Neytendablaðið - 01.11.2000, Síða 36
Bréf frá lesendum
Slæmir viðskiptahættir
hjá stíflulosunarþjónustu
Neytandi sendi biaðinu
svohljóðandi bréf:
„Eftirfarandi frásögn fjallar
um samskipti mín við stíflu-
losunarþjónustu hér í bæ og
er ætlað að upplýsa neytendur
aðeins um gjaldtöku þá sem
þessi fyrirtæki notast við. Það
stíflaðist hjá mér baðkar og
sturtubotn. Eg hringi í stíflu-
losunarþjónustu, fæ uppgefið
að verðið sé 2.990 krónur á
tímann og réð hana til vinnu í
kjölfarið. Starfsmaður fyrir-
tækisins mætir, gerir við stífl-
una á innan við klukkutíma
og sendir mér svo reikning
nokkru síðar. Reikningurinn
var upp á 7.283 krónur og
skiptist í vinnu, 5.850 krónur,
og virðisaukaskatt upp á
1.433 krónur. Fjöldi vinnu-
stunda var ekki tekinn fram á
reikningnum. Þetta fannst mér
skrýtið þar sem ég stóð í
þeirri trú að tímaverð vinn-
unnar ætti að vera 2.990 krón-
ur auk virðisaukaskatts upp á
748 krónur (en neytendur
verða yfirleitt að spyrja sér-
staklega um virðisaukaskatt-
inn þar sem iðnaðarmenn taka
hann sjaldnast fram fyrren
kemur að reikningum og
verki er lokið). Því bjóst ég
því reikningi upp á 3.738
krónur en ekki 7.283 krónur.
Ég hringdi því í fyrirtækið
og ekki stóð á skýringum. I
fyrsta lagi var ég rukkuð fyrir
tvo tíma þrátt fyrir að þeir
hafi verið innan við eina
klukkustund að gera við stífl-
una. Forsendurnar voru þær
að það séu staðlaðar vinnu-
reglur iðnaðarmanna að bæta
við klukkutíma í gjaldtöku
vegna aksturs o.fl. Þannig
hefði hann rukkað mig fyrir
einn og hálfan tíma ef hann
hefði losað stífluna á hálf-
tíma.
Þegar ég gagnrýndi hann
fyrir að upplýsa mig ekki um
þetta, hvorki þegar ég talaði
við hann í byrjun né heldur
þegar hann hafði lokið verk-
inu, brást hann hinn versti
við. Þá gerðist hann yfirmáta
dónalegur og sagðist ekki
hafa tíma fyrir svona kjaftæði
og kallaði mig að lokum
veruleikafirrtan einstakling
fyrir það að búa ekki yfir
þekkingu á gjaldtöku iðnaðar-
manna sem honum fannst
sjálfsagt að allir stæðu skil á.
Hann bauð mér þó að koma
heim til sín til að ræða þessi
mál betur, hann myndi jafnvel
slá eitthvað af ef ég stað-
greiddi honum bara beint
(vafalaust átti að skera virðis-
aukaskattinn af).
En hvað er hægt að læra á
þessu? Jú, það er ekki nóg
fyrir neytandann að spyrja að-
eins hvað þjónustuaðilinn tek-
ur á tímann og reikna svo
með því að sú tala nægi til að
greiða fyrir verkið, heldur
verður að spyrjast nákvæm-
lega fyrir um allan aukakostn-
að, akstur, leigu á tækjum, og
tímann sem fer í að koma sér
til og frá staðnum. í mínu til-
viki bættust við rúmlega
3.500 krónur sem rekja má til
þessa „leynda“ kostnaðar sem
var aldrei tekinn fram þegar
spurt var um verð fyrir verk-
ið.
Það var greinilegt að for-
ráðamaður þessa fyrirtækis
var afar hneykslaður á þess-
um smásmuguhætti í mér, röfl
um nokkra þúsundkalla, og
má vel vera svo. Hitt er annað
mál að mér finnast þetta
slæmir viðskiptahættir, allir
kostnaðarliðir skulu vera
neytandanum ljósir þegar
hann spyr iðnaðarmanninn
um verð, en ekki á að læða
honum að þegar verki er lokið
og komið að uppgjöri og fela
sig á bak við það að þetta eigi
’allir að vita. Þetta er spurning
um heiðarlega viðskiptahætti
en ekki nokkrar krónur.“
Svar Neytendablaðsins:
Eins og bréfritari bendir
réttilega á þarf í upphafi að
ganga frá formlegum samn-
ingi, annaðhvort skriflegum
eða munnlegum og þá á
tryggan hátt með vitni. Það er
líka mikilvægt að krefja þann
sem kaupa á þjónustu af um
alla kostnaðarliði sem koma á
reikninginn. Þeir eru ekki
alltaf sanngjarnir og sjaldnast
sagt frá sumum þeirra að
fyrrabragði. Raunar á seljandi
að gefa upplýsingar um alla
kostnaðarliði áður en samn-
ingur er gerður.
NEYTENDASTARF ER íALLRA ÞÁGU
66°N Reykjavík og Akureyri
Áfengis- og tóbaksverslun íslands
Bilabúö Benna
Bilaleiga Flugleiöa-Hertz
Bónus-verslanirnar
Búnaöarbanki íslands hf.
Eining-löja, Eyjafiröi
Farmanna- og fiskimanna-
samband íslands
Fönn, fatahreinsun og þvottahús
G.J. Fossberg
Glóbus hf.
Harpa hf.
Herragarðurinn -
Kringlunni og Laugavegi
Húsasmiöjan hf.
IKEA
Karl K. Karlsson ehf.
KÁ-verslanir
Lýsi hf.
Myllan-Brauö
NETTÓ - Reykjavík, Akra-nesi og
Akureyri
Nóatúnsbúöirnar
Nói-Síríus hf.
Olíuverslun íslands hf.
ORA ehf., niöursuðuverksmiöja
Osta- og smjörsalan
Penninn-Eymundsson
Rafiönaöarsamband íslands
Reykjavíkurborg
- netfang: www.reykjavik.is
Rydenskaffi hf.
Ræsir hf.
Samband íslenskra sparisjóöa
Samkaup hf.
Sjómannasamband íslands
Sláturfélag íslands
Slippfélagiö, málningarverksmiöja
Smith & Norland hf.
Steinar Waage, skóverslanir
Tryggingastofnun ríkisins
Vátryggingafélag íslands
Verkalýðsfélagió Hlíf, Hafnarfirði
Verslunin 17
Vífilfell ehf.
Visa-ísland
36
NEYTENDABLAÐIÐ - nóvember 2000