Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.12.1991, Qupperneq 13

Neytendablaðið - 01.12.1991, Qupperneq 13
Öryggi bifreiða Líf eða dauði það getur oltið á hönnun bílsins Tugir manna farast í umferðinni á ári hverju og hundruð manna slasast. Bifreiðin sem ekið er getur skipt sköpum um líf eða dauða eða hve alvarlega ökumenn og farþegar slasast. Rannsóknir bresku neytendasamtakanna sýna að öryggi bifreiða er verulega ábótavant, en erfiðlega hefur gengið að fá bílaframleiðendur til þess að bæta sig á þessu sviði. Á næstu síðu má sjá lista yfir fjölmargar bifreiðir og ein- kunnir sem þær fá með tilliti til öryggis. í fyrra létust 24 manneskjur í umferð- arslysum á Islandi. Rúmlega 850 manns slösuðust, þar af 211 alvarlega samkvæmt tölum frá Umferðarráði. A Bretlandi far- ast árlega um 2.400 manns og 27.000 slasast alvarlega. Koma mætti í veg fyrir fjölda dauðsfalla og alvarlegra meiðsla ef meira tillit væri tekið til öryggis við hönnun bifreiða. Bresku neytendasam- tökin hafa í áraraðir lagt mikla áherslu á öryggi bifreiða og krafist reglugerða þar sem öryggi er sett í öndvegi. Which, en hefur tekið út þær bifreiðir sem ekki eru til hér á landi, í samráði við Bif- reiðaskoðun Islands. Rannsóknarmenn bresku neytenda- samtakanna taka hvem bíl í sundur og rannsaka yfir 50 atriði sem geta skipt máli fyrir öryggi ökumanns og farþega í slysi. Þeir meta hvaða þátt hver hlutur getur átt í að valda meiðslum. Alyktanir þeirra em byggðar á upplýsingum um raunveruleg slys og tekið er mið af hinum ýmsu gerð- um óhappa sem geta orðið. Einkunnin sem hvert þessara atriða fær myndar svo heildareinkunn, sem sýnd er í töflunni. Því hærri sem einkunnin er, því betur vemdar bifreiðin þig. Bifreiðunum er skipt í flokka eftir stærð, en bera má saman einkunnir milli flokka. Eins og sjá má í töflunni er verulegur munur á öryggi bifreiðanna samkvæmt niðurstöðum Bretanna. Hæsta mögulega einkunn er 10, en enginn bíll fær hærri einkunn en 8. Einn bíll fær einkunnina 1, en margir fá lægra en 5. Það þýðir í raun að þeir hafa fallið á þessu prófi. Hins vegar má jafn- framt bæta verulega öryggi þeirra sem fá bestu einkunnir. Skilaboðin til bílaframleiðenda em því þessi: Ef öryggi er gefinn meiri gaumur við hönnun bifreiða, má bæta það veru- lega. Skilaboð til neytenda: Með því að velja rétt aukast líkumar á því að þið lifið af bílslys eða sleppið með minni meiðsl en ella. Hins vegar koma vitanlega önnur sjónarmið til greina þegar bifreið er valin, ekki síst fjárhagsleg sjónarmið og um- hverfissjónarmið. Það eru fjölmörg atriði í hönnun bflsins sem ráða því hvemig fólki reiðir af í á- rekstri. Hönnun stýrishjólsins getur til að mynda haft afgerandi áhrif á hve alvar- lega ökumaður meiðist. Öryggisbelti auka vemlega líkur á að maður lifi af árekstur. Það er engu að síður mikil hætta á að andlit eða höfuð lemjist við stýrishjólið þegar maður kastast fram. Að baki stýris- hjólsins er endi stýrisstangarinnar, sem oft er illa varinn. Það getur haft alvarlegar ■ Orygginu ábótavant I nýlegu hefti tímaritsins Which? er birtur listi yfir talsverðan fjölda bifreiða og tilgreint hvernig öryggi þeirra er háttað. Hér er átt við öryggi öku- manns og farþega í slysi, en ekki nema að litlu leyti hvemig bif- reiðin er til þess fallin að koma í veg fyrir að slys verði. Neytendablaðið birtir nú listann úr NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1991

x

Neytendablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.