Foreldrablaðið - 01.11.1959, Page 10
Austurbæjarskóli.
Skólastjóri: Arnfinnur Jónsson. — Yfirkennari: Jónas Jósteinsson.
í vetur eru í skólanum 1320 börn í 47 bekkjardeildum. Er það nokkur
fækkun síðan í fyrra, en þá voru 1453 börn í skólanum í 53 bekkjardeildum.
Þær breytingar hafa á orðið, að 9 ára börn úr Hlíðaskólahverfi, sem áður
fluttust í Austurbæjarskólann, verða nú áfram í Hlíðaskóla. Þá hefur börn-
um á skólaskyldualdri fækkað nokkuð í gamla bænum, og eru því allmörg
8 ára börn úr Miðbæjarskólahverfi látin sækja Austurbæjarskólann í vetur.
Vegna þessarar fækkunar er því aðeins tvísett í skólastofurnar.
Breiðagerðisskóli.
Skólastjóri: Hjörtur Kristmundsson. — Yfirkennari: Gunnar GuÖröðsson.
í vetur eru í skólanum 1273 börn í 46 bekkjardeildum. Þrengsli eru mikil
og er þrísett í 16 af 17 kennslustofum. Nú er verið að ljúka viðbyggingu við
skólann og er þar mjög vistlegur samkomusalur. f ráði er að byggja aðra álmu
við a&albygginguna og verða þar 10 kennslustofur. Búið er að bjóða út verkið.
8 FORELDRABLAÐIÐ