Litli Bergþór - 01.03.2003, Qupperneq 26
Þœr sem eftir eru í klúbbnum eftir 30 ára samveru: Barbara í
Ási, Gerða, Berbel á Syðri-Reykjum og Renata.
Zontaklúbbur Selfoss, sem er einn af 6 starfandi
Zontaklúbbum á íslandi, hefur í áratugi verið minn
félagsvettvangur og er ég nú varaformaður. Tek við
formennsku í maí, í annað sinn á félagstíma mínum
þar. Zontahreyfingin er alþjóðleg hreyfing kvenna
til að hjálpa konum um allan heim, sérstaklega í
þriðja heiminum, en líka á Islandi. Markmiðið er að
efla skilning, samhug og frið í heiminum. Nú helg-
um við Zontakonur á Islandi krafta okkar konum
sem lifa við ofbeldi og vinnum með Stígamótum.
Nú, svo höfum við þýska fólkið hér í nágranna-
sveitunum félag og hittumst oft og eins tökum við
þátt í Þýsk-íslenska vinafélaginu á Suðurlandi.
L-B: Eins og komið hefur fram eigið þið
Gunnlaugur 5 böm. Segðu mér nánar frá þeim og
hvað þau gera.
Renata: Elst er Barbara, þroskaþjálfi í Berlín.
Hún er í sambúð með Tomas Schwarzlose, doktor í
efnafræði og þau eiga 2 börn, Valgerði Aniku f.
2000 og Kjartan Tobias f. 2002. Hún fór út til
Þýskalands strax eftir stúdentspróf og það hefur
verið ómetanlegt fyrir móður mína að hafa hana
þarna úti og fyrir mig að vita af henni þar, sérstak-
lega núna eftir að móðir mín er orðin gömul og ófær
um að hugsa um sig sjálf.
Næst er Helga, doktor í matvælaverkfræði, sem
hefur unnið hjá Iðntæknistofnun í Reykjavík, en er
nú um þessar mundir að hefja störf sem deildarstjóri
á Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins að Skúlagötu 4.
Hún er gift Óskari Þór Jóhannssyni doktor í krabba-
meinslækningum og þau eiga líka 2 böm, Kristínu,
f. 1992 og Daníel f. 1999.
Þriðja í röðinni er Elín, tónskáld, nýbúin að ljúka
8. stigi í söng og vinnur aðallega sem tónlistarmaður
og tónlistarkennari. Hún er gift Bjama Harðarsyni,
blaðamanni héðan úr Laugarási, syni Ingibjargar og
Harðar sem bjuggu til skammst tíma í Lyngási. Þau
búa á Selfossi og eiga tvo syni saman, Egil f. 1988
og Gunnlaug f. 1992. Svo hafa þau líka alið upp
Magnús, son Bjama, sem er nýorðinn 19 ára, f.
1984 og fyrir átti Bjarni líka Evu Bjarnadóttur, f.
1983.
Sá fjórði er Skúli Tómas, læknir. Hann er kvænt-
ur Bryndísi Sigurðardóttur lækni, dóttur Sigurðar
landlæknis. Gunnlaugur skýtur inní að þeirra synir
séu því komin af tveimur af þeim 5 landlæknum
sem setið hafi á íslandi, þeim fyrsta, Bjama Pálssyni
og þeim síðasta, Sigurði Guðmundssyni. Þau Skúli
og Bryndís eru við framhaldsnám í Iowa í
Bandaríkjunum, hann í hjartalækningum og hún í
smitsjúkdómum. Þeirra synir eru Hjalti Gunnlaugur,
f. 1994 og Guðmundur Ingvi, f. 2001.
Yngstur er svo Hákon Páll, trésmíðameistari.
Hann er í sambúð með Huldu Kristófersdóttur,
snyrtifræðingi og þau eiga tvær dætur, Þóreyju f.
1999 og Eygló Rut, f. 2001 og búa hér í Reykholti.
Þegar hér er komið sögu er liðið á kvöld, leikur
að byrja í heimsmeistarakeppninni í handbolta í
sjónvarpinu og viðtalið við Gunnlaug verður því að
bíða betri tíma og næsta blaðs.
Blaðamaður Litla-Bergþórs kveður því í þetta
sinn og þakkar Renötu fyrir skemmtilegt spjall og
góðar veitingar.
GS
Stórfjölskyldan í garðinum í Brekkugerði.
Litli Bergþór 26