Tónlistin - 01.12.1944, Síða 36

Tónlistin - 01.12.1944, Síða 36
66 TÓNLISÍIN Endursagt úr tónheimum Framh. af bls. 63. hver veigamesta starfsemi Nikischs var að ryðja verkum Antons Bruckner braut. Þeim var áður tiltölulega lítill gaumur gefinn, en fyrir nokkru mátti heyra all- ar symfóníur hans, 9 að tölu, á einum vetri í Gewandhaus. Eilifðarþráin og trúar- andinn, sem í þciin býr, einkenndi síðustu starfsár Nikischs. í mannmum Arthur Nikisch birtist ljúfmennska 'og hógværð samfara kon- unglegu valdi. Líf hans var samfelld sig- urför. Járnvilji og óvenjulegt líkamsþol studdu hann. Það kom mönnum því mjög á óvart, þegar hann lagðist veikur af in- flúensu þeirri, sem geisar um heiminn. í full 25 ár hafði það aldrei komið fyrir, að hann veikinda vegna gæti ekki stjórn- að Gewandhaushljómleikum. Veikin lagð- ist á hjartað. Það fréttist, að hætta væri á lífi hansl Með hugró og hlíðuviðmóti lá meistarinn á heimili sínu, kallaði til sín fjölskyldu sina, kvaðst vita, að hanu mundi ekki aítur risa úr rekkju, og ráð- stafaði útför sinni: Við bálför hans skyldu ekki aðrir vera viðstaddir en nán- ustu ættingjar hans og vinir, ásamt Ge- wandhausorkestrinu; enginn söngur skyldi við liafður, enginh samleikur gerð- ur nema „Hymnus" (lofsöngur) fyrir 12 celló eftir Julius Klengel. Meistarinn bað þess, að engar ræður skyldu haldnar, en son sinn dr. jur. Nikisch bað hann mæla „nokkur vingjarnleg orð“. Fjölskyldan vænti l)atans, en það varð, sem sjúkling- urinn sagði. Allan legutimann (hálfan mánuð) heyrðist ekki kvörtunarorð af hans vörum. Hann horfðist í augu við dauðann með söntu sigurvissunni og hann hafði starfað: Enn eitt dæmi þess, að ein- göngu miklir mcnn geta verið miklir lista- menn. Mánudagskvöldið 23. janúar sofn- aði meistarinn og vaknaði aldrei aftur. Klukkan hálf-niu var hann dáinn. — Næsta morgun á að vera orkestursæf- ing i Gewandhaus. Stjórnari úr annarri l)org á að undirhúa næstu hljómleika. Hann verður að tilkynna leikurunum lát foringjaus. Þá tárast karlmenn, taka hljóðfæri sin o£ búast til heimferðar. A Gewandhaushöllinni fyrir neðan áletrun- ina „Res severa verum gaudium“ hangir fáni í hálfa stöng. Hvergi er um annað talað. Næsta dag eru blöðin full af grein- um um listamanninn. Sorgar- og minn- ingarhátiðir eru haldnar i ýmsum borg- um. Frá útlöndum berast samúðarfregn- ir. Einnig þar er meistarans minnzt á marga vegu. Næstu Gewandhaushljómleikum er breytt í sorgarhátíð. Á svörtum stalli fyr- ir neðan orkesturspallinn stendur mar- marabrjóstinynd af Nikisch eftir Leder- er. skreytt lárviðarlaufum. 1600 manns minnast hins látna með því að standa upp. Kyrrð. Coriolan-forleikur Beethov- ens gcfur örvæntingunni lausan tauminn. Ejórir hihlíusöngvar eftir Brahms eru sungnir (Salom. kap. 3—4, Jesús Sir. kap. 41 og fyrra Korintubréf Páls kap. 13). Tónlistin leysir alla sálarfjötra. Karl- ar og konur sjást gráta. Hryggðin nær svo almennt tökum á mönnum, að þeir forðast að lita hver framan í annan. Or- kestursleikararnir sjást roðna og fölna á víxl. Þeir leika nú standandi sorgar- göngulagið úr Eroicasymfóníu Beethov- ens. Sorgin virðist hafa lamað ])á svo, að þeim verður ekki greitt um tónana. Hátíðinni lýkur, og salurinn tæmist hljóð- lega. Útförin fer fram, eins og hinn látni hafði óskað. Þeim þúsundum eða tugum þúsunda, sem vilja vera viðstaddir, er hafnaður aðgangur. Blóm og sveigar hylja algerlega veggi hússins. Dr. jur. Nikisch talar. Hann minnist þess, að ríki föður síns, „ríki andlegustu listarinnar, cr ckki af þcssiuu hcimi. Lát hans cr því i raun og vcru hcimför hans. Tónlistin var honuni allt, hcimspeki hans og trúar- hrögð. Tónlistin leysti öll þau höft, sciu voru iuilli lians og inaiinanna.“ Þannig mælir sonurinn m.eð ákveðinni og mjúkrr röddu. Sifellt hirtast endurminningar um meistarann i blöðum og tímaritum. Úr öllum áttum utan lands og innan berast

x

Tónlistin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.