Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1952, Page 106

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1952, Page 106
86 TÍMAKIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA sterki persónuleiki þeirra allflestra. Þau eru testamenti viðkvæmrar sál- ar, sem ekki virðist hafa altaf átt sjö dagana sæla. Bökin er prentuð heima á íslandi, og hefir Snæbjörn Jónsson skjala- þýðari og ritstjóri séð um útgáfuna. Ekki stendur þó nafn hans á titil- blaði hennar, sem vel hefði þó mátt vera, þar sem hann ekki aðeins sá um fráganginn og las prófarkirnar, heldur og ritaði langan og ítarlegan inngang, sem ekki eingöngu lýsir æviferli skálkonunnar en gefur jafn- framt vinsamlegt og um leið sann- gjarnt mat á verkum hennar. í þessu æviyfirliti eru vel ort eftirmæli um skáldið, sem Snæbjörn mun hafa kveðið, þó nafn sé ekkert við. Sama má líklega geta sér til um niðurlags- kvæðið: Til Undínu heimkominnar, sem ber með sér sömu ást og aðdáun til hennar. Eins og kvæðið „Til lesandans“ bendir til, hefir bókin átt að koma út að höfundinum lifandi. En það fórst nú samt fyrir og hefði að líkum aldrei skeð, ef dóttir skáldkonunnar, sú eina sem lifir móður sína, hefði ekki hlaupið undir baggann. Er það reyndar ekkert einsdæmi hér vestra, því hér gefur enginn út bók í ágóða- skyni eða jafnvel í von um að út- gáfan borgi sig, heldur eingöngu af frændrækni og áhuga á að bjarga sprekunum á land áður en þau hverfa að eilífu í djúp gleymsk- unnar. Davíð Björnsson: RÓSVIÐIR Ijóð Þetta er ekki stór bók að vexti, að- eins um 80 blaðsíður í venjulegu formi. Enda að líkindum varla helm- ingur þess, sem eftir höfundinn ligg- ur. Er það slæmt, því jafnvel þó höfundurinn hafi valið kvæðin, þá er það ekki full trygging fyrir því, að vera betra en margt sem eftir er skilið. Ég minnist margra kvæða, sem komið hafa í blöðunum, sem fyllilega standa þessum á sporði. í fljótu kasti finst manni nafnið helzt til skrautbúið, en þegar maður fer að fletta kverinu og sér að eitt fallegasta og hlýjasta kvæðið heitir þessu nafni og er afmæliskvæði til konu höf., sem heitir Rósa, þá verður nafnið eðlilegt og viðeigandi. Davíð hefir svo oft sýnt, að honum er ekki ósýnt um að ríma, enda ber þetta kver þess fyllilega vott. Richard, Beck: A SHEAF OF VERSES Höfundurinn hefir safnað saman í þetta snyrtilega kver fimmtán úrvals kvæðum, sem hann hefir ort á enska tungu og birtst hafa á ýmsum tím- um í merkum amerískum og enskum bókum og ritum. Kvæðin eru öll áferðarfögur og vönduð að frágangi, enda gjöra hin betri enskumælandi tímarit yfirleitt hærri kröfur til ljóðagerðar en íslenzk blöð og rit almennt, sem virðast nú á dögum prenta flest eða alt, er þeim berst. P. V. G. Kolka: LANDV ÆTTIR Ljóðabálkur Páll læknir Kolka, sem hér vestra var í heimsókn fyrir tveimur árum, hefir sent vinum sínum núna um áramótin skrautprentaðan ljóða- flokk, sem hann nefnir Landvætti-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.