á þessum dögum var dreift rúmum 50 tonnum af áburði og um 150 kg af fræi. 1 girðingunni við Rótamannagil báru þeir Spóastaðafeðgar á eitt bretti af áburði í rofabörðin. Farið var í lok júní að torfunum við Sandvatn, sem búið er að girða af, undir forystu Guðna Lýðssonar. I förinni var dráttarvél með rúllutætar- ann, og stór vörubíll með rúllum, dráttarvél með áburðardreifara, ámoksturstæki og vagn af rúllum. Alls fóru þangað rúmar 50 rúllur frá Hjarðarlandi. Einnig voru nokkrir sjálfboðaliðar ásamt vélamönn- unum. Eitt bretti af áburði og aðeins af fæi voru komin á staðinn. Dreift var áburði í börðin bæði með höndum og með dreifaranum. Heyi var dreift með tætaranum, en ekki tókst að ljúka verkinu vegna þess að drifskaftið á rúllutætaranum gaf sig og bíða 17 rúllur eftir því að vera dreift þar. Seinni partinn í júlí og ágúst var svo farið í stóra verkefni sumarins og sá Eiríkur í Gýgjarhólskoti um framkvæmd á því. Styrkur fékkst úr Umhverfissjóði verslunarinnar til að dreifa heyi í rofabörð inná afrétti. Fengust 400.000 kr. með því skilyrði að leggja eitthvað á móti. Fluttar voru og dreift, í tveimur áhlaupum, 233 heyrúllum í rofabörð inn við Svartá og í Tjamheiðarbrúnina. Rúllurnar komu að mestu frá Drumboddstöðum og voru 152 þeirra lluttar í 4 ferðum á vörubíl með tengivagn. Einnig voru rúllur fluttar á traktorsvögnum til að nýta ferðina. Fyrri tvo dagana var rúllum dreift á rof- jaðarinn á Svartártorfunum suður frá Árbúðum. í seinni ferðinni voru kláraðar þær rúllur sem eftir voru við Svartá og dreift í Tjarnheiðarbrúnina norður frá veginum í Hvítámes. Verið var með tvær dráttarvélar í þessu. Önnur með rúllutætarann og hin með ámoksturstæki til að moka í tætarann. Einnig var vinnuflokkur frá Landgræðslunni, undir forystu Magnúsar á Kjóastöðum, ásamt vélamönnunum til aðstoðar og fleirum. Fóru um 60 rúllur á kílómetra af rofbrúnum og meðalafköstin voru um 5 til 6 rúll- ur á klst. með flutningi að dreifingarstað. Þó nokkur Stjórn Landgrœðslufélags Biskupstungna skoðar árangur af uppgrœðslu við Svartártorfur. vinna er við þessa dreifingu fyrir utan beina véla- vinnu því mikið fellur til af plasti og gami sem þarf að taka til handargagns. Aðalfundur félagsins var haldinn 28. október. Auk venjulegra aðalfundarstarfa vom haldin erindi á fundinum. Björn H. Barkarsson frá Landgræðslunni flutti erindi um athugun sína á viðhorfum um nýtingu afrétta til beitar, Sveinn Sæland ræddi um framtíð Biskupstungnaafréttar, eignarhald' og notkun og Eiríkur Jónsson sagði frá kostnaðarútreikningum við uppgræðslu með dreifingu á rúlluheyi með rúllutætara. Síðasta verk sjómar á árinu var eins og í upphafi starfsársins ferð í Gunnarsholt 15. nóvember. Að þessu sinni var það til að taka á móti landgræðsluverðlaunum fyrir hönd félagins. í stjórn Landgræðslufélgsins eru Þorfinnur á Spóastöðum, Arnheiður í Gýgjarhólskoti og Margeir á Brú. Arnheiður Þórðardóttir Litli Bergþór 16

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.