Neytendablaðið - 01.11.2000, Side 2
Leiðari
Þing Neytendasamtakanna, gróskumikið starf
Eins og fram kemur í blaðinu
var haldið fjölmennt þing
Neytendasamtakanna í lok
septembermánaðar. Á þing-
inu fór fram ýtarleg umræða
um starfsemi Neytendasam-
takanna. Einnig var umræða
um verkefnin í neytendamál-
um á komandi árum Þingið
samþykkti sérstaka stefnu-
mótun í neytendamálum -
Neytendur á nýrri öld. Sam-
þykktin sýnir Ijóslega þann
kraft og gerjun sem nú er í
neytendamálum. Hér á eftir
verður fjallað um nokkur atriði
í þessari stefnumótun.
Þingið taldi mikilvægt að
Neytendasamtökin byðu
neytendum annarsvegar upp-
lýsingaþjónustu fyrir neytend-
ur þar sem meðal annars eru
upplýsingar um gæði og verð
á vörum og þjónustu og upp-
lýsingar um verðmismun á
markaði, og hinsvegar kvört-
unar- og leiðbeiningaþjónustu
fyrir neytendur þar sem tryggt
verði að neytendur fái ráðgjöf
í ágreiningsmálum við selj-
endur vöru og þjónustu og að
neytendur fái jafnframt að-
stoð við að ná fram rétti sín-
um sé þess þörf.
Þingið taldi einnig mikil-
vægt að Neytendasamtökin
starfræktu áfram úrskurðar-
nefndir fyrir neytendur í sam-
vinnu við stjórnvöld og at-
vinnulífið, en þær eru nú sex.
Þingið taldi jafnframt að koma
þyrfti á nýjum úrskurðar-
nefndum eins og úrskurðar-
nefnd um deilumál neytenda
og opinberra þjónustuaðila og
úrskurðarnefndum um ágrein-
ing neytenda vegna viðskipta
við sérfræðistéttir.
Þingið benti jafnframt á
ýmis ný mál sem Neytenda-
samtökin þurfa að sinna og
koma í höfn. Þar er fyrst að
nefna embætti umboðsmanns
neytenda. Þingið benti á að
Island er eina landið í okkar
heimshluta sem ekki hefur
sérstakt embætti umboðs-
manns neytenda. Einnig
minnti þingið á að við eigum
þess kost að móta embætti
umboðsmanns neytenda mið-
að við reynslu frændþjóða
okkar en einnig þannig að hér
geti umboðsmaður neytenda
gegnt víðtækara og áhrifa-
meira hlutverki við hags-
munagæslu fyrir neytendur en
í nágrannalöndum okkar.
Jafnframt
minnti þingið
á kröfu
Neytenda-
samtakanna
um upplýs-
ingamiðstöð
neytenda.
Slík miðstöð
er nauðsyn-
leg til að
tryggja eðlilegt upplýsinga-
streymi til neytenda um mark-
aðinn og það sem í boði er.
Neytendasamtökin telja að
upplýsingamiðstöð neytenda
þurfi meðal annars að gefa
miðlað til neytenda upplýs-
ingum um verð og gæði á
vörum og þjónustu, um laga-
legan rétt neytenda, upplýs-
ingum um fjármál, tryggingar
og húsnæðismál.
Þing Neytendasamtakanna
ítrekaði kröfur um úrbætur á
neytendalöggjöf. Nauðsynlegt
er að setja lög um innheimtu-
starfsemi þar sem skýrt verði
kveðið á um ýmis réttindi
skuldara gagnvart innheimtu-
mönnum. Samtökin telja
einnig brýnt að sett verði lög
um ábyrgðarmenn til þess að
tryggja betur stöðu ábyrgðar-
manna. Ennfremur krefjast
Neytendasamtökin þess að
alþingi setji lög um greiðslu-
aðlögun mjög skuldsettra ein-
staklinga.
Ýtarlega var fjallað um
samkeppnismál og verðlag á
íslandi í stefnu samtakanna.
Bent var á að fákeppni hefur
aukist á flestum sviðum við-
skipta og að ákveðnir aðilar
geta nánast skammtað sér
verð að geðþótta vegna
skorts á samkeppni. Samtök-
in telja að verðkannanir hafi
ítrekað sannað gildi sitt og
telja sig geta haft áhrif á vöru-
verð í landinu með vönduðum
könnunum. Þau hyggjast því
halda áfram að gera
verðkannanir og bera vöru-
verð hérlendis í vaxandi mæli
saman við verð á sambæri-
legum vörum erlendis. Mark-
miðið er að íslenskir neytend-
ur geti í framtíðinni búið við
sambærileg kjör og neytendur
í nágrannalöndunum.
Hér hafa aðeins verið
nefnd nokkur atriði í sam-
þykkt þings Neytendasamtak-
anna um stefnumótun í neyt-
endamálum - Neytendur á
nýrri öld. Um er að ræða
framsækna stefnumótun. Það
er því ekki ónýtt að samtímis
njóta neytendamál athygli og
áhuga æ víðar. Og íslenskir
neytendur sem greiða stærsta
hlutann af tekjum Neytenda-
samtakanna vilja vera með.
Það er því bjart framundan
hjá Neytendasamtökunum og
gróska í starfsemi þeirra.
Jóhannes Gunnarsson
Efnisyfirlit
Frá kvörtunar-
þjónustunni 3-5
í stuttu máli 6-9
Frá þingi Neytenda-
samtakanna 11-13
Gæðakannanir
Tölvuprentarar,
ódýrir prentarar en
dýrt að prenta 16
Tölvuskannar, góðir skannar á lágu verði 20
Að velja sér sjónauka 32
Að kaupa jólagjafirnar 4
Að flytja í nýtt húsnæði 10
Kostun í skólum 14
Sykur-hættulaus orkugjafi eða skaðvaldur? 24
Að kafna í eigin skít 28
Hördur Bergmann: Minna er betra 30
Öflugt umferðareftirlit - krafa neytenda 34
Tímarit Neytendasamtakanna, Síðumúla 13,108 Reykjavík, s. 545 1200. Netfang: ns@ns.is
Veffang: http://www.ns.is Ábyrgöarmaður: Jóhannes Gunnarsson. Umsjón með gæöakönnum:
Ólafur H. Torfason. Ljósmyndir: Sif Guöbjartsdóttir. Umbrot: Blaðasmiöjan. Prentun: ísafoldar-
prentsmiðja hf. Pökkun: Bjarkarás. Upplag: 18.000. Blaðið er sent öllum félagsmönnum í Neyt-
endasamtökunum. Ársáskrift kostar 2.800 krónur og gerist viökomandi þá um leið félagsmaöur í
Neytendasamtökunum. Heimilt er að vitna í Neytendablaðið í öðrum fjölmiðlum sé heimildar getið,
óheimilt er þó aö birta heilar greinar eða töflur án leyfis Neytendasamtakanna. Upplýsingar úr Neyt-
endablaðinu er óheimilt aö nota í auglýsingum og viö sölu, nema skriflegt leyfi Neytendasamtak-
anna liggi fyrir. Neytendablaðið er prentað á umhverfisvænan pappír.
2
NEYTENDABLAÐIÐ - nóvember 2000