Litli Bergþór - 01.03.2003, Page 27

Litli Bergþór - 01.03.2003, Page 27
Hið árlega þorrablót Tungnamanna var haldið í Aratungu á bóndadaginn þann 24. janúar. Skálholtssókn sá um blótið að þessu sinni af sinni alkunnu snilld. Salurinn var skreyttur í bláum litum sem tákn nýs sveitarfélags. Að venju komu allir með sitt trog fullt af þorramat og drykki til að svala þorstanum. Þegar allir voru sestir í sín sæti bar skemmtinefndin inn í salinn fullan bakka af bláleitum drykk bæði áfengum og óáfengum í litlum staupum merkt þorrablót- inu og sókninni, sem allir máttu taka með sér heim þegar búið var að renna niður ljúfengna drykknum. Valbjörg kennari og Gunnlaugur dýralœknii: Henk og Gúlli Þegar allir voru búnir að gæða sér á þorramatnum byrjuðu skemmtiatriðin. Þau voru að mati viðstaddra vel úr garði gerð og sókninni til mikills sóma. Það var hlegið dátt og ekki sást betur en að allir skemmtu sér vel, og ekki síður þeir sem grín var gert að. Eftir að skemmtiatriðunum lauk, var tekið til við að færa borðin upp á svið svo að hægt yrði að stíga trylltan dans. Hljómsveitin Upplyfting spilaði fyrir dansi þetta kvöld. Héldu þeir uppi fjörinu þar til yfir lauk um klukkan þrjú, þegar fólk fór að halda til síns heima með þreytta fætur eftir dansinn en glatt í hjarta eftir frábært kvöld í faðmi vina og kunningja. MAG Olafía og sr. Egill i Skalholti Bœndurnir Sœvar í Arnarholti og Heimir á Króki. Loftur og Vilborg á Myrkholti Kona Olafs Lyös og Arnor Karlsson Heiöa og Hilmar Orn skemmta Þorrablót 2003 Skólastjóri og vígslubiskup. Bernharður og Rannveig í Skálholti. Asborg, Helga og Unnur. Litli Bergþór 27

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.