Foreldrablaðið - 01.11.1959, Qupperneq 34

Foreldrablaðið - 01.11.1959, Qupperneq 34
Ég vil nefna hér sem dæmi Major- stua-skóla í Olsó. Skólinn stendur á krossgötum og slysahættan því mikil í grennd við hann. Það var því brýn nauðsyn þar, að nemendur öðluðust meira öryggi í umferðinni. Haustið 1952 hófst þessi starfsemi við skólann og fyrsta gæzlusveitin tók til starfa, sú fyrsta í landinu. Mér er persónulega kunnugt um, að skólastjórinn þar beitti sér af alhug fyrir þessu. Hann tjáði mér, að síðan þessi starfsemi hófst, hefði slysum fækkað um helming í grennd við skólann. Það var tekið fullt tillit til sveitarinnar, þegar hún tók til starfa. Starfsemi þessi fer nú fram í nærfellt 50 skólum þar í borg. Hver gæzlusveit skiptist í þrjár deild- ir, hver deild starfar viku í senn og 32 FORELDRABLAÐIÐ tekur þátt í stjórn götuumferðarinnar fjórum sinnum á dag, þ. e. á þeim tíma, þegar flest börn eru á ferð að og frá skólanum. Þessi starfsemi hefur gefizt sérstaklega vel. Á hverjum degi fara hundruð barna út á götur og gatnamót í grennd við skólana í Osló og taka þátt í stjórn umferðarinnar, jafnt akandi sem gangandi manna. Það hefur oft komið í ljós, að fullorðið fólk getur mikið lært af börnunum varðandi um- ferðarreglur og öryggi í umferð. Það er talið mjög auðvelt að kenna börnum frumatriði slíkra reglna og hér er um að ræða. Þess vegna er umferð gang- andi manna tekin til meðferðar um leið og börn hefja skólagöngu. Síðast öðlast þau svo fræðslu um skyldur og rétt ökumanna.

x

Foreldrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.