Neytendablaðið - 01.11.2000, Blaðsíða 35
þess að sinna almennri sýnilegri lög-
gæslu og umferðareftirliti því hluti þeirra
er við stjómunarstörf og afgreiðslu á lög-
reglustöðvunum.
A höfuðborgarsvæðinu búa rúmlega
171.000 manns og á þessu svæði voru
skráð 115.729 ökutæki um síðustu ára-
mót. Arið 1980 voru skráðir á sama
svæði 121.698 íbúar með alls 48.452 bif-
reiðar. Það ár voru stöðugildi í umferðar-
deild lögreglunnar í Reykjavík rúmlega
40 og hafði deildin til umráða 15 lög-
reglubifhjól og 4-5 lögreglubifreiðar. Þá
voru hjá lögreglunni Hafnarfirði 6 menn
á vakt, með tvo bfla og 3 bifhjól og og
hjá lögreglunni í Kópavogi 5 menn með
tvo bfla og eitt bifhjól.
Nú eru stöðugildin í Reykjavík 24,
sem skipt er í þrjár vaktir, þ.e.a.s. 6-8
lögreglumenn á vakt í einu. Deildin hef-
ur til umráða 8 lögreglubifhjól og 2 lög-
reglubifreiðar. Löggæsla á bifhjólum
hefur lagst niður í Kópavogi og Hafnar-
firði.
Af þessu má sjá að fjöldi þeirra lög-
reglumanna sem starfa beint við umferð-
areftirlit á höfuðborgarsvæðinu er nokk-
uð langt frá því sem var fyrir tuttugu
ámm og nær það einnig til tækjabúnaðar.
Fjölga þyrfti um 60%
Ef eðlileg fjölgun lögreglumanna við
umferðareftirlit hefði verið í samræmi
við fjölgun ökutækja á tímabilinu frá
1980 til 2000 þá væru stöðugildi í um-
ferðardeild lögreglunnar í Reykjavík
u.þ.b. 60% fleiri. Þannig ætti deildin í
dag að samanstanda af 64 (er nú 24)
stöðugildum, 10 (2) lögreglubifreiðum
og 24 (8) bifhjólum.
Níu milljónir á dag
Aukið umferðareftirlit kostar skattgreið-
endur fjármuni og til að átta sig betur á
umfangi þess og um leið sjá hvað getur
sparast með fækkun tjóna hefur greinar-
höfundur búið til eftirfarandi dæmi:
Um er að ræða 6 lögreglubifreiðar
sem staðsettar yrðu við jafnmörg gatna-
mót á höfuðborgarsvæðinu á helstu
álagstímum dagsins, þ.e. frá 7 til 12 og
13 til 18. Væru bifreiðamar af gerðinni
Opel Omega og yrði hver þeirra mönnuð
einum lögreglumanni. Samkvæmt upp-
lýsingum undirritaðs kostar fyrrgreind
bifreið um 3,3 milljónir með öllum út-
búnaði til eftirlits. Gert er ráð fyrir að
hún sé afskrifuð á 5 árum; um 18% á ári
eða um 50.000 kr. á mánuði. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni má áætla að
útseld vinna lögreglumanns sé um kr.
2.090 á tímann og hvern ekinn kflómetra
sé um 26 kr. Ef gert er ráð fyrir að bif-
reiðum sé ekið 40 km á dag þá lítur
dæmið þannig út fyrir daginn:
Bfll 3.000 kr.
Lögreglumaður 22.900 kr.
Eknirkm. 1.040 kr.
Samtals 26.940 kr.
Ath. að hér er hlutur hílsins aukinn um 80%.
Fyrir 6 bifreiðar kostar dagurinn því kr.
161.640. Væru tveir lögreglumenn í
hverjum bfl hækkar þetta í 276.140 kr.
Ef slíkt eftirlit væri allt árið um kring
alla daga ársins þá næmi heildarkostnað-
ur samtals um 60 milljónum króna (100
milljónir með tveimur lögreglumönnum í
bfl). Reyndar má minna á að nokkur hluti
þeirrar upphæðar
rennur í ríkissjóð
aftur.
Að jafnaði
verða um þrjátíu
óhöpp á dag á göt-
um höfuðborgar-
svæðisins en hvert
þeirra kostar um
300.000 kr.
samkvæmt tjóna-
tölum hjá Sjóvá-
Almennum. Því
kosta bein eyði-
legging og slysabætur um 9 milljónir
króna á dag og er þá ótalinn sjúkrakostn-
aður. Sé miðað við að fyrrgreint umferð-
areftirlit skili árangri þá þarf lágmarksár-
angur að nema fækkun um eitt óhapp á
dag eða 0,3%.
Iðgjöld ígildi óhappa og slysa
í þessari samantekt hefur verið reynt að
opna augu neytenda fyrir ntikilvægi þess
að búa við öflugt umferðareftirlit. Það
hefur stundum gleymst í þeirri umræðu
sem átt hefur sér stað um iðgjöld trygg-
ingafélaganna að þau eru bein afleiðing
óhappa og slysa í umferðinni. Eigi þau
að lækka þarf því tjónakostnaður að
minnka. Hvers vegna ástandið er svo
slæmt sem raun ber vitni skal ósagt látið
en þó er eins og stjórnvöld séu að vakna
til lífsins um alvöru málsins. Að minnsta
kosti hefur greinarhöfundur orðið nýlega
mun meira var við löggæslubifreiðar, til
dæmis við hættulegustu og tjónamestu
gatnamót landsins, gatnamót Kringlu-
mýrar og Miklubrautar. Þá hefur einnig
komið fram í fjölmiðlum að einhver
fjölgun og endumýjun bifhjóla eigi sér
stað hjá umferðarlögreglunni í Reykjavík
á komandi vori.
Eftir Huga Hreiðarsson, kynningarfulltrúa
Sjóvá-Almennra
Hvað kosta óhöppi n?
Ástæða Meðalkostn. m/vsk. Hlutfall slasaðra
Aftanákeyrsla 407.313 kr. 21,9%
Bakkað á 82.156 kr. 1,1%
Ekið á móti rauðu 862.726 kr. 48,5%
Ekið á kyrrstaeða bifreið 161.766 kr. 2,3%
Akreinaskipti 235.278 kr. 10,3%
Vinstri beygja 557.710 kr. 26,1%
Ekið á mannvirki 237.808 kr. 14,7%
Ekió á gangandi/hjólandi 1.211.695 kr. 82,5%
Unnið úr gagnasafni Sjóvár-Almennra fyrir tjónatölur 1995-1999
NEYTENDABLAÐIÐ - nóvember 2000
35