Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1952, Blaðsíða 45
höfundur þjóðsöngs íslenzkra sveita
25
Huld og Sverrir. Málfríði konu sína
missti Sigurður frá þeirra stóra
barnahóp árið 1916, og var honum
með fráfalli hennar á bezta skeiði,
sem vænta mátti, þungur harmur
kveðinn, þó að hann bæri þá djúpu
s°rg í hljóði, enda var hann svo
skapi farinn, að dómi kunnugra, að
hann flíkaði sjaldan tilfinningum
sínum.
En það var Sigurði harmabót og
gæfa, að hann kvæntist á ný árið
1918 hinni mestu afbragðskonu, þar
sem var Hólmfríður Pétursdóttir
Jónssonar alþingismanns og ráð-
herra á Gautlöndum, er lifir mann
sinn ásamt fimm börnum þeirra
hjóna: Þóru, Arnheiði, Jóni, Mál-
fríði og Eysteini. „Reyndist Hólm-
fríður mikil húsfreyja og frábær
móðir stjúpbörnum sínum eigi síður
en eigin börnum. Er Hólmfríður
landskunn vegna skörungsskapar
eins og hún á ætt til og vegna þátt-
tóku sinnar í málefnum kvenna.“
(Jónas Þorbergsson í fyrrnefndri
grein sinni). Eins og kvæði hans til
hennar bera með sér, kunni Sigurður
einnig vel að meta þessa mikilhæfu
°S ágætu konu sína.
Sigurður andaðist í sjúkrahúsi
Akureyrar hinn 24. febrúar 1949 eftir
ÞUnga sjúkdómslegu. Gekk með hon-
um grafarveg mikilsvirtur bænda-
höfðingi, er einnig hafði skipað vel
sess sinn á Bragabekk.
II.
Þó að Sigurður Jónsson ætti fyrir
storu og mannmörgu heimili að sjá,
helgaði því fyrst og fremst krafta
sína og gengi þar að allri erfiðis-
'únnu meðan heilsa hans leyfði,
gegndi hann jafnframt fjölda trún-
aðarstarfa í þágu sveitar sinnar og
héraðs, og það í svo ríkum mæli, að
hann stóð í fremstu röð slíkra for-
ystumanna. Hann átti sæti í hrepps-
nefnd um 15 ára skeið, og var for-
maður Búnaðarfélags sveitar sinnar
í 35 ár. Fulltrúi Þingeyinga á Búnað-
arþingi var hann í 10 ár og jafnframt
endurskoðandi hjá Búnaðarfélagi ís-
lands.
Einkum hafði Sigurður þó snemma
á árum orðið snortinn af hugsjón-
um samvinnuhreyfingarinnar, af
þeirri öldu þessarar merku og á-
hrifamiklu félagsmálahreyfingar, er
fór eldi vakningar um Þingeyjar-
sýslu á æskuárum hans. Vann hann
einnig fyrr og síðar mikið fyrir sam-
vinnufélagsskapinn og útbreiðslu
samvinnustefnunnar. Fór, meðal
annars, um skeið fyrirlestrarferðir
víða um land sem erindreki Sam-
bands íslenzkra samvinnufélaga. Sat
í heilan aldarfjórðung í stjórn Kaup-
félags Þingeyinga og var formaður
þess árum saman; í stjórn Sambands
íslenzkra samvinnufélaga var hann
í 15 ár og varaformaður þess í 8 ár.
Kári Tryggvason skáld hitti því
ágætlega í mark, er honum fórust
þannig orð í einkar hlýju og vel
ortu minningarljóði sínu um Sigurð
Jónsson:
Hollar stejnur hylltir þú og dáðir.
Hug þinn lífið vígði annastraum.
Samvinnunnar sigurmerki þráðir,
sást þar rætast hugum kæran draum.
Sjálfur hefir Sigurður hyllt sam-
vinnustefnuna í hreimmiklum
„Samvinnusöng" sínum, er hefst
með þessu erindi: